Vitlaust talið.

...Eg hef lengi verið sannfærð um að Íslendingar eru miklu fleiri en gefið er upp opinberlega. Hafið þið tekið eftir þegar stóratburðir gerast erlendis er ALLTAF Íslendingur á staðnum til að lýsa atburðinum. Nú var kona í Burma þegar fellibylurinn reið yfir.   Ég man sérstaklega eftir jarðskjálftum í Tyrklandi fyrir nokkrum árum. Þá var að sjálfsögðu talað við Íslenska konu sem var á staðnum. Svo fór hún að bera skjálftana saman við skjálftann í Kobe í Japan....hún hafði nefnilega verið þar líka!!

Ef maður skreppur út fyrir landsteinana hittir maður Íslendinga á ótrúlegustu stöðum. Þeir eru bókstaflega allstaðar. Kona stoppaði mig í San Fransisco og bað mig um eld......á íslensku!!!

  Nú ef  skoðaðar eru verslanir á höfuðborgarsvæðinu sér hvert mannsbarn að þær hljóta að þjóna fleirum en 300þús hræðum.  Hér eru seldir fleiri jeppar en á Norðurlöndunum til samans....segir það ekkert um fjöldann sem hér býr?  Ég legg til að hér verði gert almennilegt manntal.Wink


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Mér fannst ég vera í útlöndum um síðustu helgi þegar ég var að versla í Bónus, ég heyrði engann tala íslensku.  Það var bara töluð útlenska bæði viðskiptavinir og starfsfólk   Ég er fylgjandi því að gera manntal og telja útlendingana líka

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 7.5.2008 kl. 01:52

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Þú þarft að tala pólsku til að versla í Bónus.

Hólmdís Hjartardóttir, 7.5.2008 kl. 01:54

3 Smámynd: Sigrún Óskars

Fyrir 20 og eitthvað árum vorum við nokkur stödd á pínulítilli eyju í Karabíska hafinu þegar ég sá mann sem horfði svo á okkur. Ég spurði: Where are you from og hann svaraði: frá Siglufirði.  Það eru Íslendingar allstaðar - sammála.

Sigrún Óskars, 7.5.2008 kl. 12:27

4 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Sigrún, mannstu við hittum slatta af íslendingum í San Juan, NY og Canada. Kveðja.

Hólmdís Hjartardóttir, 7.5.2008 kl. 12:38

5 Smámynd: Sigrún Óskars

Já, karlinn frá Siglufirði var á eyjunni St Thomas

Sigrún Óskars, 7.5.2008 kl. 14:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband