Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi

.....Já það getur meira að segja komið snjóflóð úr þessu litla fallega fjalli.  Sem sumir segja að sé ekki  fjall heldur sýnishorn af fjalli  eins konar miniatúr. Gott að allt fór vel.

Hef oft verið hugsi þegar verið er að meta snjóflóðahættu.  Ég held að forsendurnar séu bara halli og snjór.

Ætla að hlusta á Húsvísku pörupiltana Ljótu Hálvitana í kvöld.

Góða helgi.


mbl.is Lentu í snjóflóði á Húsavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Oft fór maður upp á topp þessa leiðina, aldrei lenti ég þó í flóði. Gott að vel fór. Skemmtu þér með hálfvitunum, bið að heilsa þeim sem ég þekki.

Ásdís Sigurðardóttir, 13.2.2009 kl. 14:19

2 Smámynd: Offari

Ég sá einu sinni snjóflóð  stoppa rétt fyrir ofan Strandberg svo þetta er ekkert nýtt. Sem betur fer hefur enginn slasast. En skíðaför og snjósleðaslóðir geta gert skurði sem komið geta flóðum á stað.

Offari, 13.2.2009 kl. 14:26

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Offari kíktu á myndirnar hjá Ásdísi.  Ég man eftir snjóflóði í fjallinu.

Góða helgi 

Hólmdís Hjartardóttir, 13.2.2009 kl. 14:32

4 Smámynd: TARA

Já, mikil mildi að ekki fór verra...

TARA, 13.2.2009 kl. 14:38

5 identicon

föstudagurinn þrettándi.

klehh (IP-tala skráð) 13.2.2009 kl. 15:16

6 Smámynd: Sigrún Óskars

góða helgi Hólmdís - föstudagurinn 13. er fínn dagur

Sigrún Óskars, 13.2.2009 kl. 16:31

7 identicon

Njóttu hálfvitanna Hólmdís þeir eru snilld. Mikið vildi ég vera með þér á tónleikunum, það yrði allavegana mikið hlegið. Kv. Magga.

magga (IP-tala skráð) 13.2.2009 kl. 19:46

8 identicon

Hæ aftur, gleymdi að svara. Nei ég er ekki á fésbók. Þess vegna verður þú að halda áfram þínum skrifum hér. Kvitta sjaldnast en kíki flesta daga við hér. Kv. M.

magga (IP-tala skráð) 13.2.2009 kl. 19:49

9 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Takk Magga vildi sannarlega hafa þig með.....

góða helgi öll

Hólmdís Hjartardóttir, 13.2.2009 kl. 20:25

10 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Hólmdís ég hleraði að það hefði verið búið að vara við hættu á snjóflóði en þarna hefur eitthvað skolast hjá einhverjum, en allt fór vel.
Knús til þín
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 13.2.2009 kl. 20:34

11 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Gott að engann sakaði. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 13.2.2009 kl. 23:59

12 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Ljótu hálfvitarnir eru alveg einstakir. Við Sævar Sigurgeirsson vorum saman í kúrsi í Háskólanum og urðum ágætir félagar. Við endurnýjuðum góðan kunningsskap í gegnum Fésbókina á sl. ári eftir u.þ.b. 20 ára hlé.

Hann sendi mér svo boð ásamt öllum sínum Fésbókarvinum á tónleika hér á Akureyri. Ég stóðst auðvitað ekki mátið og það kom mér á óvart að þeir eru ekki bara skemmtilegir hálfvitar heldur líka góðir í því sem þeir eru að gera. Sævar reyndi að telja mér trú um að þeir hefðu vandað sig sérstaklega þetta kvöld mín vegna. Ég trúi honum mátulega

Rakel Sigurgeirsdóttir, 14.2.2009 kl. 15:06

13 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Rakel þetta var frábær skemmtun

Hólmdís Hjartardóttir, 15.2.2009 kl. 00:31

14 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Miðað við mína reynslu af þessum einu tónleikum sem ég hef farið á þá trúi ég því vel

Rakel Sigurgeirsdóttir, 15.2.2009 kl. 00:33

15 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Komst því miður ekki að hlusta á Hálfvitana í þetta sinn,  en þetta eru sko mínir menn !  (Þrír þeirra voru líka í ritnefnd "...þetta helst" hjá mér á sínum tíma, Ármann, Sævar og Toggi).

Eins og unglingurinn á heimilinu og vinir hans komust að í fyrrasumar, þá er þetta líka heimsins besta tónlist til að hoppa á trampólíni við.

Svo eigum við boli, sem á stendur "Æfingin skapar hálfvitann".   Sumsé, alvöru aðdáendaklúbbur hér í Vesturbænum.

Hildur Helga Sigurðardóttir, 16.2.2009 kl. 02:22

16 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

HHS þeir eru bara skemmtilegir blessaðir...þú drífur þig næst.  Það veitir ekki af smáhlátri.  

Hólmdís Hjartardóttir, 16.2.2009 kl. 10:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband