19.11.2008 | 09:00
Ríkið gefur eftir skatt............
......Í ljósi þess að ríkið hefur komið þegnum sínum á vonarvöl er sjálfgefið að fella niður þennan skatt af séreignarlífeyrissparnaði. Alls ekki er gert ráð fyrir þessu sem tekjum í ríkissjóð. Fólk var að safna þessu til að eiga til efri áranna. Það er því neyðarráðstöfun að borga niður lán með þessu. Einnig verður að leggja niður hina afar ósanngjörnu verðtryggingu lána. Ef það kemur illa við Íbúðalánasjóð verður ríkið að finna fjármögnunarleið fyrir hann.
Auk þess legg ég til að eftirlaunaósóminn verði felldur niður strax. Að það hafi ekki verið þegar gert er til skammar fyrir Alþingi.
Svo bíður maður eftir bombum og bommertum dagsins.
Skattur af sparnaði strax í vasa ríkisins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:09 | Facebook
Athugasemdir
Þú kemur með svo skemmtilega og trúverðuga brandar á hverjum degi.
Já hvað verður það í dag og hvað á morgun
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 19.11.2008 kl. 13:31
Já Milla mín þetta eru skrýtnir tímar
Hólmdís Hjartardóttir, 19.11.2008 kl. 14:43
Ætli við getum nokkuð látið okkur detta í hvað gerist næst. Það heitasta í dag finnst mér ver hvernig verið er að slá skjaldborg um Baldur ráðuneytisstjóra í fjölmiðlum vegna innherjaviðskipta hans.
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 19.11.2008 kl. 15:17
Það er einn skandallinn Jakobína
Hólmdís Hjartardóttir, 19.11.2008 kl. 15:24
Ég vona bara að þeir slái skjaldborg vel utan um hvorn annan,
þá verður hægt að taka hana í einu lagi og lenda henni á Grænlandsjökli
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 19.11.2008 kl. 17:35
Hólmdís Hjartardóttir, 19.11.2008 kl. 17:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.