Ja, það borgar sig ekki að ljúga upp á okkur stelpurnar.

............en eftir stendur að við vitum ekki sannleikann í málinu.  Annað þeirra lýgur svo mikið er víst. En það væri lítið gaman að þessu lífi ef ekkert væri áreitið. 

En ég tek eftir upphæðinni sem konunni eru dæmdar og finnst hún há miðað við hvað börnum eru dæmdar lágar bætur vegna kynferðislegs ofbeldis. 


mbl.is Fær 800 þúsund í bætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ef ég er að lesa fréttina rétt, er ekkert efast um réttmæti upprunalegu kvörtunarinnar, svo það er varla verið að "ljúga upp á" neinn. Hins vegar var "logið að" konunni um ástæður flutningsins, og henni voru dæmdar bætur vegna þess.

s (IP-tala skráð) 18.9.2008 kl. 22:04

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

það er rétt hjá þér s.

Hólmdís Hjartardóttir, 18.9.2008 kl. 22:13

3 identicon

Vildi bara segja að ég þekki þessa konu persónulega og get sagt ykkur það að hún lýgur ekki. 

Kristín (IP-tala skráð) 18.9.2008 kl. 23:12

4 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Takk fyrir það Kristín.

Hólmdís Hjartardóttir, 18.9.2008 kl. 23:17

5 Smámynd: Sigrún Óskars

Sigrún Óskars, 18.9.2008 kl. 23:21

6 identicon

Málið hefur allt verið frekar loðið , og hvernig í ósköpunum getur eitthvað sem gerist á milli tveggja fullorðina einstaklinga orðið að svona stóru innanhús klúðri ? Það virðist bara vera eitthvað að þarna á þessari tilteknu deild innan Landspítalans og virðist það eingöngu vera vegna dugleysis og vangetu í stjórnun viðkomandi deildarstjóra.

??? (IP-tala skráð) 18.9.2008 kl. 23:27

7 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

já þetta virðist klúður hjá yfirmanni.  Enda fær hún bæturnar fyrir það.

Hólmdís Hjartardóttir, 18.9.2008 kl. 23:31

8 identicon

Og þetta er ekki eins og það sé það eina sem upp hefur komið innan veggja LSH og þá sérstaklega þessarar deildar, en eins og annarstaðar í stjórnkerfinu virðast það vera þeir sem ekki kunna (með undantekningum!) sem veljast í stjórnunnarstöður og sitja þar sem fastast sama hvað á gengur  og svo verðum við skattborgararnir að greiða fyrir klúðrið .

??? (IP-tala skráð) 18.9.2008 kl. 23:42

9 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Þú virðist þekkja til þarna.  Já stjórnendur eru sannarlega misvitrir.   Eins og við öll.  Mér finnst dál. sérkennilegt að þótt einhver uppákoma hafi verið í einhverju partýi að ekki hafi verið hægt að settla það..........

Hólmdís Hjartardóttir, 19.9.2008 kl. 00:24

10 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Ja, nú er eins gott að fara varlega, enda komin nótt og konan kannski farin að fækka fötum, en samt, þú meintir nei, en ekki já í fyrirsögninni, var það ekki Hólmdís? "Nei, það borgar sig ekki.. o.s.frv."? Að vísu var nú búin til heil bíómynd um árið sem hét, "Nei er ekkert svar" þar sem JÁ nóg var af áreitni, en hérna finnst mér samt Nei vera rétt, en ekki Já.

En er auðvitað að öðru leiti alveg sammála fyrirsögninni, maður á bara yfir höfuð ekki að vera með derring við ykkur gyðjurnar, hvað þá að ljúga upp á ykkur!

Magnús Geir Guðmundsson, 19.9.2008 kl. 00:40

11 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Magnús minn Geir.............það hefði kannski verið betra að setja kommu á eftir jáinu mínu..........en þetta átti að vera já!!!!!!!!!!!Nei það þýðir ekkert að vera með derring.

Hólmdís Hjartardóttir, 19.9.2008 kl. 00:49

12 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

skárra?

Hólmdís Hjartardóttir, 19.9.2008 kl. 01:08

13 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

 Mér fannst fréttin skrítin og bæturnar skrítnar.  Það er allt skrítið við þetta mál.

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 19.9.2008 kl. 01:19

14 identicon

Ég er nánast orðlaus yfir þessari fyrirsögn..... Er eitthvað að hjá þér? Er allt í lagi að konur beiti kynferðislegu áreiti?!  Er maðurinn að ljúga? Þú hefðir ekki sagt þetta ef kvenn-ómyndin hefði verið beitt áreitinu.

Logi (IP-tala skráð) 19.9.2008 kl. 09:29

15 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Logi að sjálfsögðu er aldrei á lagi að beita fólk, konur eða karla kynferðislegu áreiti sem særir blygðuarkennd hins aðilans.  Mér finnst þetta bar allt hið furðulegasta mál...en enginn trúir þessu almennilega síst þeir sem þekkja til

Hólmdís Hjartardóttir, 19.9.2008 kl. 10:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband