8.10.2009 | 17:47
Háskaleikur.
,,,,,,,,,,,,,,,Og á sama tíma er verið að auka fjárveitingar til utanríkisþjónustu og til RUV.
Landspítali hefur búið við manneklu árum saman. Og nú á að herða að. Spítalinn getur ekki neitað að taka við sjúklingum. Og samkvæmt sjúklingalögum eigum við rétt á heilbrigðisþjónustu. Dæmið getur ekki gengið upp svo einfalt er það. Og við höfum ekki efni á að missa hundruð heilbrigðisstarfsmanna úr landi. Mér verður hreinleg illt að heyra á sama tíma um nýtt hátæknisjúkrahús. Við verðum að bíða með það. ( en hvar eru annars símapeningarnir?)
Þegar staðan er svona svört þarf að henda því út sem við getum verið án. Í stað þess að setja meira fé í Ruv á að sjálfsögðu að leggja Rás 2 niður.
Utanríksþjónustuna á að sjálfsögðu að skera niður...............almennur Íslendingur getur vel verið án hennar.
Aðskilja ríki og kirkju.
Hætta að styrkja stjórnmálaflokkana.
En umfram allt skulum við halda í heilbrigðis og menntakerfi.
Verulega skert þjónusta við sjúklinga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Sammála Hólmdís! Mér verður flökurt að lesa um raunveruleikafyrringu stjórnarinnar í hinum ýmsu niðurskurðum. Hvernig vogar þetta fólk sér að koma með svona tillögur og láta allt bitna á þeim sem minna mega sín ?????????? Hreint og beint ógeðslegt.
anna (IP-tala skráð) 8.10.2009 kl. 19:02
óskiljanlegt - aukafjárveiting til RUV - hvers konar vitleysa er þetta eiginlega?? Ég bara spyr.
Bestu kveðjur til þín Hólmdís, hugsa oft til þín þarna í Danaveldi
Sigrún Óskars, 8.10.2009 kl. 19:59
Takk fyrir innlit stelpur:)
Hólmdís Hjartardóttir, 8.10.2009 kl. 20:38
Írar eru farnir að skera niður klósetpappírinn í sparnaðarskini. En íslenska aðferðin er miklu víðtækari því sveltandi þjóð kúkar minna.
Offari, 8.10.2009 kl. 21:27
Sveltandi þjóð fær þá, að öllum líkindum, síður kransæðastíflu og sykursíki. Hættum að nota salernispappír og notum tuskur sem hægt er að skola og nota aftur ; D
Húnbogi Valsson (IP-tala skráð) 8.10.2009 kl. 23:33
Já hvar ætli símapeningarnir séu? það væri fróðlegt að vita..
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 8.10.2009 kl. 23:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.