Gestabók

Skrifa í Gestabók

  • Skráðir notendur gefi upp notandanafn og lykilorð efst á síðunni og skrifi svo færslu í reitinn hér að neðan. Gestabókarfærslan birtist strax.
  • Óskráðir notendur geta einnig skrifað færslu. Athugasemdir þeirra birtast strax og ekki þarf að staðfesta uppgefið netfang.

Gestir:

vantar fréttir

Blessuð. Gaman væri að frétta hvernig að gengur hjá þér og hvernig þér líkar. Hér er allt svipað,ég er hætt að hlusta á fréttir en vel mér á mbl.is sem að er ekki bara neikvætt. Óþarflega mikið af svoleiðis fréttum. Annars allt gott af mér og mínum. Bestu kveðjur. Magga.

magga (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 4. sept. 2009

Hvar ertu?

Sæl Hólmdís mín. Hvernig er þetta? Ertu dottin út á facebook? Ég kemst ekki inn á þig þar. Ingveldur Árna.

Ingveldur Árnadóttir (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 12. ágú. 2009

Marta B Helgadóttir

Takk

Takk fyrir notalega samúðarkveðjuna.

Marta B Helgadóttir, lau. 6. des. 2008

Hólmdís Hjartardóttir

Jörundur

Sæl Magga. Já ég man vel eftir Jörundi... Kveðja til Húsavíkur. Hefurðu heyrt það að það er komin kreppa? HAHAHA

Hólmdís Hjartardóttir, fim. 20. nóv. 2008

Hef gaman af...

Blessuð Hólmdís. Kíki oft á þig en nenni ekki alltaf að kvitta. Ég var 5 eða 6 ára þegar að Jörundur var sýndur þannig að þú og Ásdís hafið verið eitthvað eldri. Allt gott héðan að vanda. sjáumst vonandi á nýju ári,allavegana. Bestu kveðjur Magga

magga (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 19. nóv. 2008

Hólmdís Hjartardóttir

Afmæliskveðjur

Takk elsku Sigga og Gunna

Hólmdís Hjartardóttir, mið. 8. okt. 2008

Sigríður Hulda Richardsdóttir

Til hamingju með afmælið!

Elsku Hólmdís - til hamingju með daginn. Að hugsa sér hvað tíminn líður fljótt. Kær kveðja Sigga Hulda

Sigríður Hulda Richardsdóttir, mán. 6. okt. 2008

Afmæliskveðja

Elsku Hólmdís til hamingju með daginn. Kær kveðja Gunna

Guðrún Torfadóttir (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 6. okt. 2008

Hólmdís Hjartardóttir

LAUFEY

HÉR ER PARTÝ Á LAUGARDAGINN

Hólmdís Hjartardóttir, mið. 1. okt. 2008

Hólmdís Hjartardóttir

Laufey

sorglegt með þessa stúlku. Bestu kveðjur

Hólmdís Hjartardóttir, fim. 25. sept. 2008

Laufey og fjöl.

hæ hæ! var að kýkja.það er allt gott að frétta af okkur hér fyrir austan fyrir utan að við þekktum Hrafhildi Lilju sem var myrt þarna út unnum með henni í Sólrúnu fyrir norðan. kveðja Laufey,Starri og dætur.

Laufey (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 25. sept. 2008

Hólmdís Hjartardóttir

Inga B

ég man eftir þér sem barni nokkrum húsum neðan við mig. Kveðja

Hólmdís Hjartardóttir, sun. 7. sept. 2008

Inga B.

Inga B.= Inga Björk Hafliðadóttir Jósteinssonar. Kveðja

Inga B. (Óskráður, IP-tala skráð), sun. 7. sept. 2008

Hólmdís Hjartardóttir

Lilja

Blessuð og sæl.Man auðvitað vel eftir þér. Vonandi er allt gott að frétta af þér.

Hólmdís Hjartardóttir, fös. 5. sept. 2008

buglara Hólmdís

Sæl Hólmdís getur verið að þú hafir unnið með mér á BUGL 1986?????????datt inn á bloggið þitt og er næsa viss um þú ert hún Hólmdís á BUGL allt sem þ´´u skrifar minnir mig á buglara Hólmdísi Lilja

Lilja Bjarnþórsdótir (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 4. sept. 2008

Hólmdís Hjartardóttir

saltfiskur

Þrælblessuð sjálf....saltfiskuppskriftin er undir færsluflokknum matur og drykkur verði þér að góðu Þórdís

Hólmdís Hjartardóttir, sun. 13. júlí 2008

Saltfiskur

Marg sæl og þræl blessuð Hólmdís Takk fyrir síðast sem var á bílastæði Kringlunnar ef ég man rétt.Eins og fleiri rakst ég á þitt skemmtilega blogg fyrir tilviljun.Sem ég var að gúffa í mig soðna saltfisknum í kvöld sá ég þig ljóslifandi fyrir mér og minntist saltfiskréttarins sem þú bauðst upp á í partýi forðum daga fyrir austan. Getur þú sent mér þessa uppskrift? Af mér og mínum er allt gott, óska þér hins sama.Kær kveðja í þinn rann......Þórdís

Þórdís Sveinsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), sun. 13. júlí 2008

Adam Ásgeir Óskarsson

Kveðja

Hólmdís þú getur rétt trúað því að ég saknaði þess að vera ekki með ykkur um daginn. Ég mun ekki klikka á því næst. Adam

Adam Ásgeir Óskarsson, fim. 26. júní 2008

Sigríður Hulda Richardsdóttir

Sæl og blessuð elsku Hólmdís

Ég rakst á þig fyrir tilviljun hér á blogginu. Það er orðið ansi langt síðan við höfum hist. Ég hugsa oft til þín, enda besta vinkona mín á Húsavík í æsku. Cat Stevens var betri en Rod Stewart, það er alveg augljóst! Ég hef búið í Kaupmannahöfn síðastliðin 14 ár, en kem í heimsókn til Íslands 2var á ári. Við verðum endilega að hittast þegar ég kem í haust. Þín vinkona Sigga Hulda

Sigríður Hulda Richardsdóttir, mán. 23. júní 2008

Halló Hólmdís

Hæ, frábært að fylgjast með blogginu þínu. Góða skemmtun um helgina, og alltaf kaffi í Grænu 5 ef þú hefur tíma. Kv Gunna

Gunna (Óskráður, IP-tala skráð), lau. 14. júní 2008

Gudrún Hauksdótttir

bloggvinur

langadi ad bjóda tig velkomna í minn bloggvina hóp...Kann bara ekki á tad . Med kvedju

Gudrún Hauksdótttir, þri. 10. júní 2008

Árgangur 1958 á Húsavík

Hæ Hólmdís Ert þú sú eina sanna Hólmdís sem ert frá Húsavík. Sá athugasemd hjá þér á moggablogginu. Gaman væri að heyra í þér. Aðalheiður adalheidurst@engjaskoli.is

Aðalheiður Steinarsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 30. maí 2008

Anna Ragna Alexandersdóttir

Ferð

Og by the way verð með tölfu í ferðinni

Anna Ragna Alexandersdóttir, mið. 28. maí 2008

Singapore

Takk fyrir ábendinguna. Verðum í sambandi.

Anna Ragna Alexandersdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 27. maí 2008

Hólmdís Hjartardóttir

Ásdís

Gott að allt er gott af þer að frétta....hér eru 5 kaffikönnur....

Hólmdís Hjartardóttir, fös. 23. maí 2008

Vessgú.

Muna að haka við, skrá utan trúfélaga. http://www.thjodskra.is/media/eydublod/trufelag.pdf Kveðja, Ólafur.

Ólafur (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 23. maí 2008

Fundin

Vissi ekki að ég væri að leita en fann þig samt. Allt gott að frétta og blómlegt á Bárugötu bkv Ásdís

Ásdís Ingólfsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 13. maí 2008

Hlynur Snæbjörnsson

Systir mín

Hún Guðún systir býr í Vestmannaeyjum. kveðja að norðnan.

Hlynur Snæbjörnsson, mið. 7. maí 2008

Anna Ragna Alexandersdóttir

Síðan

JÁ Flott heimasíðan þín.

Anna Ragna Alexandersdóttir, þri. 29. apr. 2008

Anna Ragna Alexandersdóttir

SÓL

Gleðilegt sumar ljúfan.

Anna Ragna Alexandersdóttir, fim. 24. apr. 2008

Ásta Kristín Norrman

Ertu hjúkka?

Sæl Hólmdís! Þú komst með færslu á síðuna mína og mér datt náttúrulega fyrst í hug hvort þú værir sú Hólmdís Hjartar frá Húsavík sem útskrifaðist með mér úr HSI 1982.

Ásta Kristín Norrman, fim. 24. apr. 2008

Anna Ragna Alexandersdóttir

Myndir

Tókst þú ekki myndir í ferðalaginu ?

Anna Ragna Alexandersdóttir, mán. 21. apr. 2008

Anna Ragna Alexandersdóttir

Flott kona hún Hólmdís

Já sumar eru flottari en aðrar.

Anna Ragna Alexandersdóttir, fim. 17. apr. 2008

Anna Ragna Alexandersdóttir

Takk

Takk fyrir að láta mig vita. Kv Anna Ragna.

Anna Ragna Alexandersdóttir, fös. 11. apr. 2008

Beturvitringur

Minn er heiðurinn

Sæl Hólmdís, þetta gekk fljótt fyrir sig. Þú ert fyrsti bloggvinurinn sem ég "sæki um" og fæ svar um hæl (hvernig sem það er nú hægt þar sem enginn var gönguferðin). Þú virðist vera náttugla eins og ég og fleiri svo þú hefur strax séð erindið mitt. Ég vil endilega geta strax litið yfir og þá lesið blogg frá athyglisverðum skrifurum. Kveðja, Bloggvinurinn "Beturvitringur" sem er mín íslenska yfir Besser Wisser. Fyrir þig: Eygló Yngvadóttir

Beturvitringur, mið. 12. mars 2008

vietnam :)

hæ góða þurfum að hittast og bera bækur okkar saman um Vietnam var þar í Janúar kveðja Ragnheiður

ragnheiður (Óskráður, IP-tala skráð), sun. 9. mars 2008

maggatolla

Hæ Miss Hjartardóttir, hvurslags ferðalag var þetta á þér? Ég er lost að fara í flug á morgun Ak-Rey! En líkt þér e-ð svona framandi. Fleiri uppskriftir takk. Ég bauð í saltfískrétt ala holmdis í gær en með breyttu sniði vegna hráefnisskorts á víkinni góðu(pirr,pirr)reyni síðar þegar að samgöngur á milli eru betri.EN.. gott væri að fá allt upp í hendurnar og HVAÐA rauðvín/hvítvín er gott með.Verð að fá að skila kveðju til G.J.G. á þinni síðu.Er búin að senda x3 póst til hennar en fæ allt í trýnið aftur. Jú G.J.G.þú átt í mér allavegana að koma mér í gegnum námið ásamt Ernu Óla þökk sé ykkur. Börnin þín standa sig frábærlega enda seigildisgen í þeim. Hafið það sem best báðar tvær. Á morgun koma 15stk.af heilsugæslu liði að norðan í borgarferð-_galvaskar.Kveðja. Magga.

maggatolla (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 5. mars 2008

Anna Ragna Alexandersdóttir

Góða ferð

passa sig á túttó,en það eru leigubílar þar í landi. Góða ferð

Anna Ragna Alexandersdóttir, þri. 22. jan. 2008

Beturvitringur

Málverndarstuðningur

Takk fyrir styðjandi skilaboð til mín vegna íslenskuáráttu minnar. Það er alveg ómissandi að fá smá klapp á bakið

Beturvitringur, fim. 10. jan. 2008

Gunnlaugur B Ólafsson

Til lukku

Hæ Hólmdís og til lukku með síðuna. Sendi á þig beiðni um að gerast bloggvinur. Með kærri kveðju,

Gunnlaugur B Ólafsson, fös. 14. des. 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband