Að skrifa á jólakort.

,,,,,,er góður siður.  Mér finnst ágætt að setjast niður og skrifa á jólakort.  Ég hugsa um fólkið sem ég sendi kortin og lofa sjálfri mér í huganum að vera duglegri að hafa samband næsta ár!

En ég þarf réttu stemninguna.  Kertaljós, Mahalia Jackson og portvín í fallegu glasi.  Í ár gerði ég alvarleg mistök.  Sparaði portvínið.....og rétta stemningin kemur bara ekki!!!!!!!!!   Bjór dugar engan veginn í þetta verk.

Kanski verður kreppustíll á skrifunum í ár.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Já og nú er búið að hækka púrtvínið ætli kertin fari ekki að hækka líka

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 12.12.2008 kl. 22:45

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Þetta er hábölvað

Hólmdís Hjartardóttir, 12.12.2008 kl. 22:57

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Portvín eða rauðvín er heila málið með jólakortum, get ekki hugsað mér að sleppa þessari stund, þegar maður úthellir sér yfir vina sína og bíður svo næstu jóla.  Nei, sem betur fer hittir maður marga í millitíðinnil.  ef þú værir örlítið nær mér mundi ég bjóða þér í jólakortaskrifarrauðvínskvöldl, ekki spurning.

Ásdís Sigurðardóttir, 12.12.2008 kl. 23:04

4 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Ásdís það væri nú flott að skrifa saman á kort......er alltaf ein En hugmyndin er góð

Vala mín.....Valdi segir það Húsvíska forvitni að lesa annara manna jólakort

Njótið aðventu.

Hólmdís Hjartardóttir, 12.12.2008 kl. 23:32

5 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Valdi=Ástvaldur ef þú hefur ekki áttað þig Vala mín.

í

Hólmdís Hjartardóttir, 12.12.2008 kl. 23:34

6 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Láttu þú ekki svona Hólmdís enga kreppuskrift  ég endursendi þá kortið frá þér það er ekki í þínum stíl.  það væri ekki úr vegi að kíkja á mig ég gæti boðið þér upp á eðla púrtara.Njóttu helgarinnar

Anna Ragna Alexandersdóttir, 12.12.2008 kl. 23:38

7 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Anna Ragna tek þig á orðinu. Kem í púrtara!  Hringdu þegar þú ert heima.

Njóttu helgarinnar sömuleiðis.  Ég finn að Mahalia hefur góð áhrif á mig

Hólmdís Hjartardóttir, 12.12.2008 kl. 23:58

8 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ah, góð búin að redda þér um heimboð m/púrtara á x2 stöðum

Góða Helgi Hólmdís mín, vona að heilsan sé að koma

Sigrún Jónsdóttir, 13.12.2008 kl. 00:27

9 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Sigrún mín ég er að rísa upp!!

Góða helgi

Hólmdís Hjartardóttir, 13.12.2008 kl. 00:34

10 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Ussuss, áfengi og yndisleg aðventa eiga ekki saman, kók í bauk eða kaffi miklu betra!

Veit að núna eru 0,1% líkur á að ég fái jólakrúttkveðju frá þér, hvað þá annað, en verð þá bara að reyna að brosa gegnum tárin sem fegurðardrottning væri!

Magnús Geir Guðmundsson, 13.12.2008 kl. 00:37

11 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Kæri  Magnús.....það er stemningin strákur.  Unaðsleg tónlist....kerti og gott vín í fallegu glasi......svo hefðarkonulegt

Þú myndir nú gefa mér púrtvín ef ég kæmi norður?

Hólmdís Hjartardóttir, 13.12.2008 kl. 00:42

12 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ég skrifaði jólakortin í vinnunni minni í vikunni, það var rólegt á þriðjudagskvöldið.  Þá voru kortin sem ég hafði í veskinu mínu skrifuð.  Frímerkin sett á og þau fara í póst á mánudaginn kemur. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 13.12.2008 kl. 00:44

13 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

dugleg Jóna Kolla

Hólmdís Hjartardóttir, 13.12.2008 kl. 00:49

14 Smámynd: Víðir Benediktsson

Má ekki skella í sig án þess að skrifa kort. Það verður einhversstaðar að skera niður.

Víðir Benediktsson, 13.12.2008 kl. 00:50

15 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Góður Víðir.

En ég vil hvorttveggja

Hólmdís Hjartardóttir, 13.12.2008 kl. 00:55

16 identicon

Það er nokkuð síðan að ég skar niður útgjöldin til ÁTVR. Ég hætti að kaupa poka. En úr því áfengið hækkaði svona mikið og óvænt núna, þá verður eitthvað lítið um jólagjafakaup hjá mér.

Húnbogi Valsson (IP-tala skráð) 13.12.2008 kl. 02:42

17 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Húnbogi við verðum að hætta að borða og gefa gjafir

Hólmdís Hjartardóttir, 13.12.2008 kl. 02:52

18 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Ef þú gæfir mér nákvæma lýsingu á púrtvínsflöskum og mér tækist að finna "Ríkið" aftur eftir að hafa gleymt því og vökvanum sem fæst þar sömuleiðis í fleiri ár en ég man, tja, þá mun kannski myndast fræðilegur möguleiki! En af því við erum ein hérna og engin að njósna, þá held ég að meiri líkur séu á að ég gæfi þér 900000 kallinn sem þú tapaðir frekar en "púrtarann"!

Magnús Geir Guðmundsson, 14.12.2008 kl. 04:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband