10.12.2008 | 10:12
Villandi
............Mitt heimili hefur aldrei haft 165 þúsund á mann til að spila úr. Það held ég að eigi við þúsundir annara heimila í landinu. Enda heyrði ég bara um góðærið hjá stjórnmálamönnum. Það snart ekki mig né mína fjölskyldu. Þetta góðæri var álíka fjarlægt og tuglið. En kreppan kemur af fullum þunga.
Ég held að framtíðarverkefni hér hljóti að verða að minnka þetta svakalega launabil sem orðið hefur i landinu síðustu ár. Allt launakerfi er ónýtt hérna. Það er bara hlægilegt að sjá tölur um meðallaun. Hver eru meðallaun tveggja manna þar sem annar hefur 200 þús en hinn 2 milljónir? Hvað réttlætir slíkan launamun? Hvað þarf einstaklingur að hafa í laun að lágmarki til að lifa af? Er réttlætanlegt að borga svo lág laun að fólk rétt skrimti? Fullorðnu fólki fyrir fulla vinnu. Þetta er búin að vera þjóðarskömm lengi.
Í raun þyrfti einhverja siðfræðinga til að fara yfir launamál hér.
Útgjöld heimila hækkuðu um 11% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Þessar meðaltalstölur eru svo mikið rugl. Bara einn liður í veruleikafirringu ráðamanna og verkalýðsforystu.
Hvað var það aftur sem formaður VR sagði á Háskólabíó fundinum?....."meðallaun félagsmanna VR eru um kr. 400.000.- pr. mán. og ég tel eðlilegt að sem formaður þessara stóru samtaka sé ég með 5föld þau laun".....svo skildi hann ekki baulið, sem hann fékk úr salnum
Sigrún Jónsdóttir, 10.12.2008 kl. 10:23
Þessar meðaltalstölur eru bull.
Svo þegar spurt er um rættlætingu slíks launamunar er talað um ábyrgð.....sem enginn axlar
Hólmdís Hjartardóttir, 10.12.2008 kl. 10:50
Það væri réttast að leggja niður vinnu til að réttlæta þennan mismun.
.
Anna Ragna Alexandersdóttir, 10.12.2008 kl. 14:30
Alveg sammála ykkur, það er ekkert hægt að deila manni í eitthvað meðaltal.
Ásdís Sigurðardóttir, 10.12.2008 kl. 14:46
Já Anna Ragna allsherjarverkfall liggur í loftinu
Ásdís nei þetta er ósanngjarnt. Taktu launin þín og svo Hreiðars Más bankastjóra og finndu út meðaltal. Og reiknaðu svo kaupmáttinn. (Hann var með 62.5 millur á mánuði) Þetta er argasta bull
Hólmdís Hjartardóttir, 10.12.2008 kl. 15:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.