Guðni segir af sér þingmennsku

........eftir því sem DV segir.  Vonandi koma fleiri á eftir.  2 framsóknarmenn farnir á nokkrum dögum vegna innanflokksátaka.  Valgerður ætti að hugsa sinn gang. Alvarlega.

Hvenær fer fólk að segja af sér vegna afglapa?  Hvenær axlar fólk ábyrgð?

Burt með spillingarliðið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ég er nú svo græn að ég taldi Guðna vera hreinan og grænan, en kannski var hann bara í snillingaliðinu, taldi samt að þeir hefðu snúið honum í kringum sig í síðustu ríkisstjórn
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 17.11.2008 kl. 19:21

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Guðni var auðvitað í fyrri ríkisstjórn....hann er miklu heiðarlegri en Valgerður held ég.

Hólmdís Hjartardóttir, 17.11.2008 kl. 19:32

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ætla ekki að dæma það, þú veist að hún er eigi ætíð best músin sem læðist.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 17.11.2008 kl. 21:02

4 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Er þá Guðni að segja af sér til að sýna að hann axli ábyrgð, svona eins og hann sagði að Bjarni væri að axla ábyrgð í hans tilfelli. -

Kannski er Guðni að axla ábyrgð á þeim gjörðum sem sú ríkisstjórn sem hann sat í sem ráðherra, gerði. - Og vonandi fylgja fleiri í fótspor hans.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 17.11.2008 kl. 21:06

5 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Nei hann er ekki að axla ábyrgð á gjörðum fyrri ríkisstjórna  þetta eru innanflokksátök.  En vonandi segja fleiri af sér....nú er eftir 61

Hólmdís Hjartardóttir, 17.11.2008 kl. 21:12

6 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Þeir fylla alltaf í skörðin, þau fá aldrei að standa tóm.......það er annað en hjá okkur, þar sem það er bara látið vanta á vaktina og þeir sem eru fyrir vinna bara meira.

Svo það eru ennþá 63, sem þurfa að fara.......

Sigrún Jónsdóttir, 17.11.2008 kl. 21:19

7 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Vonandi fylgja fleiri í fótspor Guðna.

Anna Ragna Alexandersdóttir, 17.11.2008 kl. 23:01

8 Smámynd: Víðir Benediktsson

Geir og Solla umhverfast ef minnst er á afsögn einhvers úr þeirra röðum. Skilja ekkert í svoleiðis ósvífni. Davíð náttúrulega bara brjálast ef hann er spurður enda hefur sá drengur, svo spilltur af eftirlæti sem hann er, aldrei þurft að virða skoðanir annarra.

Víðir Benediktsson, 17.11.2008 kl. 23:02

9 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

En Sigrún ....það er þó nýtt fólk..........

já Anna Ragna

Víðir.....hjálpi þér haningjan þau eru með tappa í eyrunum

Hólmdís Hjartardóttir, 17.11.2008 kl. 23:18

10 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Já, tvær Harðardætur að öllum líkindum í staðin, þó ekki systur held ég. Önnur þegar komin inn og landsþekkt sprella hér í eina tíð, Helga Sigrún, vann t.d. á Aðalstöðinni um árið og gerðist til dæmis svo kræf að fækka fötum hressilega í íeinu samkvæmi stöðvarinnar fyrir framan Eirík nokkurn Jónsson sérstaklega! SEinna vann hún svo í útvarpi Umferðarráðs og þótti þar sumum hún býsna frjálsleg og opinská í tali! Hin heitir Eygló sem sögð er næst inn á eftir Guðna, veit nú ekkert um hana nema það sem stendur í Mogganum.

Magnús Geir Guðmundsson, 17.11.2008 kl. 23:34

11 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

En Hólmdís, engin ástæða til að fegra Guðna karlinn,fáir ef nokkrir stóðu betur við bakið á DO eða töluðu fallegar um hann en Guðni er þeir voru árum saman í stjórn og Guðni stóð dyggilega að einkavæðingu bankanna, lögum á örytkja og fleira sem ævarandi verður honum og B til skammar!

Magnús Geir Guðmundsson, 17.11.2008 kl. 23:39

12 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Tralalalalalala....nú er gaman ! Eins og ég hef alltaf sagt; flokkakerfið er úrelt og til trafala við alla eðlilega þróun þessa lands, flokkarnir snúast eingöngu um sjálfa sig og sína hagsmuni, þeir geta ekkert annað. Þessvegna eru flokkarnir bara fyrir, af hverju gengur illa að fá allt hreint um ábyrgð í hruninu mikla ? Er það hugsanlega vegna þess að það þjónar ekki hagsmunum flokkanna ? Hversvegna hafa embættismenn ekki sagt af sér eða boðist til að útskýra á fullnægjandi og skiljanlegan hátt, hvað gerðist,  hvers vegna, og hverjir bera ábyrgð ? Hvaða hagsmuna á að gæta í þessu öllu saman ?

Burt með flokkana ! Ég vil fá þetta land rekið á sömu forsendum og í atvinnulífinu, þar sem engum heilvita bissnessmanni dettur í hug að láta einhverja flokksgæðinga gegna mikilvægum stöðum í fyrirtækinu ef þeir uppfylla ekki skilyrðin.

 Dýralæknir í fjármálaráðuneytinu.....ég meina hvað er að okkur ? Af hverju látum við þetta yfir okkur ganga...mér finnst það í meira lagi dularfullt...hvað heldur fólk svo að gerist ef við kjósum eftir gamla kerfinu í vor ? Heldur það að eitthvað breytist annað en andlitin á skjánum í Kastljósinu eða Silfrinu...og varla það...Nei og aftur nei! Nýtt kerfi takk þetta er orðið ágætt af flokkabröltinu, innanbúðaerjum þeirra og SPILLINGUNNI sem þrífst í skjóli flokkanna......fyrirgefðu Hólmdís, að ég er margorður...

Haraldur Davíðsson, 17.11.2008 kl. 23:54

13 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Eygló mun vera systir Bjarna....las það einhvers staðar.  Kannski bara bull.  Annars skal ég ekkert fegra karlinn.  Aldrei kaus ég framsókn!!!!!!! Og græt ekki þótt flokkurinn sé í andaslitrunum.  En sumir segja að hann stofni nýjan flokk með Bjarna og jafnvel Sturla bílstjóra hvurn ég get nú ekki séð fyrir mér sem stjórnmálamann.........

Hólmdís Hjartardóttir, 17.11.2008 kl. 23:57

14 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Haraldur þú ert bara nokkuð hress....skrifar heila ritgerð.  Ég vona að eitthvert nýtt kerfi komist á.  Ég held að það verði erfitt ef upp kemur haugur af nýjum flokkum.   Fólk þarf allavega að hafa meira um það að segja hvernig raðast á lista en helst vildi ég fá að kjósa fólk.....fækka þingmönnum um helming.

Hólmdís Hjartardóttir, 18.11.2008 kl. 00:02

15 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

2 af 63 farnir, hver ætli verði næstur?  Þetta virðist vera að ganga.

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 18.11.2008 kl. 00:27

16 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Vona að þetta sé bráðsmitandi JK

Hólmdís Hjartardóttir, 18.11.2008 kl. 00:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband