Hvar er umboðsmaður almennings?

................Um leið og við lesum um að 260 manns missi vinnu á dag eru álögur auknar.  Tekjuskattur hækkaður.  Og afborganir af lánum á leið upp himnastigann.  Matvara og og öll önnur vara hækkar nánast daglega.  Laun flestra hafa lækkað því engin er yfirvinnan lengur.

Getur einhver sagt mér hvernig þetta á að ganga upp?


mbl.is Atvinnulausum fjölgar um 260 á dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nei, þetta gengur ekki upp. Það sjá allir sem vilja. Svo ekki nóg með það heldur virðast nýju ríkisbankarnir ekki vera umburðarlyndir. Hef verið með yfirdráttarheimild hjá glitni í þónokkurn tíma. Um leið og ríkið tók yfir þá var yfirdrættinum mínum hent í lögfræði innheimtu.

Ísland, stórasta land í heimi!

Svavar Friðriksson (IP-tala skráð) 11.12.2008 kl. 14:26

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Skil þig vel með unglingana og matinn þeirra, sá tími er liðinn hjá mér og slepp ég því enn betur en ella. Veit að þú ert eins og ég, getur lifað á einföldu fæði.  Kveðja

Ásdís Sigurðardóttir, 11.12.2008 kl. 14:33

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Nei þetta gengur ekki upp.

Svavar.........ósvífið hjá bankanum .  Það er nefnilega gengið hart að almenningi þrátt fyrir loforð um að það sé ekki gert.

Hólmdís Hjartardóttir, 11.12.2008 kl. 14:37

4 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Þetta gengur ekki upp og það eru alltaf fleiri og fleiri að komast að því....á eigin skinni

Sigrún Jónsdóttir, 11.12.2008 kl. 14:42

5 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Sigrún þetta er skelfing

Hólmdís Hjartardóttir, 11.12.2008 kl. 17:44

6 Smámynd: Víðir Benediktsson

Ætli Björgvin viti af þessu eða hefur enginn sagt honum frá þessu?

Víðir Benediktsson, 11.12.2008 kl. 18:16

7 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Víðir heldur þú að Björvin viti að það er kreppa?

Hólmdís Hjartardóttir, 11.12.2008 kl. 18:36

8 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Það hefur örugglega enginn sagt Björgvin frá þessu !

Haraldur Bjarnason, 11.12.2008 kl. 18:53

9 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Halli væri ekki rétt að senda honum bréf?

Hólmdís Hjartardóttir, 11.12.2008 kl. 19:33

10 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Kjartan ég er eiginlega sammála....þetta dæmi getur engan veginn gengið

Hólmdís Hjartardóttir, 11.12.2008 kl. 20:23

11 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Er alltaf að heyra einmitt svona sögur þar sem fólk er að fá mjög slælega fyrirgreiðslu hjá bönkunum, verið að fella niður heimilidir og yfirdrætti og innheimtuaðgerðir bara hertar. Eins er með innheimtufyrirtækin. Það er ekkert eins og okkur er sagt enda hlusta bankarnir ekkert á ráðamenn og gera bara eins og þeim sýnist. Og HVAR ER HÁTEKJUSKATTURINN???  Þetta endar með uppreisn eða flótta.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 11.12.2008 kl. 20:52

12 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Já hvarer hátekjuskatturinn Katrín?

Nú þegar eru búin að vera slagsmál við hjálparstofnanir því það er ekki til nægur matur  handa öllum.

Þetta endarmeð uppþotum.

Hólmdís Hjartardóttir, 11.12.2008 kl. 20:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband