Að stela lambalæri

.........Verði nú einhverjum það á að stela sér til matar eftir að hafa misst vinnu og aleigu.......hvernig verður tekið á því?   Ætli viðkomandi verði ekki fljótt dreginn í yfirheyrslu og síðan dæmdur sakamaður...fær sekt og síðan fangelsisdóm því hann getur ekki borgað sektina.

Hvað hefur maður ekki oft heyrt um dóma þar sem menn hafa nappað sér einhverju smálegu til matar?   Ekki það að ég verji  nokkurn þjófnað.  En við getum ekki látið það líðast að harðar sé tekið á aumum sauðaþjófum en  stórþjófum bankanna. Hver vegna er ekki búið að taka þessa menn?


mbl.is Yfirlýsingin kom frá forstjóra Kaupþings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Davíð er víst farinn að prenta nýja seðla og herjar á Bónusverslanir Baugsfeðga, þar sem erlendir starfsmenn, "brosa og segja: já"

Sigrún Jónsdóttir, 5.11.2008 kl. 12:54

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

  Ég hef séð svona seðil

Hólmdís Hjartardóttir, 5.11.2008 kl. 13:08

3 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Annar stærstu skuldarann á glæsivillu í London, snekkju og fl

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 5.11.2008 kl. 13:52

4 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Inn með þá. Verst að Hraunið er fullt, aðallega af útlendingum. En þetta eru nú eiginlega útlendingar líka. Þessi með tíu þúsund kallinn var góður. Hefur eflaust verið djók en lenti svo á einhverjum einfeldningi á kassanum, svo úr verður sakamál.

Haraldur Bjarnason, 5.11.2008 kl. 20:20

5 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Eihverjir þeirra hljóta að lenda inni Halli.   Ég þoli ekki hvað þeir fá langan tíma til að hylja slóðir.................

Hólmdís Hjartardóttir, 5.11.2008 kl. 20:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband