17.5.2008 | 23:33
18 rauðar rósir
Skrýtinni vinnutörn lokið. Vann á endurhæfingadeild í gærkvöldi. Kom ekki sendill með rósavönd mikinn og taldi ég víst að þær væru til mín frá aðdáanda. Svo reyndist ekki vera í þetta skiptið. Þetta voru 27 rauðar rósir næstum meterslangar. Til starfsmanns. Ég tók við vendinum og var bókstaflega með fangið fullt. Rósirnar voru frá fyrrverandi eiginmanni í tilefni 27 ára brúðkaupsafmælis!! Við vorum þarna nokkrar fyrrverandi eiginkonur....sem eigum ekki von á svona glaðningi á okkar brúðkaupsdögum......
í morgun vann ég svo á öldrunardeild fram yfir hádegi......þá skrapp ég í Hafnarhúsið og skoðaði sýningu....fannst einna merkilegast að skoða ljósaherbergi Carlos Cruz-Diez. Eftir það kvöldvakt á barnadeild. Ótrúlega fjölbreyttur sólarhringur en gott að eiga frí á morgun.
Og yngri unglingurinn á heimilinu sefur vært í stofusófa og það þykir mér gott
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 23:35 | Facebook
Athugasemdir
Vá það hefði nú verið flott að fá svona stóran blómvönd Börnin eru alltaf best þegar þau sofa!!
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 17.5.2008 kl. 23:46
Flókið líf Hólmdís, en samt mikil tilbreyting, svo ekki sé meira sagt.
Góða nótt
Sigrún Jónsdóttir, 17.5.2008 kl. 23:47
Já þá vaknar móðurástin
Hólmdís Hjartardóttir, 17.5.2008 kl. 23:47
Hafðu ljúfan sunnudag elskuleg
Brynja skordal, 18.5.2008 kl. 00:07
Voruð þið nokkuð fyrrverandi eiginkonur SAMA mannsins?
Spyr sá er ekki veit.
Eiríkur Harðarson, 18.5.2008 kl. 00:55
Þetta er allt mjög óljóst hjá þér Hólmdís, og er það nú frekar ólíkt þínum stíl, en hver var það sem fékk rósir? Yfirlæknirinn?
Guðmundur Brynjólfsson (IP-tala skráð) 18.5.2008 kl. 01:08
Það er gaman að ykkur piltar!!!
Hólmdís Hjartardóttir, 18.5.2008 kl. 01:14
Njóttu þess að eiga frí á morgun. Ekki skil ég hvernig þú ferð að því að vera á kvöldvakt-morgunvakt. Ég er löngu búin að missa getuna til þess. Næ yfirleitt að sofna rétt áður en ég á að mæta á morgunvaktina. Þú ert hetja
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 18.5.2008 kl. 01:45
GJ.....þú þekkir það að lifa á hjúkkulaunum einum saman....engin hetjudáð heldur nauðsyn
Hólmdís Hjartardóttir, 18.5.2008 kl. 02:00
Og ég þoli ekki að vinna kv/mv!!!!
Hólmdís Hjartardóttir, 18.5.2008 kl. 02:00
Ég var reyndar ekki að djóka 100%. Þ.e.a.s. ég náði ekki alveg hver það var sem fékk rósirnar. Það skiptir svo sem engu - ekki sendi ég þær M.ö.o. varst það þú eða samstarfskona þín, fráskilin? Fyrirgefðu þráhyggjuna
Guðmundur Brynjólfsson (IP-tala skráð) 18.5.2008 kl. 02:38
Fallegt
Sporðdrekinn, 18.5.2008 kl. 04:08
Það er aldeilis blómvöndurinn.
Ég ætla að eyða deginum í hafnarhúsinu í dag.
Ragga (IP-tala skráð) 18.5.2008 kl. 08:27
Guðmundur....það var starfsmaður, kona sem fékk rósirnar. Hún er fráskilin eins og ég og fleiri sem vorum þarna.
Hólmdís Hjartardóttir, 18.5.2008 kl. 11:23
Þú ert dugleg Hólmdís að vinna svona. Þú hefðir sko alveg átt skilið að fá þessar rósir. Njóttu dagsins.
Sigrún Óskars, 18.5.2008 kl. 13:59
Sigrún við eigum allar skilið rósir
Hólmdís Hjartardóttir, 19.5.2008 kl. 11:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.