Nú þarf að gera stórhreingerningu

  Allir sem bera ábyrgð hér eiga skilyrðislaust að segja af sér.  Enn og aftur bendi ég á að við þurfum óháða rannsóknaraðila til að skoða málin.....nokkur ár aftur í tímann.  Strútarnir eiga að gera þjóðinni þann greiða að stíga úr embættum. Stjórn SÍ, Fjármálaeftirlits og stjórn landsins nýtur ekki trausts og eiga að sjá sóma sinn í að fara frá.   Síðan á að rannsaka allar ákvarðanir þessara aðila ofan í kjölinn.   Hér er kannski sofandaháttur versti glæpurinn?  Það er búið að hneppa þjóðina í ánauð.      Ég varð aldrei vör við góðærið en er farin að finna vel fyrir hallærinu.  Það er framundan 100 ára einsemd heillar þjóðar ef ekkert er að gert.

Ég held að allt ruglið hafi byrjað þegar stjórnvöld stálu kvótanum.......................nú ber að þjóðnýta hann.


mbl.is Bankaskýrsla undir stól
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ég er algjörlega sammála þér, það þarf stórhreingerningu.  Pólitíkusar, bankamenn, og eftirlitsmenn.  Það hlýtur að styttast í byltingu

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 15.10.2008 kl. 01:21

2 Smámynd: Sporðdrekinn

Sammála að mörgu leiti, en "...100 ára einsemd...". Er þetta ekki smá... svart sýni

Sporðdrekinn, 15.10.2008 kl. 01:52

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Sporðdreki.....EF ekkert er að gert.....við ætlum að gera eitthvað!!!!!!!!!!!

JK það verður einhvers konar bylting

Hólmdís Hjartardóttir, 15.10.2008 kl. 02:10

4 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Er enntá í frettafríi nenni ekki ad taka tátt núna....Fæ heldur ekki neina nidurstödu hvad sem ég leita ...

Knús á tig inn í gódann dag.

Gudrún Hauksdótttir, 15.10.2008 kl. 06:20

5 Smámynd: Róbert Tómasson

100% rétt allt saman en hvað er til ráða, hér tekur aldrei nokkur neina ábyrgð heldur sitja sem fastast sama hversu miklu þeir klúðra.

Róbert Tómasson, 15.10.2008 kl. 07:12

6 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Takk jyderupdronning.

Erlingur....já satt er það

Robert ótrúlegur andskoti......við þurfum alla vega að muna vel á næsta kjördegi

Hólmdís Hjartardóttir, 15.10.2008 kl. 08:42

7 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Hæ.

Ég er smmála því að það þarf að taka til eftir svona draslaragang.

Þar sem ég bý á Seyðisfirði miussti ég af góðærinu að miklu leyti.  Ég ætla að gera allt sem ég get til að missa af kreppunni líka.

100 ára einsemd er dáldið svartsýna útgáfa an stöðunni, er það ekki. 100 dagar er meira eins og ég vil sjá það.

Jón Halldór Guðmundsson, 15.10.2008 kl. 13:49

8 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Jón Halldór     ég sagði 100 ára einsemd Ef ekkert er gert.....ég reikna alls ekki með svartnætti í heila öld

Hólmdís Hjartardóttir, 15.10.2008 kl. 15:41

9 Smámynd: Johann Trast Palmason

"Aðstoðarforstjóri Nordea í Finnlandi, Markku Pohojla, gefur til dæmis opinberlega í skyn að íslensku bankarnir munu fljótlega lenda í miklum vandræðum. Hann gengur jafnvel svo langt að gera því skóna að íslensku bankarnir verði ekki til staðar eftir nokkra mánuði.

Þessi stóru orð finnska bankamannsins byggja ekki á neinni greiningu á íslenskum bönkum. Nýleg ítarleg úttekt á stöðu þeirra og íslenska fjármálakerfisins alls, eftir þá Friðrik Má Baldursson og Richard Portes, gefur til að minnta ástæðu til að ætla að staðan sé tiltölulega góð í alþjóðlegu tilliti.

Ásakanir þessar eru alvarlegar þar sem

þær beinast einnig að íslenskum eftirlitsaðilum. Sérstaklega Fjármálaeftirlitinu en einnig að hluta Seðlabankanum.

Ítarleg greining þessara tveggja lykilstofnanna gefa ekkert annað til kynna en að íslenska bankakerfið sé mjög stöndugt."

Skrifað af og tekið af vef Hæstvirts Viðskiptaráðherra hr Björgvin G Sigurðssonar.

Vefurinn liggur niðri vegna "viðgerða"

Johann Trast Palmason, 20.10.2008 kl. 18:25

10 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Jóhann hvernig er þetta hægt?

Hólmdís Hjartardóttir, 20.10.2008 kl. 18:40

11 Smámynd: Johann Trast Palmason

Ég veit ekki Hólmdís er svo gáttaður.

Johann Trast Palmason, 20.10.2008 kl. 18:52

12 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Það þarf miklar hreinsanir hér.....en það er erfitt í fámennninu

Hólmdís Hjartardóttir, 20.10.2008 kl. 19:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband