Alveg milljón

Það ku vera þó nokkrir sem láta skreyta hjá sér fyrir milljón utanhúss fyrir jólin. Ég elska fallegar jólaskreytingar. En hafandi fengið um það bil 3 millur útborgaðar á árinu (ENDA BARA HJÚKRUNARFRÆÐINGUR) ógna mér þessi útgjöld í jólaskreytingar. Og margir hafa fengið miklu minna en ég. Ég held að ef ég hefði átt milljón til jólaskreytinga hefði ég notað eitthvað af þessari upphæð til að styrkja þá sem minnst mega sín. En hver veit nema þessir sömu aðilar hafi líka látið gott af sér leiða. Ég splæsti í útiskreytingar fyrir 3500kr og fannst ég bara eyðslusöm. En jólin mín verða góð þó ég vinni flesta rauða daga eins og venjulega. Kannske maður reyni að komast á þing eða í kennslu til að geta lagst í lestur um jól.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband