Við höfum um þrennt að velja.

Iceland Express, Icelandair eða Norrrænu.   Þetta  las ég á einhverju bloggi  um daginn.  Það er orðið ólíft á landinu.

Ég er orðin eiginlega jafnreið yfir því sem stjórnvöld gera og því sem þau ekki gera.  Traustið á þessari ríkisstjórn er lítið sem ekkert. Afhverju víkja þau ekki? 

Afhverju  er ekki miklu meira skorið niður í utanríkisþjónustunni?  Nú á áfengi að hækka   í þriðja sinn á stuttum tíma svo bruggarar og fíkniefnasalar hljóta að vera í skýjunum. Það er þó verið að gera vel við einhverja Angry.

Mér er nóg boðið.


mbl.is Blóðug fjárlög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Norræna er kosturinn

Haraldur Bjarnason, 11.12.2008 kl. 20:50

2 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Er löngu komin með upp í kok

Tek Norrænu næsta sumar.....kannski bara til Færeyja....aðra leiðina

Sigrún Jónsdóttir, 11.12.2008 kl. 20:52

3 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Geri Það Vala mín Hólmdís, ertu með?

Sigrún Jónsdóttir, 11.12.2008 kl. 21:36

4 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Já förum bara.....eigum við að taka Halla með?

Hólmdís Hjartardóttir, 11.12.2008 kl. 21:37

5 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Því ekki?......við þurfum nú að hafa einhvern til að tuða í

Sigrún Jónsdóttir, 11.12.2008 kl. 21:44

6 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Er ekki hægt að fara með Norrænu til Færeyja og fjúga þaðan?

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 11.12.2008 kl. 22:00

7 Smámynd: Halldór Jóhannsson

Gerum ferð til Færeyja á komandi ári,þið getið farið nú og undirbúið allsherjar ferð þangað.Allavega sína þeim þakklætisvott...þessum vinum...væri gaman að fara með húllum hæ og skemmta þeim.Hvernig væri að fara á Ólafsvökuna????En bölvaðir að hækka dropann hverskonar..ég drekk bara bensin eins og denn,þarf lítið....dreymi ykkur vel.Ráða,alþingis og fjárglæframenn(landráðamenn)gerið aðeins eitt fyrir okkur...látið ykkur hverfa......Dreymi ykkur vel. 

Halldór Jóhannsson, 11.12.2008 kl. 22:23

8 Smámynd: Víðir Benediktsson

Ég fer með flugvél. Það er fljótlegra.

Víðir Benediktsson, 11.12.2008 kl. 22:29

9 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Það verður greinilega stuð í Færeyjum

Hólmdís Hjartardóttir, 11.12.2008 kl. 22:59

10 Smámynd: Tína

Bráðum verður að fara að halda sér þorrablót í Færeyjum með þessu áframhaldi

Tína, 11.12.2008 kl. 23:10

11 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Ég er svoleiðis ösku þreifandi reið yfir gjörðum þessarar ríkisstjórnar jafnt sem yfir því sem ríkisstjórnin gerir ekki, að ég get ekki á mér setið, ég verð að skreppa út og öskra.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 12.12.2008 kl. 00:49

12 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

  Ekki ætla ég að fara fet. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 12.12.2008 kl. 00:51

13 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Tína við tökum að minnsta kosti hákarl með okkur

Sama hér Lilja Guðrún.  Ekki hvað síst yfir því sem hún gerir ekki.

JK þú heimsækir okkur þá.  Og borgar og borgar og borgar

Hólmdís Hjartardóttir, 12.12.2008 kl. 01:18

14 identicon

Kem með!! :)

Bara ég (IP-tala skráð) 12.12.2008 kl. 03:21

15 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

gott.....Bara ég:)

Hólmdís Hjartardóttir, 12.12.2008 kl. 09:37

16 Smámynd: Neddi

já, ætli það endi ekki með því að maður strappi fötin, tölvuna og tjald á hjólið og bruni austur og svo um borð í ferjuna.

One-way ticket til Færeyja hljómar alltaf betur og betur.

Neddi, 12.12.2008 kl. 10:20

17 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Neddi  þúsundir eru að hugsa sinn gang.  En fólk verður að fá húsnæði og vinnu.

Hólmdís Hjartardóttir, 12.12.2008 kl. 10:26

18 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Ta er neggv gott gamli, ef allir ætla til Föroyja. Hvers eiga Færeyingar að gjalda?

Haraldur Bjarnason, 12.12.2008 kl. 10:49

19 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Halli heldurðu að þeir vilji okkur ekki?

Hólmdís Hjartardóttir, 12.12.2008 kl. 15:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband