Það var fyrir 16 árum....

Á þessum tíma fyrir 16 árum var ég að ströggla við að koma henni dóttur minni í heiminn.  Nota þurfti sogklukku.  Höfuðstór , 18 merkur, dökk á brún og brá.  Hún horfði strax í kringum sig og brosti eftir pöntun  á fæðingardeildinni. Aldrei hef ég séð fallegra barn Smile.   Hún var geðgóð og mikill aðdáandi móður sinnar.  Þannig var það nú þá. Eldri systir hennar var ekki par hrifin af þessu nýja barni.  Nú er ég búin að setja á köku fyrir þennan lata og uppreisnargjarna ungling.  Og vonandi tekst að gleðja hana smávegis í tilefni dagsin.....ég hlakka til þegar hún verður 26.  Já á morgun verður hún 16.....

  








« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ég á eina sem verður 26 á morgun þann 30.09.  Hún er þriggja barna móðir

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 28.9.2008 kl. 23:27

2 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Úps ég er ekki vön að blogga fyrir miðnætti, mín á afmæli ekki á morgun heldur hinn

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 28.9.2008 kl. 23:28

3 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Innilegar hamingjuóskir með skvísuna. Dökk á brún og brá líkt og móðirin

Tíminn líður svo hratt að áður en þú veist af,verður hún orðin 20 ára. Mér þykir það hins vegar verst að við eldumstjafn hratt og ungarnir

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 28.9.2008 kl. 23:29

4 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Úps, til hamingju með litla barnið.

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 28.9.2008 kl. 23:29

5 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Takk....takk.....já  við eldumst víst jafnhratt......til hamingju með þína stelpu Jóna Kolbrún

Hólmdís Hjartardóttir, 28.9.2008 kl. 23:32

6 Smámynd: Eiríkur Harðarson

Til hamingju með táningin, annars var ég ekki nema 17 merkur sem þótti mikið. þá fyrir (38. árum og mánuði betur ) var ekki verið að nota neina sogklukku, mér er tjáð að notaðar hafi verið einhverslags tangir. Held allavega að þannig verkfæri hafi verið notað.

Eiríkur Harðarson, 28.9.2008 kl. 23:34

7 Smámynd: Beturvitringur

Litla barnið mitt er 36ára og ég fæddist 20merkur. OOOG það er ekki rétt að við eldumst jafnhratt og ungarnir. Þótt kellingin dóttir mín sé að verða fertug (að maður segi ekki að hún komist bráðum á fimmtugsaldurinn) þá líður mér alltaf eins og 19, ok, kannski 24.

Beturvitringur, 28.9.2008 kl. 23:39

8 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Takk Eiríkur......þú hefur verið stæðilegur

Beturvitrungur maður er jafngamall og manni finnst sjálfum  þó tölurnar virðist háar   ég vildi samt ekki vera 16

Hólmdís Hjartardóttir, 28.9.2008 kl. 23:47

9 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Til hamingju með dótturina, ég efast ekki um að hún sé flottur unglingur.

Sigrún Jónsdóttir, 29.9.2008 kl. 00:01

10 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Takk Sigrún....hún er að ganga frá móður sinni

Sigurður Helgi  takk vona að þín sé meira til fyrirmyndar en mín....

Hólmdís Hjartardóttir, 29.9.2008 kl. 00:17

11 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Hólmdís mín, ung í anda, létt í lund, ég skal glaður taka elsku litlu afmælisstúlkuna þína í f´fóstur í svona þrjá mánuði fyrir þig og þá muntu fá hana til baka sem 21. aldar Pollýönnu!

til hamingju annars með trippið!

Magnús Geir Guðmundsson, 29.9.2008 kl. 00:56

12 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Já ég er til að senda þér hana í 3 mánuði Magnús minn.

Hólmdís Hjartardóttir, 29.9.2008 kl. 01:00

13 identicon

Til hamingju með afmælið, Hólmdísardóttir.

Húnbogi Valsson (IP-tala skráð) 29.9.2008 kl. 01:05

14 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Takk Húnbogi

Hólmdís Hjartardóttir, 29.9.2008 kl. 01:35

15 Smámynd: Sigríður Hulda Richardsdóttir

 Til hamingju með dótturina. Það er erfitt að vera 16, óska henni alls hins besta.

Sigríður Hulda Richardsdóttir, 29.9.2008 kl. 08:30

16 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Takk Sigga

Hólmdís Hjartardóttir, 29.9.2008 kl. 09:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband