22.5.2008 | 02:32
Offramboð á tónleikum/ að velja og hafna.
Ég hefði gjarnan viljað vera á tónleikum John Fogertys í kvöld. Hann á mörg skemmtileg lög sem flestir þekkja. Paul Simon á leiðinni...sennilega sleppi ég honum en það væri samt gaman að fara. Næsta mánudag ætla ég að hlusta á Bob Dylan...keypti miða á fullu verði en nú er boðið 2 fyrir einn. Salan greinilega dræm þótt þarna sé mjög merkilegur listamaður á ferð. Og ég á miða á Clapton í haust en miðar á hans tónleika seldust strax upp. Sá Jethro Tull í haust. Ég er frekar dugleg að fara á tónleika og skemmti mér oftast vel en þetta er dýrt hobbý. Mér skilst að vegna okkar ónýtu krónu eigi tónleikahaldarar frekar erfitt um þessar mundir. Fyrir nokkrum árum var það viðburður ef þekktir tónlistarmenn komu hér en núna eru margir áhugaverðir tónleikar á hverju ári. Ég hef farið á marga spennandi tónleika í gegnum tíðina og hef lifað á því lengi. Bara einu sinni borgað mig til útlanda sérstaklega til að fara á tónleika....og það var á Rolling Stones. Réttlætti kostnaðinn fyrir mér einhvern veginn þannig....so...fer ekki fullt af fólki BARA til að horfa á fótbolta.
Athugasemdir
Finnst þér auglýsingin með Rolling Stones laginu flott? She's like a rainbow, ég fæ hroll í hvert skipti sem ég heyri þetta lag
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 22.5.2008 kl. 02:39
ÞÚ ERT BILUÐ
Hólmdís Hjartardóttir, 22.5.2008 kl. 02:41
Mér finnst lagið gott......þekki ekki auglýsinguna
Hólmdís Hjartardóttir, 22.5.2008 kl. 02:43
Það er bara fullt að gerast hjá konunni
Sporðdrekinn, 22.5.2008 kl. 03:39
Ég vildi að ég hefði efni á að fara oftar á tónleika, og líklega hefði maður það ef maður ætti ekki fullt af öðrum, líka dýrum, áhugamálum. Maður verður víst að velja og hafna.....
Lilja G. Bolladóttir, 22.5.2008 kl. 05:18
já stelpur maður verður bara að velja og hafna en góðir tónleikar brjóta upp hversdaginn,,,og lifa lengi í minningunni.
Hólmdís Hjartardóttir, 22.5.2008 kl. 10:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.