Ég fann jólin í Iðnó.

..............Fór í dag á jólatónleika í Iðnó.  Þar voru Björg Þórhallsdóttir sópran og Árni Heiðar Karlsson píanóleikari. 

Þetta var hreint út sagt yndislegt enda bæði sannir listamenn. Ég hef enga heyrt syngja Ave María (Kaldalóns) betur.  Ég fékk gæsahúð og tár í augu!  Björg hefur svo fallega rödd og er auk þess stórglæsileg á sviðinu.  Ég held áfram að hlusta á  Björgu í kvöld hér heima.  Ætla að hlusta á jóladiskinn hennar: Himnarnir opnast...jólaperlur.

Það er líka gaman að koma í Iðnó.  Húsið er svo fallegt  ekki hvað síst í jólabúningi.

                                                                  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Ég ætla á jólatónleika Dómkórsins í Dómkirkjunni á eftir kl. 22 og fá svolítinn jólafíling.

Lára Hanna Einarsdóttir, 21.12.2008 kl. 20:28

2 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ég fer í kirkjugarðinn á morgun að kveikja á kertum hjá mömmu og pabba.....kannski kemur minn fílingur þá

Gott að þú áttir góðan dag

Sigrún Jónsdóttir, 21.12.2008 kl. 20:36

3 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Passaðu þau þá vel Hólmdís mín, mátt ekki týna þeim aftur! Björg annars já STÓRSÖNGKONA, hvað eru plöturnar annars orðnar margar hjá henni, þrjár eða fleiri?

Magnús Geir Guðmundsson, 21.12.2008 kl. 20:38

4 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Lára Hanna.....þetta var svo gott.  Njóttu vel á eftir

Sigrún mín ég vona það.

Magnús þær eru 3.  Ég týni ekki jólaandanum lofa því.

Hólmdís Hjartardóttir, 21.12.2008 kl. 20:41

5 Smámynd: Sigrún Óskars

Björg er mjög flott söngkona, hún er líka kollegi okkar. Alltaf gaman að fara á tónleika fyrir jólin.

halda svo bara jólaandanum í hjartanu

Sigrún Óskars, 21.12.2008 kl. 21:41

6 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Já  Sigrún hún var að vinna á Heilsuverndarstöðinni með mér.

Hólmdís Hjartardóttir, 21.12.2008 kl. 22:58

7 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

það er gott að heyra mín kæra.

Ásdís Sigurðardóttir, 21.12.2008 kl. 22:59

8 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Já Ásdís gott að ég fann þau!

Hólmdís Hjartardóttir, 22.12.2008 kl. 00:25

9 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Það er frábært að þú fannst jólin. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 22.12.2008 kl. 00:47

10 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Annars er bara nokkuð algengt að "Hjúkkur" kyrji hina ýmsustu söngva og það jafnvel á plötum! Ein var þarna í dúettinum Kúnst. SVo var það sú úr Aðaldalnum, sem gaf út plötu fyrir nokkrum árum með fullþingi Magga Kjafrtans. Svo er Eva Ásrún auðvitað ljósmóðir!

Komdu með fleiri, veit að þær eru örugglega fleiri!?

Magnús Geir Guðmundsson, 22.12.2008 kl. 02:10

11 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Já Jóna Kolla ég var heppin

Magnús hjúkkum er margt til lista lagt.....t.d. er Sigrún Óskars sem hér kvittar búin að syngja sína jólatónleika.

Ég er aldrei beðin að syngja nema einu sinni!

Hólmdís Hjartardóttir, 22.12.2008 kl. 07:45

12 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

So so, hefur verið svo magnþrungið að menn fengu nóg!?

Eða ollirðu kannski eyrnasuði?

Magnús Geir Guðmundsson, 23.12.2008 kl. 01:40

13 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Sumt er svo gott Magnús að það þolist varla

Hólmdís Hjartardóttir, 23.12.2008 kl. 01:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband