Stórasta landið

..komin heim.  Þegar lent var í Keflavík í kvöld var klappað fyrir landsliðinu í handbolta. Full þota af fólki klappaði fyrir hetjunum í Peking. Man ekki eftir svona í flugvél fyrr.  Annars vorum við að hugsa um og breyta áætlun.....fljúga bara til Peking og svo heim strax eftir leik.  Hefði nú verið gaman.

Við komum til Reykjavíkur  rétt eftir miðnætti og umferðin var ótrúlega lítil miðað við að það er Menningarnótt.  Litlu systur yfirgáfu mig á BSÍ....voru á leið í menningarpartý. Leigubílstjórinn sagði óvenjurólegt....það er greinlegt að allir ætla á fætur í fyrramálið að horfa á handbolta. Ég er búin að stilla vekjaraklukkuna....svo er bara að tína allt brothætt og oddhvasst út úr stofunni........

Áfram Ísland.

  








« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ég ætla að horfa á leikinn uppi í íþróttahúsi hérna á Nesinu á risaskjá.  Ég verð að fara að sofa bráðlega, krakkarnir mínir ætla líka að koma með að horfa á leikinn.  Og velkomin heim..  Áfram Ísland, áfram Ísland

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 24.8.2008 kl. 02:22

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

já áfram Ísland

Hólmdís Hjartardóttir, 24.8.2008 kl. 02:29

3 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Áfram Ísland !!! 

Lára Hanna Einarsdóttir, 24.8.2008 kl. 02:44

4 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Og velkomin heim... 

Lára Hanna Einarsdóttir, 24.8.2008 kl. 02:44

5 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ég fór í Dogma verslunina á Laugaveginum í kvöld til þess að kaupa mér bol með áletruninni " Ísland er stórasta landið" en því miður konan sem var á undan mér keypti síðasta bolinn, svo var annar bolur sem vakti áhuga minn þar stóð eitthvað þannig " ég ætla að vera næsti, svo kom mynd af merki Reykjavíkurborgar, Borgarstjórinn.  Flott búð þarna, þeir lofa að eiga svona boli á mánudaginn.  Þá ætla ég að kaupa mér einn.

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 24.8.2008 kl. 02:46

6 Smámynd: Sporðdrekinn

Velkomin heim

Sporðdrekinn, 24.8.2008 kl. 06:52

7 Smámynd: Tína

Velkomin heim krútta. Trúi því afskaplega vel að það hafi verið freistandi að fljúga frekar til Peking. Gæfi sko mikið fyrir að vera þarna núna. En Áfram Ísland.

Tína, 24.8.2008 kl. 07:13

8 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

ohh....hvað þetta er spennandi.  Takk fyrir Lára Hanna.

Jóna Kolbrún.....þetta er flott búð....góðir bolir

Hólmdís Hjartardóttir, 24.8.2008 kl. 07:58

9 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Velkomin heim Hólmdís, ég vona að fríið hafi verið ljúft

Sigrún Jónsdóttir, 24.8.2008 kl. 08:25

10 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

takk Sigrún.....ég er að farast úr spennu....en fríið var gott

Hólmdís Hjartardóttir, 24.8.2008 kl. 08:48

11 Smámynd: Eiríkur Harðarson

Kærkomið að fá þig heim í rigngninguna, vona að þú hafir skemmt þér jafn vel og ég gerði. Toppurinn hefði verið ef þú hefðir komist til Peking.

Eiríkur Harðarson, 24.8.2008 kl. 22:44

12 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Eiríkur þetta var ljúft....

Hólmdís Hjartardóttir, 25.8.2008 kl. 17:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband