17.11.2008 | 11:44
Á að lækka eftirlaunaaldur?
.....Mér finnst einboðið að skoða það nú þegar atvinnuleysi fer hratt vaxandi. Það ætti að minnsta kosti að bjóða það sem valkost að geta farið fyrr á eftirlaun. Þetta gæti verið liður í því að sporna við fólksflótta.....en það tel ég að ætti vera forgangsverkefni stjórnvalda núna. Reynsla Færeyinga er sú að það fólk sem flúði land í þeirra kreppu hefur ekki snúið til baka. Við höfum ekki efni á að missa fólk á besta aldri úr landi.
Vinnumálastofnun er farin að benda fólki á að leita sér að störfum erlendis. Og margir eru að fara. Enn fleiri eru að hugsa sinn gang.
Ég vil líka ítreka það að það ætti að breyta lögum um séreigarlífeyrissjóði á þann veg að hægt sé að nota peningana til að greiða niður skuldir.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Sammála....að sjálfsögðu
Sigrún Jónsdóttir, 17.11.2008 kl. 12:29
Að sjálfsögðu
Hólmdís Hjartardóttir, 17.11.2008 kl. 12:37
Aðsjálfsögðuaðsjálfsögðuaðsjálfsögðu, en ekkert er samt nýtt undir sólinni, munum að mikill fólksfjöldi flutti fyrir um 40 árum til Ástralíu og víðar, skilaði sér nú aftur þó, m.a. nokkrir ættingjar mínir!
Magnús Geir Guðmundsson, 17.11.2008 kl. 23:17
Fólk hefur flúið land áður.....sumir koma tilbaka aðrir ekki
Hólmdís Hjartardóttir, 17.11.2008 kl. 23:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.