26.11.2008 | 13:44
FJÖLDI ATVINNULAUSRA EYKST UM 100-150 Á DAG
Hversu lengi stendur ríkið undir að greiða atvinnuleysisbætur............verða þær lækkaðar með vaxandi fjölda? Verður það hagur ríkisins að við flýjum land?
Atvinnuleysibætur eru tekjutengdar hvers vegna?.......ættu þær ekki að vera jafnar til allra? Þarf líka að stéttskipta atvinuleysingjum? Ég beini þeim tilmælum til fyrirtækja sem fara í þrot að gera ekki fólk atvinnulaust í miðjum mánuðinum því þá fær fólkið ekki atvinnuleysisbæturnar næstu mánaðamót á eftir. Ég varð svo óheppin að missa vinnuna 15. nóvember og fæ því engar bætur 1. desember............og finnst það fjári fúlt.
Mín spá er sú að fjöldi ráðherra og stjórnmálamanna missi vinnuna sína eftir áramót. En þeir eru vafalaust búnir að tryggja réttindi sín.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Atvinnuleysisbætur eru tekjutengdar upp að 300 þúsundum, þannig að við sleppum en það er held ég bara í 3 mánuði. Þetta er auðvitað vegna þess að fólk er með skuldbindingar miðaðar við tekjur, eins og húsnæðislán. . Hins vegar ætti að borga bætur strax, óháð því hvenær fólki er sagt upp. Hafir þú verið á föstum mánaðarlaunum með greiðslu fyrsta hvers mánaðar átti að segja þér upp þann fyrsta. En fyritækið fór lóðrétt á hausinn og þannig er það í einkageiranum, svona gerast kaupin þar. Ef við einkavinavæðum allan pakkann verður þetta svona,,,,,sorrrý
Haraldur Bjarnason, 26.11.2008 kl. 13:54
Það er gaman að þessu Halli.............eller hitto
Hólmdís Hjartardóttir, 26.11.2008 kl. 14:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.