Grænir tómatar í engiferlegi.

......Eitt af því sem er nauðsynlegt með hátíðamatnum á mínu heimili.  Er með nokkra fasta kúnna í áskrift af þessu.  Skreyti þá krukkurnar með fallegum borða og greni.........svo jólalegt.

1 kg litlir grænir tómatar

3 dl vatn

2 dl edik ( ég nota Heidelberg lageredik)

2 tsk sítrónusafi

700 gr ávaxtasykur ( löngu hætt að tíma að kaupa hann nota bara strásykur)

5 negulnaglar

1 tsk smátt söxuð engiferrót

10 græn piparkorn

Tómatarnir eru þvegnir og pikkaðir með gaffli. Allt sem á að fara í kryddlöginn er sett í pott og suðan látin koma upp.tómatarnir soðnir við vægan hita í 4-5 mín.  Sett í hreinar krukkur og lok yfir.Tilbúið eftir 2 sólarhringa en geymist í marga mánuði.

Þessa uppskrift setti Fríða Sophia Böðvarsdóttir í Gestgjafann einhvern tímann á síðustu öld og vona ég að hún fyrirgefi mér.

Verði ykkur að góðu sem þora að prófa.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Það er aldeilis að kveður við nýjan tón hér á háttvirtrar hólmdísarsíðu!

Ertu að breytast úr bálreiðri Breddu í blásaklausa jólasnót!?

Og með hvaða kéti kann oss best að smakkast þessi langstolni lögur?

Magnús Geir Guðmundsson, 5.11.2008 kl. 21:53

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Hamborgarhrygg og jafnvel rjúpu og lambalæri

Hólmdís Hjartardóttir, 5.11.2008 kl. 21:55

3 Smámynd: Víðir Benediktsson

Og hvað heitir svo þetta jukk þegar það er tilbúið? Er þetta einhvers konar pikles?

Víðir Benediktsson, 5.11.2008 kl. 22:32

4 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Víðir þetta heita bara grænir tómatar.....er svona súrsætt með engiferbragði og hefur verið gert á Íslandi í áratugi.  Mjög gott...

Hólmdís Hjartardóttir, 5.11.2008 kl. 22:43

5 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Tek fram að tómatarnir eru heilir..

Hólmdís Hjartardóttir, 5.11.2008 kl. 22:44

6 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Af hverju grænir? ...það er framsóknarlykt af þessu.

Haraldur Bjarnason, 5.11.2008 kl. 22:56

7 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Þessir karlar

Uppskrift hljómar vel

Sigrún Jónsdóttir, 5.11.2008 kl. 22:57

8 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Halli.........egin framsóknarlykt hjá mér þetta er bara jólagrænt

Sigrún ég er vön þessu frá bernsku og finnst þetta gott..á mömmu sem býr til allan fjandann.....og þetta er eitt af því

Hólmdís Hjartardóttir, 5.11.2008 kl. 23:01

9 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

En mér þóttu dýrar krukkur í Húsasmiðjunni  keypti 2.......999kr stykkið

Hólmdís Hjartardóttir, 5.11.2008 kl. 23:04

10 Smámynd: Víðir Benediktsson

Var ekki ódýrara að kaupa rauðkál í Bónus, éta upp úr krukkunum og nota þær síðan undir grænu súrsætu tómatana?

Víðir Benediktsson, 5.11.2008 kl. 23:38

11 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

hvar fær maður litla græna tómata?

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 5.11.2008 kl. 23:47

12 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Örugglega Víðir....en ég nota niðursuðukrukkur

Jakobína Ingunn fékk þá núna í Hagkaup Kringlu...stundum fengist í Fjarðarkaup...stundum þurft að heimsækja grænmetisbónda

Hólmdís Hjartardóttir, 5.11.2008 kl. 23:51

13 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Spennandi uppskrift, en ég hugsa að ég nenni ekki að búa svona til. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 6.11.2008 kl. 02:30

14 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Hljómar mjög vel.Ætla ad prófa tetta  tad er ekki svo dýrt í henni danmörku enntá tó margt  hafi hækkad mikid .Madur getur leift sér adeins.

Kvedja frá mér.

Gudrún Hauksdótttir, 6.11.2008 kl. 07:58

15 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Jóna Kolbrún...its your loss

Jyderupdrottning.....verði þér að góðu

Hólmdís Hjartardóttir, 6.11.2008 kl. 08:11

16 identicon

Ég hef verið fastur áskrifandi í mörg ár og þetta þykir ómissandi á jólaborðinu ,ég hef stundum tekið þátt í að afla tómata þá jafnan í Hveragerði hjá ræktendum.

En þetta er ómissandi á okkar jólaborði takk í gegnum árin frá okkur á Bugðulæk 

Arndís Gudnadottir (IP-tala skráð) 6.11.2008 kl. 22:03

17 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Takk Addý

Hólmdís Hjartardóttir, 6.11.2008 kl. 23:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband