Dauðaklukka hjá Brynju Skordal

Samkvæmt  dauðaklukku hjá Brynju Skordal mun ég deyja 7. apríl 2030.  Það er allt of langt í þetta. Nú verð ég að reykja meira og drekka meira, hreyfa mig minna og borða meira.  Ég ætla ekkert að verða svona gömul!!!!!!!!!  Í eðli mínu er ég ung.  En ok. 23 ár eftir. Þau verða nú fljót að líða.  En þá verður varla nokkuð úr heimsendinum annað kvöld.  Ég sem ætlaði að kíkja undir skotapilsin og leika mér til hinstu stundar...........neyðist  í staðinn að mæta á kvöldvakt á morgun. En til öryggis ætla ég að sleppa stórhreingerningum á morgun Undecided

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ég fer víst Föstudaginn 9 apríl árið 2032 og ekki degi fyrr. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 10.9.2008 kl. 02:16

2 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Úff stelpur......ekki vil ég vita neitt um minn dauða......

...en ég ætla að ganga aftur og hrekkja þá sem mér líkar ekki við...

Haraldur Davíðsson, 10.9.2008 kl. 02:21

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Haraldur sé þess nokkur kostur að ganga aftur mun ég gera það!!!!!!  og leika sama leik og þú

Jk............skot á morgun!!!!!!!!!

Hólmdís Hjartardóttir, 10.9.2008 kl. 02:23

4 Smámynd: Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir

Ég kíkti undir nokkur í dag, það var ekkert varið í varninginn, enda frekar kalt.

Hvar finnur maður annars svona dauðaklukku?

Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir, 10.9.2008 kl. 04:14

5 Smámynd: Tína

Ætla að fara að þínu fordæmi og sleppa þrifunum svona til öryggis.

Knús á þig krútta.

Tína, 10.9.2008 kl. 09:20

6 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Hekla............Brynja Skordal  skoðaðu það blogg.  Varstu á gægjum stelpa?

Tína....mað eyðir ekki síðustu klukkustundunum í þrif.........knús á þig.

Hólmdís Hjartardóttir, 10.9.2008 kl. 10:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband