12.9.2008 | 16:55
Et, drekk og ver glaðr.
....vissi þetta alltaf. Aukakíló koma ekki í veg fyrir hamingjuna. Borðið bara vel af góðum mat, skolið honum niður með rauðvíni og svo smók í eftirrétt. þetta er mín hugmynd að góðri máltíð. Góður félagsskapur vissulega kærkominn. En útlitsdýrkunin er fyrir löngu gengin út í öfgar. Og við skulum sannarlega velja það sem fer ofan í okkur.
En það er vissulega léttara að vera í kjörþyngd og í góðu formi.
og of mikið rauðvín getur komið manni í koll.
Og gömul reykingalykt er ekkert góð.
Það kæmi mér ekkert á óvart að þeir sem að þeir sem láta lystisemir lífsins eftir sér lifi fyllra og skemmtilegra lífi en þeir sem eru stöðugt með hugann við vigtina og útlitið.
Feitir en alsælir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
"Of mikið rauðvín getur komið manni í koll" eða um koll í bókstaflegri merkingu
Takk fyrir hjálpina í dag Hólmdís
Sigrún Jónsdóttir, 12.9.2008 kl. 18:38
hóf er best á öllu Sigrún.
Hólmdís Hjartardóttir, 12.9.2008 kl. 18:50
ok samþykki
Haraldur Bjarnason, 12.9.2008 kl. 19:09
Haraldur var að sporðrenna nýjum silungi með nýjum kartöflum úr Vallanesi og íslenskt smjör með + grænmeti. Skolaði niður með Amstel ekki amalegt. Það verður nú að vera smjör með þessum dásamlegu kartöflum.
Hólmdís Hjartardóttir, 12.9.2008 kl. 19:17
Lífrænt ræktaðar kartöflur frá Eymundi bónda, það er ekki amalegt með selöngi og smjeri
Haraldur Bjarnason, 12.9.2008 kl. 19:34
Að vera reyklaus, í áfengisbindindi og borða aðeins heilsufæði hefur lítið að segja fyrir heilsuna ef að fólk hreyfir sig ekki. Ég þekki slatta af fólki sem reykir, drekkur og borðar hvað sem er og mikið af öllu en hefur alltaf verið við góða heilsu vegna þess að það er vant því að hreyfa sig mikið, dags daglega.
Ég held að silungur með íslenskum kartöflum sé hollari en skordýraeiturs mengaða grænmetið og ávextirnir frá asíu og suður evrópu.
Húnbogi Valsson (IP-tala skráð) 12.9.2008 kl. 19:48
sammála Húnbogi....
Hólmdís Hjartardóttir, 12.9.2008 kl. 20:19
Þeim fjölgar stöðugt.... sem drekka, reykja og eru of þungir.
Anna Ragna Alexandersdóttir, 12.9.2008 kl. 22:18
Það er með ólíkindum hvað ég er oft sammála athugasemdum Húnboga!
Lára Hanna Einarsdóttir, 12.9.2008 kl. 22:30
í mínu tilfelli er það þannig að því fleiri aukakíló - því minni hamingja.
Sigrún Óskars, 12.9.2008 kl. 22:55
ARA,,,,,,satt er það
Húnbogi er enda vel gerður Húsvíkingur...Lára Hanna
Sigrún hvaða vitleysa....þú ert ágæt eins og þú ert....en haltu reykbindindið
Hólmdís Hjartardóttir, 12.9.2008 kl. 23:13
Og Sigrún eins og þú veist er grannt fólk ekkert síður í slæmu formi.....nebblega hreyfingin sem blívur
Hólmdís Hjartardóttir, 12.9.2008 kl. 23:20
ég veit Hólmdís, samt er ég löt að fara í ræktina og ég sem ætlaði að vera svo dugleg. en ég fer út að labba - og held reykbindindið.
Sigrún Óskars, 12.9.2008 kl. 23:27
Sigrún þú ert grönn
Hólmdís Hjartardóttir, 12.9.2008 kl. 23:42
Hvar fékkstu þessar bleiku???....eru ekki til bláar??? - þetta passa á mig...fæst þetta í rúmfó????.....
Haraldur Bjarnason, 12.9.2008 kl. 23:54
Er komin svefngalsi í ykkur.......eða eitthvað annað?
Sigrún Jónsdóttir, 12.9.2008 kl. 23:57
Heyr heyr Það er gott að éta, drekka og reykja.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 12.9.2008 kl. 23:59
Haraldur.....þetta er fyrir Sigrúnu skólasystur mína.....skal athuga með bláar handa þér....og þetta er ekki úr rúmfó ónei.
Hólmdís Hjartardóttir, 13.9.2008 kl. 00:04
Sigrún J
Hólmdís Hjartardóttir, 13.9.2008 kl. 00:05
Já
Sigrún Jónsdóttir, 13.9.2008 kl. 00:11
Sigrún J......kannski smá föstudagur...........hic
Jóna Kolbrún við erum algerlega sammála
Hólmdís Hjartardóttir, 13.9.2008 kl. 00:12
Ok, Skál
Sigrún Jónsdóttir, 13.9.2008 kl. 00:15
annars er ég bara róleg.............
Hólmdís Hjartardóttir, 13.9.2008 kl. 00:26
Ég verð nú að viðurkenna að ég vill ekki verða feit, en ég er ekki á vigtinni! Borða það sem að ég vill og oftast er það sem að ég vill hollt manni líður nefnilega betur af hollum mat
Sporðdrekinn, 13.9.2008 kl. 02:49
Silungur úr Mývatnssveit, smjör úr Eyjafirði, og kartöflur úr þykkvabæ ( rauðar íslenskar...smælki...). paprika og tómatar og gúrka og spínat, úr Hveragerði, og félagsskapur að vild.......ekkert betra...
Haraldur Davíðsson, 13.9.2008 kl. 03:48
Damn.............. og þessi færsla sem byrjaði svoooo vel!! Að vísu drekk ég ekki en læknirinn minn benti mér á að það væri lágmark að þekkja muninn á bragðtegundum En ég reyki og nýt þess enn svei mér þá. Ég meina............ ekki fæ ég að reykja þarna uppi. Það er því eins gott að gera það meðan maður getur ekki satt?
Vikuskammtur af knúsum á þig Hólmdís min. Alltaf jafn skemmtilegar pælingar hjá þér.
Tína, 13.9.2008 kl. 06:41
Hólmdís, takk fyrir þessar bleiku........
Sigrún Óskars, 13.9.2008 kl. 09:26
Sporðdreki...manni líður miklu betur af hollum mat......og enginn vill vera feitur....
Haraldur þetta hljómar svoooo vel
Tina takk.......það verður hver að velja fyrir sig.....samt vildi ég vera laus við reykinn......
Sigrún....velkomið....passa þær ekki?
Hólmdís Hjartardóttir, 13.9.2008 kl. 10:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.