Nú verđur ađ vaka í nótt og passa ketiđ.

................Ketkróki er ekki treystandi.  En hann lćtur skötuna í friđi.  Matvandur skratti.   Ţorláksmessa er einn af mínum uppáhaldsdögum....Mikiđ ađ gera. Skipt á öllum rúmum....hrćdd um ađ ekki verđi mikiđ viđrađ á morgun.  Veđurfrćđingar verđa ađ axla ábyrgđ á ţví.  Jóltréđ bađađ og skreytt og allt ţrifiđ hátt og lágt. Og jólakveđjurnar í útvarpinu gefa stemninguna. Ótrúlega skemmtilegt.

Allan daginn engist ég ţví biđin eftir skötunni er erfiđ. Skötustappa međ hnođmör er toppurinn á tilverunni.  Kannski kemur einhver ađ fá sér bita.  Og svo eru nokkrir sem koma ÖRUGGLEGA ekki á matartíma.....jafnvel ţótt ţeim sé bođiđ.  Ég geri svo mikiđ ađ ég eigi kalda stöppu öll jólin,,,,međan vesalingarnir gúffa í sig Nóa sírus.

Eftir skötusuđuna fer hangikjöt í pott međ tveimur sykurmolum.

Stelpurnar vöndust ţví á leikskólanum sínum ađ fá jólaglögg og er ţađ orđin hefđ hjá okkur á Ţorláksmessukvöld ađ sötra glögg á međan tréđ er skreytt.  Ţađ er stundum af mismunandi styrkleika.

Best er svo ţegar mađur er orđinn örţreyttur um kvöldiđ ađ setjast inn í stofu, horfa á jólaljósin og nýskreytt tré.  Setja Mahaliu í spilarann og drekka rauđvínsglas.  Yndisleg einkastund!

Góđa nótt.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garđarsdóttir

Ţví miđur ţarf ég ađ vinna á Ţorláksmessukvöld, ţađ er eitt annasamasta kvöld ársins og ég og pabbi vinnum saman ţá.  Ég elda mína skötu um hádegisbiliđ.  Börnin mín skreyttu jólatréđ okkar í gćr, ţađ er bundiđ upp í loftiđ vegna kattanna sem vilja príla og skođa tréđ. 

Jóna Kolbrún Garđarsdóttir, 23.12.2008 kl. 02:24

2 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Tvo sykurmola?????  Aldrei heyrt ţađ fyrr.....verđ ađ prófa ţađ.  Ći, á engan mola, er í lagi ađ ţađ séu 2 tsk. af straujara?

Sigrún Jónsdóttir, 23.12.2008 kl. 02:30

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Sigrún ég hirti mola á Hressó....annars er hćgt ađ setja 2 teskeiđar.

Jóna Kolla....get ekki hugsađ mér ađ vera ađ vera ađ heiman á Ţorláksmessukvöld. Hef mjog oft unniđ Ađfangadag, stundum jólanótt  og oft alla ađra hátíđisdaga...nú er ég svo lánsöm ađ vera atvinnulaus fram yfir áramót!

Hólmdís Hjartardóttir, 23.12.2008 kl. 02:43

4 Smámynd: Jóna Kolbrún Garđarsdóttir

Ég set fullt af sykri ţegar ég sýđ hangikjötiđ, 3-4 matskeiđar allavega.  Ţađ gerir kjötiđ svo bragđgott. 

Jóna Kolbrún Garđarsdóttir, 23.12.2008 kl. 02:50

5 Smámynd: Jóna Kolbrún Garđarsdóttir

Ég kann varla ađ vera heima á ţorláksmessu, ég hef veriđ ađ vinna á barnum undanfarin 10 ár á ţorláksmessu.  Börnin mín hafa séđ um allar skreytingar hérna heima hjá mér í mörg ár.  Svo ţrífa ţessar elskur líka fyrir mig. 

Jóna Kolbrún Garđarsdóttir, 23.12.2008 kl. 02:53

6 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Jóna Kolla ţú sýđur líka örugglega meira hangikjöt en ég.  Dćtur mínar eru úna ađ ţrífa hjá sér

Hólmdís Hjartardóttir, 23.12.2008 kl. 02:57

7 identicon

Ég kemst í jólaskap af ţví ađ lesa ţetta.

Húnbogi Valsson (IP-tala skráđ) 23.12.2008 kl. 07:38

8 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Sendi tér og tínum bestu óskir um gledileg jól og farsćld á nýju ári kćra Hólmdís.Takk fyrir gód kinni sem ég hef notid.

Hjartanskvedja

Gudrún,Jyderup

Gudrún Hauksdótttir, 23.12.2008 kl. 09:40

9 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Gleđileg jól öll sömul

Hólmdís Hjartardóttir, 23.12.2008 kl. 11:12

10 Smámynd: Offari

Ketkrókur er greinilega smekkmađur.

Offari, 23.12.2008 kl. 12:29

11 Smámynd: Ásdís Sigurđardóttir

Ekki ólikir siđir hjá okkur, meira ađ segja ţetta međ sykurinn í hangikjötiđ, mamma gerđi ţađ alltaf líka.  Hafđu ţađ sem best elskan mín og eigđu gleđileg jól.

Ásdís Sigurđardóttir, 23.12.2008 kl. 12:33

12 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Offari   skatan er best

Hólmdís Hjartardóttir, 23.12.2008 kl. 12:33

13 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Ásdís ćtli siđirnir séu ekki keimlíkir víđa    Njótiđ dagsins öll

Hólmdís Hjartardóttir, 23.12.2008 kl. 12:35

14 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Sömuleiđis Tinna

Hólmdís Hjartardóttir, 23.12.2008 kl. 14:58

15 Smámynd: Magnús Geir Guđmundsson

Jólakveđja héđan úr norđri mun heyrast um sex í kvöld.

En rétt, ég kem ekki á matmálstímanum og ţađ ţótt ţú hafir bođiđ mér. En einvhern annan tíma, hver veit!?

Magnús Geir Guđmundsson, 23.12.2008 kl. 16:33

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband