Marsibil styður ekki nýjan meirihluta.

Tæp er nú nýja stjórnin.  Annar maður á lista Framhjáhaldsflokksin styður ekki nýjan meirihluta. En Óskar langaði í völd.....og áfram sitjum við uppi með veika stjórn sem verður lítt fallin til vinsælda. Þessi gjörningur minnir á þær aðferðir sem notaðar eru við að fita gæsir í Frakklandi.....til að fá sem besta gæsalifrarkæfu..  Þessu er troðið ofan í okkur gegnum trekt......og við neydd til að kyngja.

Rei rei og svei svei. Dagar Framsóknarflokksins í borginni eru taldir.  Sjálftökuflokkurinn verður agnarsmár eftir næstu borgarstjórnarkosningar. Þeir sjálfstæðismenn sem ég þekki ætla ekki að kjósa flokkinn í næstu borgarstjórnarkosningum.....þeim er nefnilega líka orðið bumbult  eins og okkur flestum.


mbl.is Formennirnir voru kjölfestan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

3. maður á lista Frmsóknarflokksins, Ásrún Kristjánsdóttir, sagði sig úr flokknum s.l. vetur.  Þetta er bara endurtekið klúður

Sigrún Jónsdóttir, 15.8.2008 kl. 08:37

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Það sem okkur er boðið upp á Sigrún

Hólmdís Hjartardóttir, 15.8.2008 kl. 08:38

3 Smámynd: Haraldur Bjarnason

...ekki hægt annað en vorkenna ykkur að búa í þessum hreppi!

Haraldur Bjarnason, 15.8.2008 kl. 08:59

4 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

  Og borgarstjórafarsinn heldur áfram.

Sigríður Sigurðardóttir, 15.8.2008 kl. 11:41

5 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Takk fyrir samúðina Haraldur.

Já Sigríður áfram heldur farsinn

Hólmdís Hjartardóttir, 15.8.2008 kl. 12:21

6 identicon

Af hverju gengur Marsibil ekki bara til liðs við hina flokkana, Samfylkinguna eða Vinstri græna? Kveðja, Þorgils Hlynur Þorbergsson.

Þorgils Hlynur Þorbergsson (IP-tala skráð) 15.8.2008 kl. 13:12

7 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Þorgils....kannski gerir hún það.  Þá væru 3 af 4 efstu framsóknarmönnum horfnir! Ásrún og Bingi létu sig hverfa.

Hólmdís Hjartardóttir, 15.8.2008 kl. 13:15

8 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Hvert fór þessi Ásrún?

Lára Hanna Einarsdóttir, 15.8.2008 kl. 16:29

9 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Lára Hanna veit ekkert um hana annað en hún hætti.

Hólmdís Hjartardóttir, 15.8.2008 kl. 16:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband