Nei Ingibjörg

......................Fólk er í áfalli.........þjóðin er í áfalli.  Þúsundir að missa vinnuna og heimilin.  Og þetta er ekki búið..........fjarri því.  Við köllum eftir aðgerðum sem bjarga heimilinum. Við köllum eftir aðgerðum sem draga úr áfallinu. Við getum kallað það áfallahjálp.  Burt með verðtryggingu á lánum.    Hvernig á þetta að ganga upp?   Það getur ekki gert það.   Hvenig ætlið þið að sporna við að þúsundir flýja land?  
mbl.is Áfallastjórnuninni lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sammála!!

Ragnheiður Arna Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 22.11.2008 kl. 14:19

2 Smámynd: Haukur Nikulásson

Óstjórn þessa lands hefur farið fram fyrir opnum tjöldum og helstu leikendur hafa sannað sig óhæfa. Liðið sem kom okkur á hausinn er ekkert að fara því þau eru að fá nýja sendingu af aurum til að setja krumlurnar sínar í.

Umburðarlyndi fyrir glæpum komst með neyðarlögunum á nýrra og hærra stig en nokkurn tíma áður. 

Haukur Nikulásson, 22.11.2008 kl. 14:49

3 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Þetta er rétt að byrja. Kreppan á eftir að skella á með meiri krafti eftir jól. Gaman að hitta ykkur í dag.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 22.11.2008 kl. 19:10

4 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Ástand margra nei ekki gott og horfurnar dökkar. En ég myndi vilja sjá almennilega og alvöru úttekt á lánastöðunni, að Íbúðalánasjóður setti fram upplýsingar og þá hverjir og nokkurn vegin hversu margir þeir eru sem virkilega eru komnir í þrot eða á leiðinni. Flestir skulda jú, en eru ærið misvel/ílla settir, komnir misjafnlega langt með sín lán og þau mishá til mislangs tíma.

Einhver greiðslujöfnun er nú í boði, vonandi gagnast það einhverjum.

Hvað segirðu svo annars um mótmæli dagsins!?

Magnús Geir Guðmundsson, 22.11.2008 kl. 21:39

5 Smámynd: Víðir Benediktsson

Hún er út í skurði kellingin. Hélt ræðu í dag þar sem hún firrti sinn flokk allri ábyrgð. Þetta næstum því eins ræða og Davíð hélt á dögunum.

Víðir Benediktsson, 22.11.2008 kl. 21:52

6 Smámynd: Rannveig H

Fyrst hugsum við um fólkið og svo flokkinn, eða engir græða nema andstæðingar okkar ef það verða kosningar. Ég hélt að ég væri með ofheyrnir. Firring dauðans!

Rannveig H, 22.11.2008 kl. 22:15

7 Smámynd: Víðir Benediktsson

Smá tölfræði. Samfylkingin fékk tæplega 27% atkvæða í síðustu kosningum. Þannig séð eru andstæðingar hennar 73% þjóðarinnar. Ef engin græðir nema þessi 73% er það ekki nokkuð ásættanlegt? Hver veit nema tuttugu og sjö prósentin fái eitthvað líka?

Víðir Benediktsson, 22.11.2008 kl. 22:25

8 identicon

"Fyrst kemur fólkið og svo flokkurinn" en hvaða fólk á hún við?

Húnbogi Valsson (IP-tala skráð) 23.11.2008 kl. 00:08

9 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Takk öll fyrir innlit.

Vala það er hending ef maður finnur einhvern í þessum mannfjölda.

Húnbogi góð spurnig

það sem fer mest fyrir brjóstið á mér er að heyra ekkert um aðgerðir sem duga fólki.............það er allt svo máttlaust

Hólmdís Hjartardóttir, 23.11.2008 kl. 00:22

10 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ætlun stjórnarinnar er að gera nákvæmlega ekkert, láta líðinn borga fyrir alla hina og hirða af okkur húsnæði okkar. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 23.11.2008 kl. 00:38

11 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Samfó fékk reyndar meira í kosningunum, hlýtur að hafa verið um 29%, tapaði bara einum manni frá kosningum þar á undan er flokkurinn fékk um 31%

Magnús Geir Guðmundsson, 23.11.2008 kl. 00:59

12 Smámynd: Víðir Benediktsson

Flokkur
Atkvæði %Þingmenn
Framsóknarflokkurinn 21.34911,727
Sjálfstæðisflokkurinn 66.74936,6425
Frjálslyndi flokkurinn 13.2337,264
Íslandshreyfingin 5.9533,270
Samfylkingin 48.74226,7618
Vinstri hreyfingin - grænt framboð 26.13614,359
Gild atkvæði 182.16210063
Auð og ógild atkvæði 2909  
Samtals greidd atkvæði 185.071  

Víðir Benediktsson, 23.11.2008 kl. 10:45

13 Smámynd: Víðir Benediktsson

Og því til viðbótar. samfylkingin tapaði tveimur en ekki einum. Fór úr 20 þingmönnum í 18 Samt túlkaði Ingibjörg úrslitin sem sigur. Eini stjórnarandstöðuflokkurinn í Íslandssögunni sem hefur unnið varnarsigur. Hún er alltaf jafnfyndin sú gamla. Reytir af sér brandarana.

Víðir Benediktsson, 23.11.2008 kl. 10:53

14 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Það á að kjósa á vormánuðum og ekkert bull með það annars vil ég minna á bloggfærslu mína þar sem ég segi hvað mér finnst hvað eigi að eigi að gerast næstu dagana.

Magnús Paul Korntop, 23.11.2008 kl. 14:25

15 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Takk Víðir og Magnús

Hólmdís Hjartardóttir, 23.11.2008 kl. 14:26

16 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Aah, eitthvað farið að leka úr minni vóru, en seisei, gerir nú ekkert ef það er nú ekki verra en þetta. En úrslit kosninga, hvernig sem þau liggja, eru alltaf góð hjá leiðtogum flokkanna, svo lengi sem þau eru ekki beinlínis slæm, gömul saga og ný að þeir túlka úrslitin alltaf eins jákvætt og mögulegt er.

Frægur er nú "Varnarsigur" B 2003, fékk auðvitað meira en allar skoðanakannanir höfðu spáð og nóg til að hanga áfram með D, sem þó fékk slappa útkomu, þetta var þó líka ein lélegasta útkoma B frá upphafi.

Punktur.

Magnús Geir Guðmundsson, 23.11.2008 kl. 15:16

17 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Magnús það vinna alltaf allir kosningar

Hólmdís Hjartardóttir, 23.11.2008 kl. 15:31

18 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Jamm, ég fékk einu sinni tvo rétta í Lottó og vann!?

Hinvs vegar tapa ég miklu oftar en vinn og ef ég vinn, þá er ég oft svo skrambi sniðugur að tapa því aftur.

Á þetta alveg sérstaklega við um fyrirbærið KONUHJÖRTU!

Magnús Geir Guðmundsson, 23.11.2008 kl. 22:11

19 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Æ grey kallinn

Hólmdís Hjartardóttir, 23.11.2008 kl. 22:44

20 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Engin grey karl, bara strákstauli ungur og sætur!

Magnús Geir Guðmundsson, 23.11.2008 kl. 23:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband