9.12.2008 | 23:42
Jólaseríuraunir.
........Það var eins og við manninn mælt þegar ég ákvað fyrir viku síðan að nú yrði sett í fluggír í jólaundirbúningi. Ég bara varð veik og hef verið það síðan.....og hef sofið eins og hvítvoðungur (eða öldungur) megnið af sólarhringnum. Hef samt látið mig hafa það að fara á tónleika og fundi. Greindi mig sjálf með "pneumonia". Þið sem vitið ekki hvað það er þurfið bara ekkert að vita það. Setti sjálfa mig á sýklalyfjameðferð sem litlu hefur skilað.
En ég hef fyrir hver jól sett hér út 2 ljósaseríur. Annari var hent í fyrra. Þar sem er flatur niðurskurður á flestu þennan desembermánuð ákvað ég að endurnýja hana ekki í ár. Í dag bagsaði ég svo að setja hina kringum útidyrnar. Prófaði hana að sjálfsögðu fyrst. Var komin með naglakul þegar þessu föndri lauk. Ég sagði "verði ljós" en ekkert gerðist. Úff hvað ég var spæld. Ég get sagt ykkur ég nenni ekki að gera þetta aftur í ár!!!!!!!!! Það verður bara þeim mun meira af kertum við andyrið. Þau koma nú samt blessuð jólin.
Athugasemdir
Ég sé að jólin hjá þér eru nákvæmlega eins og þau eiga að vera!
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 9.12.2008 kl. 23:45
Þú ert að minnsta kosti með jól í hjarta. Það hlýtur að duga.
Húnbogi Valsson (IP-tala skráð) 10.12.2008 kl. 00:02
Seggðu, þetta kemur allt á sinn hátt. Vertu viss
Ásdís Sigurðardóttir, 10.12.2008 kl. 00:13
Þetta sleppur allt...............hefur alltaf gert það. Um leið og skatan fer að ilma eru mín jól komin. Og Mahalia Jackson í spilaranum.
Hólmdís Hjartardóttir, 10.12.2008 kl. 00:50
Börnin mín fundu ekki útiseríuna okkar, það er svo mikið drasl í bílskúrnum mínum
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 10.12.2008 kl. 00:57
Skatan og góð tónlist gerir gæfumuninn.....Svo lýsir nú alveg nógu mikið frá þér sjálfri
Sigrún Jónsdóttir, 10.12.2008 kl. 01:11
Jóna Kolla......hér er líka erfitt að finna hlutina.....alls staðar troðið
Sigrún það er svo satt með skötuna og tónlistina. Takk.....vona að ég sé ekki sjálflýsandi
Hólmdís Hjartardóttir, 10.12.2008 kl. 01:15
Á hvaða tónleika fórstu frk. Ljosadís?
En voðalega finnst mér kaldhæðnislegt já, að fulltrúi heilbrigðiskerfisins skuli svo hastarlega veikjast, fékkstu þér ekki allar sprauturnar?
(veit, veit, að ég veit betur, en svo gaman að spyrja stundum VITLAUST!)
En hvað með til dæmis raunamædda vin þinn í ástarsorginni,s sem þú huggaðir þarna um daginn á djamminu, (og sem ég bíð ennþá eftir að vita hvernig gekk) gæti hann ekki hjálpað og hvað með dollurnar, geta þær ekkert gagn gert!?
Magnús Geir Guðmundsson, 10.12.2008 kl. 01:37
Ég fór og hlustaði á Mogadon.......
Engar sprautur!!!!!!!
Ég huggaði raunamædda manninn bara hér í eldhúsinu. Mér sýnist hann hafa tekið gleði sína á ný. Hann hefur nú oft rétt hjálparhönd blessaður karlinn.
Dollurnar þykjast vera í prófum. Sjaldan gagn af þeim
Hólmdís Hjartardóttir, 10.12.2008 kl. 01:47
Takk Búkollabaular......það hefur alltaf endað með því hingað til
Hólmdís Hjartardóttir, 10.12.2008 kl. 09:46
Ég sem hélt að þið hefðuð farið á sleitulaust slark með sálfræðilegu ívafi, en mér heyrist að eldhúsið þitt hafi bara dugað fyrst hann er hressari og þú kannski látið eftir honum smá axlanudd!?
Engin afsökun þó rellurnar hafi eða séu í prófum, þær verða ekki að heilögum kusum við það eitt, ég tala nú ekki um ef mamma greyið verður svona lasin!
En ertu ekki að grínast? Hélt að þið elkulega fólkið sem passið vora veiku og öldruðu, ættuð að vera sem best og mest brynjað gegn öllum pöddunum og veirunum sem grassera í kringum okkur!? En svona er þetta kannski í einkageiranum, ekki hart tekið á þessu og því ertu svona lítil og lasin núna!
Magnús Geir Guðmundsson, 10.12.2008 kl. 19:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.