Gos?

........Það myndi beina athyglinni frá fjármálunum um stund.  Og laða að ferðamenn með gjaldeyri. Það er spurning hvort við ættum ekki að reyna að flýta fyrir þessu með borunum og dýnamiti.  Svei mér þá.  Annars er spennandi að fylgjast með þessu.
mbl.is Skjálftahrina við Upptyppinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

heldurðu það ekki?

Hólmdís Hjartardóttir, 22.10.2008 kl. 17:15

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Þarna kom eitthvað fyrir ykkur sem haldið upp á gos og hraun. Ég held mig við Kók og Prins

Haraldur Bjarnason, 22.10.2008 kl. 17:27

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Ertu eitthvað hræddur við þetta Halli minn?

Hólmdís Hjartardóttir, 22.10.2008 kl. 17:33

4 Smámynd: Haraldur Bjarnason

...já skíthræddur...maður veit ekkert hvaða skaða á mannvirkum og manntjóni gos kann að valda, kannski síst þarna en segjum að sama staða komi upp á öðrum eldvirkum svæðum eins og Reykjanesi eða Bláfjöllum.

Haraldur Bjarnason, 22.10.2008 kl. 17:48

5 identicon

Sæl vertu!   Hvað telurðu verða úr þessari hrinu þarna norðan við Vatnajökul, þ.e. við Upptyppinga?  Ef Typpin eru uppi má reyndar vænta vænta goss....eða þannig...[alltaf í boltanum?] 

 Manstu í "den", þegar maður fór með farseðilinn í bankann og keypti gjaldeyri og farseðillinn síðan stimplaður í bak og fyrir "gjaldeyrir afhentur".

Svipuð tilhögun er viðhöfð ídag.

Kv. Leifur

Leifur (IP-tala skráð) 22.10.2008 kl. 19:55

6 Smámynd: Sporðdrekinn

Gos er í lagi svo lengi sem að enginn og ekkert skaðast.

Sporðdrekinn, 22.10.2008 kl. 20:01

7 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Sæll Leifur við erum komin áratugi aftur í tímann.  Ég held að það  eigi eftir að gjósa þarna spurningin er hvenær.  Kveðja.

Halli ég er miklu hræddari við Reykjanes en Upptyppinga..

Sammála Sporðdreki

Hólmdís Hjartardóttir, 22.10.2008 kl. 20:08

8 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Dýnamít til að hleypa þessu af stað... afhverju ekki bara HAARP? Loftnetin við Stokkseyri og í Þykkvabæ gætu e.t.v. dugað til að hleypa fjöri í leikinn ef við tengjum þau beint við raflínurnar sem liggja yfir Hellisheiðina... ;)

Guðmundur Ásgeirsson, 22.10.2008 kl. 21:49

9 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

hahaha

Hólmdís Hjartardóttir, 22.10.2008 kl. 22:40

10 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Neinei, hún hló og ég ekki nærstaddur!?

Hann hlýtur að hafa stolist til að kitla þig á ónefndum stöðum, karlfauskurinn!

Magnús Geir Guðmundsson, 22.10.2008 kl. 22:56

11 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Hólmdís Hjartardóttir, 22.10.2008 kl. 23:56

12 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Færist Jökulsá á Fjöllum yfir í Jökulsá á dal ef það gýs við upptyppinga eða þar um bil ? Það yrði uppákoma í lagi.

Spennandi.

Haraldur Davíðsson, 23.10.2008 kl. 00:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband