Almenningur á Íslandi hefur aldrei haft áhuga á þessari útrás.

......mér hefur alltaf þótt í meira lagi vafasamt fyrir 300 þúsund manna þjóð að henda miklum peningum í þetta verkefni.  Eiginlega skírt dæmi um kolranga forgangsröðun á Íslandi.  Ég hef engan hitt sem styður þessa  "útrás". Stjórnvöld verða að fara  að átta sig á að 300 þúsund manna þjóð getur ekki né vill borga hvað sem er. Enda var þjóðin aldrei spurð um þetta......frekar en ýmislegt annað.  Við getum látið í okkur heyra utan þessa "fína" ráðs.

Ég legg til að á Nýja Íslandi fái þjóðin að kjósa um svona dýrar ákvarðanir.   Og þjóðin ætti að fá að kjósa sem oftast...........sérstakalega í ljósi þess hve mikil mistök hafa verið gerð við stjórn landsins undanfarna áratugi 

Dagurinn í dag hefði verið góður til að lagfæra eftirlaunaósómann......en auðvitað er  hægt að redda því á morgun.


mbl.is Kosningabarátta Íslands í New York
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Sammála 100% (aldrei þessu vant)

Haraldur Bjarnason, 14.10.2008 kl. 22:48

2 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

....og ég líka

Sigrún Jónsdóttir, 14.10.2008 kl. 23:13

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Bráðum set ég hér eitthvað inn sem þið tvö mótmælið harkalega

Hólmdís Hjartardóttir, 14.10.2008 kl. 23:18

4 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Iss...það er ekkert gaman að rífast við mig 

Sigrún Jónsdóttir, 14.10.2008 kl. 23:52

5 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Satt að segja er ég nú kominn á þá skoðun að Öryggisráðið sé eina vonin. Með því getum við kannski varist vondum Bretum, sem brjótast inn í íslenska banka, Japönum, sem vilja ekki hlustra á ískrið í Sinfoníunni og Dönum sem klippa íslensk kreditkort. - Við þurfum öryggi og þá er Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna það sem helst getur verndað okkur.,.....eftir það getum við brosað.

Haraldur Bjarnason, 15.10.2008 kl. 00:04

6 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Jæja Haraldur Reykás

Sigrún....það veit ég ekki að óreyndu

Hólmdís Hjartardóttir, 15.10.2008 kl. 00:19

7 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 15.10.2008 kl. 00:44

8 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Þú gætir nú t.d. lýst því yfir að ég sé sá flottasti á Akureyri, Haraldur myndi þá auðvitað sjá rautt!

Magnús Geir Guðmundsson, 15.10.2008 kl. 01:15

9 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Magnús Geir......þú ert auðvitað langflottastur á Akureyri....vita ekki allir það.

Hólmdís Hjartardóttir, 15.10.2008 kl. 01:18

10 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Nei, til dæmis ekki Haraldur, sem nú liggur því andvaka í afbrýðissemikasti og bruggar mér banaráð!

Mikil er ábyrgð þín kona!

En gerir ekkert til, nei, það gerir ekkert til, því á Íslandi er ábyrgð engin um það bil.

Magnús Geir Guðmundsson, 15.10.2008 kl. 01:53

11 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Verð ég nú að "segja af mér" og axla ábyrgð?

Hólmdís Hjartardóttir, 15.10.2008 kl. 02:19

12 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Nei, en gefa þig á VALD ÖRLAGANNA!

Magnús Geir Guðmundsson, 15.10.2008 kl. 02:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband