6.ber. Ógleymanlegur afmælisdagur.

.......nokkrir aðilar hafa gert þennan afmælisdag  minn ógleymanlegan og kann ég þeim engar þakkir fyrir.

Fyrst ætla ég að nefna ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sem gáfu vinum sínum bankana án þess að setja þeim nokkrar reglur eða hafa með þeim eftirlit.

Bankastjórar á ofur -ofurlaunum sem þeir fengu fyrir að sigla þeim og þjóðinni í þrot.

Útrásarvíkingunum sem eiga einnig þátt í að koma okkur á hausinn.

Seðlabankinn fyrir að sinna ekki þeirri skyldu sinni að auka gjalseyrisforðann á meðan það var hægt. Og sem kollsteypti okkur með afskiptunum af Glitni.

Forsætisráðherra fyrir að sofa á verðinum.

Á Íslandi hefur lengi verið hæsta matvælaverð í heim....það er ábyggilega ekki á niðurleið núna.

Hins vegar þakka ég vinum og vandamönnum sem hafa glatt mig með nærveru sinni, gjöfum og símtölum.  Takk, takk.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ég mun alltaf vita hvar ég var stödd á afmælisdaginn hennar Hólmdísar, mánudaginn 6. október árið 2008 kl. 16.00 eða þ.u.b.

Sigrún Jónsdóttir, 6.10.2008 kl. 22:53

2 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Við eigum sem sé sameiginlegan afmælisdag Hólmdís! Til hamingju með daginn. Ekki sá bjartasti hjá okkur en ógleymanlegur.

Vonum að það verði bjartara yfir þeim næsta

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 6.10.2008 kl. 23:09

3 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Og hvar skildi hún Sigga nánar tiltekið hafa verið stödd?

En tja, erum nú kannski ekki alveg "á hausnum", en í ljósi reynslunnar þó ástæða til að tala varlega.

En, enn og aftur til lukku með daginn, unga sprund!

Magnús Geir Guðmundsson, 6.10.2008 kl. 23:11

4 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Sömuleiðis Guðrún Jóna

Sigrún við munum þennan dag

Magnús takk

Hólmdís Hjartardóttir, 6.10.2008 kl. 23:15

5 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Sigurður takk fyrir það, góður dagur að öðru leyti

Hólmdís Hjartardóttir, 6.10.2008 kl. 23:57

6 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

  Þessi dagur verður í minningu fólksins, dagur örvæntingarinnar. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 7.10.2008 kl. 00:12

7 identicon

Elsku Hólmdís, hjartanlega til hamingju með þetta merkisafmæli, það mun seint fara úr manna minnum....

jenny (IP-tala skráð) 7.10.2008 kl. 01:07

8 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Takk Jenný

Jóna Kolbrún......ekki verður morgundagurinn síðri er ég hræddum

Hólmdís Hjartardóttir, 7.10.2008 kl. 01:57

9 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Tralalala, ætla ekkert að kommentera á ástandið, er svo þreytt á þessu öllu, en fer nú ekki að sofa án þess að óska þér til hamingju með afmælið

Vonandi áttirðu alveg súper dag

Lilja G. Bolladóttir, 7.10.2008 kl. 03:34

10 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Takk Lilja og Vala

Hólmdís Hjartardóttir, 7.10.2008 kl. 09:11

11 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

P.s. verð að bæta við þegar ég les fyrirsögnina þína betur, þar sem stendur 6. ber.....   sonur minn á afmæli 2. nóvember, en það fannst honum heldur erfitt orð að muna þegar hann var eins til tveggja ára, búandi í Danmörku. Þannig að þegar hann var spurður að því hvenær hann ætti afmæli, þá svaraði hann alltaf hátt og snjallt: "Jeg har födselsdag anden jordbær!!"

Lilja G. Bolladóttir, 7.10.2008 kl. 20:15

12 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Lilja ég hef alltaf átt afmæli 6.ber

anden jordber er nokkuð gott

Hólmdís Hjartardóttir, 7.10.2008 kl. 20:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband