Nokkrar laufléttar spurningar

Var þriðji hvítabjörninn drepinn?......Það heyrast raddir um það

Er ríkisstjórnin að springa?.................það heyrast raddir um það.

Munu hjúkrunarfræðingar og ljósmæður fá kjarabót?.....það heyrast engar raddir um það

Eru dagar Sjálfstæðisflokks í stjórn hjá ríki og borg taldir?....það heyrast raddir um það

Eigum við heimsmet í dýrtíð?......það heyrast raddir um það


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

1 nei 2 já 3 nei 4 já 5 nei. það er meiri verðbólga í Zimbabwe

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 4.7.2008 kl. 01:27

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Takk fyrir svörin....er að reyna að ná áttum

Hólmdís Hjartardóttir, 4.7.2008 kl. 01:33

3 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Alla vega vonast ég til ad dagar sjálfstædismanna seu taldir...Já og audvitad  betri kjör á atvinnumarkadnum.

Knús á tig inn í gódann dag.

Gudrún Hauksdótttir, 4.7.2008 kl. 04:09

4 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Góðir punktar hjá þér, Hólmdís. Ég held ekki að þriðji ísbjörninn verði drepinn, en allt hitt hljómar nokkuð rétt hjá þér, svei mér þá. Vonast þó til að við hjúkrunarfræðingar og ljósmæður fái kjarabót, ef ekki er ég nokkuð ákveðin í því, að fara bara að afgreiða í Eymundsson á dagvinnutíma og einstaka helgar og droppa erfiðri vaktavinnu minni á ómanneskjulegum vinnustað, með óheyrilegu álagi fyrir ömurleg laun. Ætli maður fái ekki líka einhvern afslátt á bókum ef maður er starfsmaður Eymundsson? Ég fæ ekki afslátt á neinu hjá LSH, bara af röntgen myndum, en ekki er maður í röntgen alla daga bara upp á "funnið"......

Lilja G. Bolladóttir, 4.7.2008 kl. 08:32

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Blessuð. Ég held að stjórnin springi, hef haft það á tilfinningunni síðan í apríl, svo er ég líka viss um að þriðji björninn verður drepinn fljótlega. Með kjarasamningana er ég ekkert allt of bjartsýn, þessir hópar hafa aldrei fengið verðskuldaða hækkun.   Helgarkveðja til þín 

Ásdís Sigurðardóttir, 4.7.2008 kl. 11:45

6 Smámynd: Brynja skordal

Hafðu ljúfa og góða helgi Elskuleg

Brynja skordal, 4.7.2008 kl. 12:19

7 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Ég skal ekki segja um 3 ísbjörnin, það kæmi kannski ekki á óvart ef slíkt mál færi hljótt miðað við fjölmiðlaumfjöllunina á þeim 2 fyrstu, ekki síst í erlendum fjölmiðlum. Mér finnst ólíklegt að þær stöllur sem töldu sig sjá Bjössa, hafi verið að búa það til.

Ýmiss teikn eru á lofti sem benda til erfiðleika í stjórnarsamstarfinu, þingmenn innan beggja flokka virðast ósáttir og láta það hiklaust í ljós. Spurning hvort  að formennirnir nái að róa menn sína niður. Það gæti verið tæpt.......

Ljósmæður og hjúkrunarfræðingar eiga á brattan að sækja, samninganefnd ríkisins virðist ekki hafa neitt svigrúm til samninga. Hef þó alla trú á því að stéttirnar munu ná  fram betri samningum en þá sem búið er að landa - en það mun taka tíma og reyna á þolgæðið.

Sjálfstæðismenn hafa verið of lengi við völd og bera öll merki þess. Orðnir hrokafullir og telja það sjálfsagðan hlut að semja eigin leikreglur. Hef trú á því að þeir fái falleinkunn, verði kosið í dag.

Íslendingar skipa trúlega eitt af efstu sætunum í heiminum þegar kemur að verðbólgu og dýrtíð. Spái auknum landflótta.

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 4.7.2008 kl. 13:01

8 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Mín tilfinning: JÁ við öllum 5 spurningum.  Spurning 3: ALGJÖRT MUST

Sigrún Jónsdóttir, 4.7.2008 kl. 13:11

9 Smámynd: Beturvitringur

Kæra Hólmdís það er ekki að furða þótt fólk í umönnunarstéttum sé farið að aflagast í glórunni og farið að heyra raddir!

(*~*)

Beturvitringur, 4.7.2008 kl. 17:22

10 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

...aflagast í glórunni  Það ganga sögur um að þriðji ísbjörninn hafi verið drepinn en málið þaggað.  Einhverjar kjarabætur munu koma....en ekki miklar. Meiri dýrtíð í Zimbabve...en...ég svara já við öllum spurningum

Hólmdís Hjartardóttir, 4.7.2008 kl. 18:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband