Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
3.11.2008 | 03:32
Þetta er skrifað í skjóli nætur
...........og fáir sammála mér. Allavega ekki hún frænka mín JB. En ég myndi treysta Jóni Ásgeiri betur fyrir peningamálum þjóðarinnar heldur en öllum stjórmálamönnum í landinu. Nú hef ég væntanlega fyrirgert öllu lífi hér á SPILLÓ. Eins gott að það er ekki mynd af mér!!!!!!!!!!!!
![]() |
Löngu ákveðin hlutafjáraukning |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.11.2008 | 02:02
Flottur
................ég myndi kjósa hann bara fyrir sjarmann. Hann er frábær ræðumaður. Og virkar manneskjulegur.
Árið 2008 verður í framtíðinni eitt af ártölunum sem allir þurfa að læra utanbókar í sögu.
Fyrsti blökkumaðurinn forseti BNA...........
En ég nenni ekki núna að tala um það sem verður skrifað í Íslandssögunni.
![]() |
Öruggasta forustan síðan 1996 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.11.2008 | 20:08
Andlit blaðsins....
![]() |
Andlit blaðsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.11.2008 | 14:18
Auðvitað á að kjósa í vor
Allt stjórnkerfið er rúið trausti. Það er ekki hægt að bjóða þjóðinni þetta ástand. Ég myndi vilja setja þessa ríkisstjórn til hliðar og fá lið hagfræðinga til að stýra okkur í gegnum þennan ólgusjó. Ég held einfaldlega að stjórnmálamenn séu ekki best til þess fallnir. Brýnasta verkefnið núna er að tryggja að fjölskyldur komist ekki á vonarvöl.
Mikið assgoti var Lára Hanna góð í góðu Silfri.
![]() |
Vill að kosið verði í vor |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.11.2008 | 01:50
Skattbyrði á almenning hæst hér
.....og hefur þyngst mest hér....frá þessu var sagt í fréttum í kvöld. Ekki hefur það nú dugað til að gera vel við þá sem minnst mega sín . Íslensk alþýða er blóðmjólkuð. Við borgum líka hæstu vexti á lánin okkar sem eru auk þess verðtryggð. Og við borgum mest af öllum fyrir matinn og lyfin.
En sérstaka athygli mína vakti viðtal við Lars Christensen hjá Danske Bank sem talaði um röð mistaka af hálfu Seðlabanka og stjórnvalda nú í október.......það eru ekki bara Íslendingar sem átta sig á þessu.
18 % stýrivextir eru ekki að létta þessari byrði af okkur..........heldur reka okkur úr landi.....er það kannski markmiðið?
1.11.2008 | 17:15
Vonbrigði
1.11.2008 | 14:43
Verður hlustað á fólk?
...SÍ hefur brugðist
...FME hefur brugðist
...ríkisstjórnin hefur brugðist
....bankarnir hafa brugðist
Það þarf algera uppstokkun.....en verður hlustað á fólk? Axlar einhver ábyrgð?
Hvernig virkar lýðræðið? Reiði fólks magnast dag frá degi.
![]() |
Um þúsund mótmælendur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.11.2008 | 13:05
Borgarastyrjöld?
.......er það það sem þarf til til að vanhæfir embættismenn verði látnir víkja?
Munið fund á Austurvelli klukkan 15:00 í dag
1.11.2008 | 11:46
Getur það verið?
......getur verið að þráseta DO og félaga í SÍ komi í veg fyrir að við fáum lán frá norðurlöndunum? Getur það verið að einhverjar þjóðir geri þær kröfur að skipt verði um áhöfn í SÍ?
Ég hef verið þeirrar skoðunar að það væri vont að ríkisstjórnin splundraðist fyrr en að lánamál væru i höfn......en er að komast á þá skoðun að við þurfum nýtt fólk í brúna ekki seinna en stax. Best væri að fá færustu sérfræðinga á sínu sviði til að leiða okkur í gegnum þetta....fáum ópólitíska stjórn...við getum svo kosið þegar versta gjörnigaveðrið er yfirstaðið.
Hinir háu stýrivextir eru farnir að bíta grimmilega svo ekki sé meira sagt. Getur einhver sagt mér afhverju önnur lögmál gilda hér en í öðrum löndum? Aðrir seðlabankar eru að lækka vextina.
Mætið á Austurvöll klukkan 15:00 í dag
![]() |
Ingibjörg segir Davíð skaða orðsporið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.11.2008 | 09:57
Bíll kom til landsins
...............verða þetta forsíðufréttir framtíðar? Mun mannfjöldi taka á móti þegar bifreið kemur til landsins. Ekki það að það er allt í lagi að fækka bílum.
Munið fund á Austurvelli kl. 15:00 í dag
![]() |
Einn bíll kom til landsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |