Eitt sinn var ég ung og fögur nú er ég bara fögur.

     Nú ríður á að vera fögur sem forðum.  Mun hitta svo marga frá fyrri tíð á eftir.  Undirbúningur  hófst þegar í gærmorgun.  Já þeð tekur tíma og kostar peninga að ná fyrra aðdráttarafli. Byrjað var á að fara í klippingu og strípur til að undirstrika ljóskuna í mér.   Nóttin var erfið  skreið upp í rúm um tvöleytið....en var ítrekað vakin upp af afleggjurunum...svo mjög að ég fór oft fram og kíkti á tölvuna.  Litla barnið vildi fá aura fyrir gosi um þrjúleytið.  Eldra barnið var í mesta basli með að smygla hér inn folaldi.  Henni tókst það. 

Í dag hófst svo sparsl og málningarvinna.

Ætlaði að nota uppáhalds augnskuggann minn................horfinn

og nýja maskarann minn...................................................horfinn

og augnblýantinn...................greip í tómt

Svona er þetta alltaf...............samt hef ég fríkkað svo mikið síðustu klukkustund að ég verð bara feimin að líta í spegil Pinch


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ég þarf ekki einu sinni að vita hvernig þú lítur og finnst þú samt langflottust.

Þú gætir samt farið að setja spegilmyndina í höfundar boxið, svo ég geti þekkt þig í Bónus.

Góða skemmtun

Sigrún Jónsdóttir, 27.9.2008 kl. 17:13

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

hahaaha

Hólmdís Hjartardóttir, 27.9.2008 kl. 17:20

3 Smámynd: Sporðdrekinn

Góða skemmtun falleg

Sporðdrekinn, 27.9.2008 kl. 17:21

4 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Og enn hlægjandi, núna m.a.s. farom að flissa!

Ert örugglega gullfalleg og UNGgæðisleg, flissið ber það með sér!

Magnús Geir Guðmundsson, 27.9.2008 kl. 17:49

5 Smámynd: Hallmundur Kristinsson

Eitt sinn var ég ung og fögur,
ekki feit en varla mögur.
Af mér voru sagðar sögur
sannar eða lognar.
Ekki eru allar fjaðrir af mér flognar.

Hallmundur Kristinsson, 27.9.2008 kl. 19:26

6 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

haha, faglega og fagurlega samsettar hendingar hjá Hallmundi!

Magnús Geir Guðmundsson, 27.9.2008 kl. 19:57

7 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Læsa snyrtivörurnar í öryggishólfi. Þoli ekki uppákomur sem þessar. Er að verða búin að ala svona ósiði úr Kötunni. Loksins....

Hitt er svo annað mál að þú ert falleg með eða án málningarvinnunnar, njóttu bara. Það er númer eitt, tvö og þrjú

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 27.9.2008 kl. 20:57

8 identicon

Er ekki myndin í "höfundar boxinu" skuggamynd af sjálfri þér?

Húnbogi Valsson (IP-tala skráð) 27.9.2008 kl. 21:14

9 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

EInhverjir sem ég þekki sem þú ert að hitta?? góða skemmtun. 

Ásdís Sigurðardóttir, 27.9.2008 kl. 21:54

10 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Góða skemmtun

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 28.9.2008 kl. 00:10

11 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Tú ert bara flott eins og tú ert akkurat núna mín kæra.

Gerdi ekkert til tó vantadi,maskara,meikid,augnskuggann,og allt hitt.

veit tú skemmtier tér vel í gærkveldi.

Fadmlag á tig inn í sælan sunnudag.

Gudrún Hauksdótttir, 28.9.2008 kl. 06:20

12 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Takk  öll og sérstaklega Hallmundur

Hólmdís Hjartardóttir, 28.9.2008 kl. 11:39

13 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Tek undir það, alltaf ástæða til að þakka Hallmundi fyrir kveðskapin sem hann skilur eftir, en hva, á ekki að svara öllum hinum aðdáendunum, t.d. svipta hulu af sjálfri þér, Dís hinnar eilífu fegurðar!?

En mikið held ég að "Dollurnar" þínar séu fínar fyrst þær stela svona öllu steini léttara frá múttu kinnroðalaust, vekja hana miskunarlaust margsinnis upp um nætur og það þegar hún örþreytt leggst loks til hvílu eftir að hafa stritað dagin út og inn til að eiga fyrir öllu draslinu sem þær svo bara stela!

Lífið er dásamlegt!

Magnús Geir Guðmundsson, 28.9.2008 kl. 16:08

14 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Magnús minn er ekki lífið bara dásamlegt!!!!!!!!!!

Hólmdís Hjartardóttir, 28.9.2008 kl. 16:54

15 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Jú, í öllum þessum gráttklökka tregabllús tilverunnar, sem víst er bara rétt að byrja, er það þannig og það jafnvel þótt börnin séu þjófótt, óþekk, lýgin og lauslát!

Magnús Geir Guðmundsson, 28.9.2008 kl. 19:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband