24.10.2008 | 15:34
Jafnréttið hjá ríkinu!!!!!!!!!!!!!!!!!
.......Halló getur einhver sagt mér afhverju kvenbankastjóri hjá ríkinu er með 200 þús.króna lægri laun en karlbankastjóri hjá ríkinu? Og þó er Kaupþing orðinn minnst bankinn. En þessi laun eru alltof há.
Svo vil ég vita hvort það sé rétt að Elín Sigfúsdóttir sé einn af aðalhönnuðum Icesavereikninganna.
Reiði mín og geðvonska lagaðist lítið við blaðamannafundinn. Þar kom skírt fram hjá Geir að stjórn SÍ er á hans ábyrgð......og okkur hinum kemur það ekkert við. Þegar búið verður að ganga frá lánamálum þjóðarinnar er rétt að huga að kosningum......leyfum þeim að klára þennan pakka.
Bankastjóri Glitnis með 1750 þúsund í laun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
ha ha
Thee, 24.10.2008 kl. 15:41
þú bara hlærð Thee?
Hólmdís Hjartardóttir, 24.10.2008 kl. 15:42
Er hægt annað. thíthí
Thee, 24.10.2008 kl. 15:43
Ég er nú með hærri laun en þetta , þó það sé kreppa
björgólfur thor (IP-tala skráð) 24.10.2008 kl. 15:48
nú garga ég
Hólmdís Hjartardóttir, 24.10.2008 kl. 15:50
Konur vinna minna, þess vegna er kallinn látinn hafa hærri laun. Ljótt að segja, en samt satt...
Jónatan (IP-tala skráð) 24.10.2008 kl. 15:59
Hólmdís þú getur huggað þig við það að ég er með 0 krónur.
Thee, 24.10.2008 kl. 16:01
Ekki batnar mitt geð við þetta Jónatan
Hólmdís Hjartardóttir, 24.10.2008 kl. 16:01
Thee það huggar mig engan veginn Thee. Við eigum öll að hafa nóg.
Hólmdís Hjartardóttir, 24.10.2008 kl. 16:03
Að konur vinni minna en karlar, er einfaldlega BULL!
Hólmdísi ég hugga vil,
herramaður svona.
Einfaldlega ekk'er til,
YNDISLEGRI KONA!
Magnús Geir Guðmundsson, 24.10.2008 kl. 19:44
alveg með ólíkindum þessi bankastjóralaun! Auðvitað eiga þau að vera með sömu laun,AÐ SJÁLFSÖGÐU!- Svo finnst mér skrítið að ráðherra fái ekkert að ráða um þetta
bara einhverjir kallar í bankaráði,er sama bullið að byrja aftur,ég bara spyr,það fer nú einhver prósenta af mínum launum til þess að borga þesum bankastjórum.
eggert rúnar birgisson (IP-tala skráð) 24.10.2008 kl. 20:00
Takk Magnús.....auðvitað er þetta bull
Eggert sammála
Hólmdís Hjartardóttir, 24.10.2008 kl. 20:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.