Skærur

Ég vil endilega fá tillögur um skærur gegn matvöruverslunum inn á síðuna mína. Og ábendingar um óeðlilegar hækkanir. Mér hefur dottið í hug að ef til vill væri best að sniðganga margar verslanir í einu......gætum td verslað eingöngu í Bónus eða Krónunni.....endilega komið með tillögur. Ég veit að fólk er að taka við sér víða. Forstjóri Haga segir hækkanir ekki verða eins miklar og áður var talið. 20. apríl ætti þetta að geta byrjað........dreifið boðskapnum áfram. Þetta mun skila árangri.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Ég held að það sé skynsamlegast að skipuleggja þetta þannig að fyrst er tímasetning ákveðin, geta verið fleiri en ein og tvær, síðan hvaða verslanir við ætlum að sniðganga. Vera svo samtaka í því að sniðganga viðkomandi verslun. Eru föstudagar ekki fantagóðir eða laugardagar? Hvenær verslar fólk helst?

Setja sem sé upp plan en ekki of flókið, koma svo orðsendingunni á framfæri í fjölmiðlum með góðum fyrirvara og svo auðvitað út um allt í bloggheimum 

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 9.4.2008 kl. 20:45

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Já mjög margir versla á laugardögum. Væri góður dagur að byrja á

Hólmdís Hjartardóttir, 9.4.2008 kl. 20:53

3 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Númer 1:  HÆTTA AÐ VERSLA Á SUNNUDÖGUM.  

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 9.4.2008 kl. 21:51

4 Smámynd: Brynja skordal

já sammála Lilju Ekki versla á sunnudögum....En þar sem bæði Bónus og krónan eru í mínu bæjarfélagi þá er ekki um margt að velja hér á bæ en fer til skiptist í þessar búðir en þá aðalega eru innkaup gerð hér á föstudögum og einstaka sinnum eru það laugardagar sem verða líka til verslun góða nótt

Brynja skordal, 9.4.2008 kl. 23:59

5 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Nei auðvitað á ekki að versla á sunnudögum.

Hólmdís Hjartardóttir, 10.4.2008 kl. 00:31

6 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

En að byrja laugardaginn 19.apríl....og sniðganga allar verslanir nema Bónus og Krónuna? Taka viku....Þá þyrfti að senda dagblöðum smá tilkynningu á miðvikudaginn.   Hvað segið þið við því????

Hólmdís Hjartardóttir, 10.4.2008 kl. 00:53

7 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ég er tilbúin. Að versla aðeins við Bónus eða Krónuna þann dag, og svo í heila viku þar á eftir

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 10.4.2008 kl. 02:16

8 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Hljómar vel Hólmdís.

Sigrún Jónsdóttir, 10.4.2008 kl. 14:34

9 Smámynd: Beturvitringur

Bónus er m.a. ódýr vegna takmarkaðs afgreiðslutíma. Kröfur um lengri afgr.tíma, s.s. um helgar, hljóta að hækka verðið, gefur auga leið; starfsfólk, raforka og og og

Klukkubúðirnar og Samkaup (Strax-búðir) eru líka til v eftirspurnar um langan afgr.t. Ergo mjög dýrt að halda opnu allan liðlangan daginn, fram á kvöld (jafnvel allan sólarhringinn) og um helgar.

Netto er mjög nálægt Bónus í verði en þeir eru með meira úrval og liðlegri afgr.tíma og e.t.v. þ.a.l. eitthvað dýrari.

Það verður að gæta þess að mótmæla ekki bara til að mótmæla og að beina því í rétta átt. Það er ekki hægt að ætlast til þess að fá "bónusverð" þegar maður mætir aðfaranótt sunnudags og kaupir tilbúinn mat sem á aðeins eftir að tyggja smá.

Það er ekki málefnalegt að giska á e-ð. Hafi aftur á móti e-r tekið eftir "óeðlilegum" verðbreytingum hjá einni og sömu versluninni og á samskonar vöruflokkum er hægt að beita sér.

Hissa á bónusóbeitarkonunum. Ég nöldra stundum v. ónægju með verðmerkingar, ástand vöru eða þ.u.l. og fer alltaf sátt. Ég hlýt að vera svona grybbuleg :)

Beturvitringur, 10.4.2008 kl. 23:02

10 Smámynd: Sporðdrekinn

Ég verslaði einmitt oft í Nettó, Nettó er svona mitt á milli Bónus og Hagkaup. Meira úrval, ferskara grænmeti og ávextir þar en í Bónus. Og svo aftur minna úrval en í Hagkaupum. Ég fíla Nettó    En á auðvitað ekkert að vera að skipta mér af hér

Sporðdrekinn, 11.4.2008 kl. 01:18

11 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Takk fyrir innlit...

Hólmdís Hjartardóttir, 11.4.2008 kl. 01:29

12 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Sammála þér Beturvitrungur þaðer ekki málefnalegt að mótmæla bara einhverju. En það er deginum ljósara að það er okur í matvöruverslunum. Aðalatriðið er að við verðum meðvitaðri ekki satt??

Hólmdís Hjartardóttir, 11.4.2008 kl. 01:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband