Gengi matadorspeninganna ríkur upp.

.........Eins gott að ganga tryggilega frá þeim.  Þeir hafa haldið betur verðgildi sínu en þeir fáu aurar sem manni hefur tekist að spara.  Fólk hefur verið hvatt til að spara en til hvers?  Ég man hvað ég fékk fyrir lambapeningana mína þegar ég loksins tók þá út.   Öll lömbin mín dugðu fyrir lambalærissneiðum fyrir 2 á sínum tíma.  Staðan er eins í dag.  Betra að eiga lamb á fæti eða í kistu en lamb í bók.   Þjóðin er hvött til að spara.   Spara hvað?  Til hvers?...   Stór hluti af þjóðinni hefur of lágar tekjur til lágmarksframfærslu.   Lánin okkar hækka dag frá degi.  Matvælaverð er í allra hæstu hæðum.   Við hættum að fara til læknis, tannlæknis , hvað þá heldur í klippingu eða á kaffihús.

Svo hlustar maður á Sjálfstæðisflokkinn guma af traustri efnahagsstjórn.    Reyndar hef ég ekkert heyrt í fjárhirðinum síðan hann datt í það í réttunum. Mér sýndist  hann ágætur í því svo ég sé nú dálítið pós.

Það hefur verið gamblað með lífeyrissjóðina okkar.

Nei....notið aurana hratt og örugglega....svo sem enginn vandi í dag.

 


mbl.is Krónan veiktist um 2,48%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Þú ert "óborganleg" Hólmdís.  Annars er ekki hlæjandi að þessum fjanda.

Sigrún Jónsdóttir, 17.9.2008 kl. 21:04

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Takk Sigrún en það ert þú nú líka   En öllu gríni fylgir nokkur alvara.

Hólmdís Hjartardóttir, 17.9.2008 kl. 21:11

3 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Hún veiktist. Hvar eru umönnunarstéttirnar nú? - Farið báðar og hlynnið að þessum sjúklingi. - Sigrúnu á þing!!

Haraldur Bjarnason, 17.9.2008 kl. 21:18

4 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Sigrúnu á þing í fyrradag.  Haraldur við komum henni á þing!!!!!!!!!!!!

Hólmdís Hjartardóttir, 17.9.2008 kl. 21:23

5 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Viljiði hættessu krakkar, það er ljótt að stríða fólki og ég veit að ykkur þykir vænna um mig en þetta.

Ég er búin að vera virk í pólitísku starfi, það hentar mér ekki

Sigrún Jónsdóttir, 17.9.2008 kl. 21:29

6 Smámynd: Haraldur Bjarnason

....er þetta einelti ?

Haraldur Bjarnason, 17.9.2008 kl. 21:35

7 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Sigrún ég skil mætavel að þig langi ekki á þing en við Haraldur erum að hugsa um þjóðarhag...kannski við ættum aðskora á strákinn líka?

Hólmdís Hjartardóttir, 17.9.2008 kl. 21:38

8 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Haraldur þetta er ekki einelti.............við viljum vel

Hólmdís Hjartardóttir, 17.9.2008 kl. 21:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband