15.7.2008 | 23:25
Ég er ábyggilega vogmær
fædd í október. Þó er ég ekki þunnvaxin og næ engan vegin þriggja metra lengd. Hef meira að segja komið við á Skagaströnd. En vissulega er ég sérstæð (einstæð...sjálfstæð). Svo mikið er víst að ég fæddist með tálknleifar sem voru fjarlægðar á unglingsárum. Þessar tálknleifar voru framan á hálsi. Þar var lítið gat þaðan sem rann vessi allt til að þetta var fjarlægt þegar ég var 16 ára gömul. Svona er ég nú komin skammt á þróunarbrautinni. Föðurbróðir minn og ömmusystir mín höfðu sama fæðingargalla. En ekki veit ég um fleiri.
En afmælisbarn dagsins er Atli Hreinsson bróðursonur minn....mikill rokkari. Til lukku með daginn
Vogmær finnst á Skagaströnd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Vinir og fjölskylda | Aukaflokkur: Spaugilegt | Facebook
Athugasemdir
Þú ert greinilega einstæð, svo mikið er víst.
Hvað nefnist þessi fæðingagalli á okkar máli??
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 15.7.2008 kl. 23:56
Þessi vogmær er ekkert merkileg. Við strákarnir á Akranesi fundum ein sjórekna árið 1965 og hún var um 3 metrar.!!!!
Haraldur Bjarnason, 16.7.2008 kl. 00:04
Skemmtileg færsla
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 16.7.2008 kl. 00:36
Guðrún Jóna...veit ekki nafnið á gallanum.
Haraldur ég sem vogmær er dálítið móðguð...til lukku með ykkar sjóreknu....allir furðufiskar og fuglar á Húsavík voru bornir heim til mín til greiningar en ekki man ég eftir vogmær. Nema úr bókum.
Takk Jóna Kolla
Hólmdís Hjartardóttir, 16.7.2008 kl. 00:50
vogmey!!
Hólmdís Hjartardóttir, 16.7.2008 kl. 00:51
Jóna Kolbrún....þú ert a.m.k vog og reyndar Guðrún Jóna líka. Takk
Hólmdís Hjartardóttir, 16.7.2008 kl. 01:01
Yngri bróðir minn var með svona tálknleifar, man ekki hvað hann var gamall þegar að það var "lagað".
Sporðdrekinn, 16.7.2008 kl. 02:02
Merkilegt sporðdreki.....því þetta er fremur fátítt. Óska þér góðra daga svona foreldralausri í útlöndum
Hólmdís Hjartardóttir, 16.7.2008 kl. 02:10
Ég vissi reyndar um eina stúlku sem bjó í Köldu-kinn með þennan galla.
Hólmdís Hjartardóttir, 16.7.2008 kl. 02:15
Hólmdís Hjartardóttir, 16.7.2008 kl. 02:44
Kannski við séum skildar
Takk Hólmdís mín.
Sporðdrekinn, 16.7.2008 kl. 03:21
Ég man vel eftir þessu litla gati á hálsinum á þér. Mér fannst það bara sjarmerandi og einstakt.
Sigríður Hulda Richardsdóttir, 16.7.2008 kl. 09:33
Takk Sigga..
Sporðdreki aldrei að vita!
Hólmdís Hjartardóttir, 16.7.2008 kl. 11:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.