Snilldarhugmynd.

   Stefán Helgi Valsson var með ansi góða hugmynd á blogginu í kvöld.  Bendi ykkur á að lesa það.  Hann vill bjóða fríar ferðir til Íslands núna þegar ferðamannastraumurinn er í lágmarki til að fá inn gjaldeyri og tryggja atvinnu.   Nú getum við sannarlega auglýst okkur erlendis " fáðu mikið fyrir peninginn" Komdu til Íslands.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Í öllu svartættinu verður ódýrt fyrir námsmenn að koma hein um jólin

Haraldur Bjarnason, 3.10.2008 kl. 22:57

2 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Ég á son í framhaldsnámi erlendis og hann, eins og aðrir námsmenn í útlöndum, segir farir sínar aldeilis ekki sléttar. Hann er í Sviss.

Þegar hann kom til Sviss í ágúst 2007 var svissneski frankinn 48 krónur. Hann er núna um 100 krónur. Námslánin eru í íslenskum krónum og hækka ekkert þrátt fyrir gengisfall.

Það er því stór spurning hvort námsmenn hafi efni á að koma heim um jólin, Haraldur... 

Lára Hanna Einarsdóttir, 3.10.2008 kl. 23:16

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

þetta er mjög erfitt fyrir fólk á námslánum erlendis og gengur varla upp. Það verður að hækka námslán.  Það verður að hækka persónuafslátt strax og afnema verðtryggingu af lánum svo venjulegt launafólk fari ekki á vonarvöl.  Samt held ég og trúi að þetta ástand vari ekki lengi. 

Hólmdís Hjartardóttir, 3.10.2008 kl. 23:26

4 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Ástandið svakalegt hjá nemendum erlendis, umræðan ótrúlega lítil þar til á síðustu dögum. Hætt er við að margur flosni upp úr námi ef engar aðgerðir koma á móti.

Annars er þetta þrælgóð markaðsstrategía, ættum að kíla á hana. Ertu með slóðina hjá þessum Helga?

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 4.10.2008 kl. 00:29

5 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Þú ferð bara í bloggleit og setur nafið hans inn....

Hólmdís Hjartardóttir, 4.10.2008 kl. 00:32

6 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Megi "hald" þitt reynast hugljúfur sannleikur og það helst fyrir áramót!

En ef flugið yrði ókeypis, tja, þá ætti hin ljúfa Lára Hanna að endurheimta sonin í jólafríinu og þá jafnvel með bros á vör!?

Það væri víst búið að afnema vísitölubindingu fyrir löngu ef hún virkaði ekki í sumum tilfellum allavega í báðar áttir, almenningur hefur víst líka vissa hagsmuni af henni, en einhliða aftenging lána við hana, það er nú það!?

Magnús Geir Guðmundsson, 4.10.2008 kl. 00:34

7 Smámynd: Ben.Ax. (Benedikt  Jóhannes Axelsson)

Ég er að reyna að hugsa um eitthvað gáfulegt til að segja. Mér dettur ekkert í hug. Er virkilega búið að segja allt gáfulegt um ástandið á Íslandi í dag?

Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson), 4.10.2008 kl. 00:35

8 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Magnús ekki skemmileggja þetta fyrir mér................lánin mín hækka og hækka

Bendikt Jóhannes........enginn hefur verið nægilega gáfulegur enn.....en bjóst þú á Húsavík?

Hólmdís Hjartardóttir, 4.10.2008 kl. 00:40

9 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Neinei, ekki skemma, skammskamm á strákin, nema hvað að mig minnir endilega að bæði verkalýðsleiðtogar og vinnuveitendur hafi bent á þetta á móti.

Skemmileggja, skemm ti leg ný hlið á hugtakinu.

Magnús Geir Guðmundsson, 4.10.2008 kl. 01:57

10 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Mér finnst þessi hugmynd mjög góð. Bjóða fríar ferðir til Íslands.

Jón Halldór Guðmundsson, 4.10.2008 kl. 11:47

11 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Í boði hvers? FL Group? Stoða? ;)

Ágætis hugmynd en það þyrfti e.t.v. að útfæra hana betur.

Guðmundur Ásgeirsson, 4.10.2008 kl. 17:54

12 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

ja þetta er leið til að ná í gjaldeyri.  Guðmudur lestu bloggið hans Stefáns.

Hólmdís Hjartardóttir, 4.10.2008 kl. 17:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband