19.1.2009 | 10:19
Hvað er búið að handtaka marga?
..............Það er örugglega búið að frysta eigur þessara manna? Er það ekki? Nú engin lagaheimild. Verður þá ekki að setja neyðarlög sem heimila það á meðan rannsókn stendur?
Ætla stjórnvöld og eftirlitsstofnanir að samþykkja að þetta sé "eðlilegt!"? Eða ætlar fólk að bregðast við? Sýna snefil af manndómi?
Hvernig vill fólk að það sé brugðist við þessu?
Það er sannarlega liðin tíð að það sé notalegt að fá sér kaffi og lesa fréttir á morgnanna á Íslandi. Það tekur örskamma stund að komast á suðupunkt.
Hundruð milljarða millifærðir á reikninga erlendra félaga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:20 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
kona með skoðanir á öllu og er ekkert óviðkomandi. holmdis.hjartardottir@hotmail.co.uk
Færsluflokkar
Bloggvinir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Blúshátíð í Reykjavík
- Brynja skordal
- Eiríkur Harðarson
- Faktor
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
- Gísli Tryggvason
- Hallmundur Kristinsson
- Haraldur Davíðsson
- Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir
- Helgi Már Barðason
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Himmalingur
- Hlini Melsteð Jóngeirsson
- Jón Þór Bjarnason
- Jónas Jónasson
- Katan
- Landrover
- Lilja G. Bolladóttir
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Lárus Gabríel Guðmundsson
- Magnús Paul Korntop
- Margrét Guðjónsdóttir
- Ragnar Freyr Ingvarsson
- Sigríður Hulda Richardsdóttir
- Sigrún Jónsdóttir
- Sigrún Óskars
- Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
- Sporðdrekinn
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Torfusamtökin
- Tína
- Vefritid
- Gudrún Hauksdótttir
- Óskar Arnórsson
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Agný
- Benedikta E
- Bergur Thorberg
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Einar G. Harðarson
- Elías Stefáns.
- Eygló
- Gerður Pálma
- Guðjón Baldursson
- Guðmundur Magnússon
- Halla Rut
- Hallgrímur Guðmundsson
- Heidi Strand
- Hilmar Gunnlaugsson
- hilmar jónsson
- Hlédís
- Idda Odds
- Jakob Falur Kristinsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Jóhann G. Frímann
- Jón Halldór Guðmundsson
- Jónína Benediktsdóttir
- Jón Ragnar Björnsson
- Jón Snæbjörnsson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Júlíus Björnsson
- kreppukallinn
- Magnús Geir Guðmundsson
- Marta B Helgadóttir
- Máni Ragnar Svansson
- Neddi
- Offari
- Ragnheiður
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Rannveig H
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Sigurbjörg
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Soffía Valdimarsdóttir
- TARA
- Tinna Jónsdóttir
- Valdimar H Jóhannesson
- Vilhjálmur Árnason
- Víðir Benediktsson
- ÞJÓÐARSÁLIN
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 16
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Enginn.
Offari, 19.1.2009 kl. 10:27
Það er örugglega troðfullt á Kvíabryggju. Ég hef ekki séð einn einasta fjármálaruddi á undanförnu, ekki einu sinni í ræktina.
Ef það verður ekkert gert, verðum við að taka lögin í okkar eigin höndum.
Heidi Strand, 19.1.2009 kl. 10:28
100% sammála. Ef einhver tími er réttur fyrir neyðarlög þá er það núna! Þessir menn sætu inni alls staðar annars staðar en á Íslandi. Þeir eru sko örugglega búnir að koma eigum sínum undan því miður.
Sigurbjörg, 19.1.2009 kl. 10:47
Hvernig væri að bjóða Bretum að koma og sækja þessa hryðjuverkamenn?
Offari, 19.1.2009 kl. 10:57
Hólmdís, látum setja rimla í tónlistarhúsið niður við sjó og þessum köllum verður stungið þar inn. Við getum svo grætt á ferðaþjónustu þar sem fólk getur komið og horft á siðleysingana inn um rimlana og á sunnudögum förum við með brauðmola sem verða (varla) afgangs eftir vikuna hjá okkur og hendum inn. Með tímanum verða þeir orðnir vindblásnir og hálf signir af vistinni. Svo veit ég ekki meir. En ég er reið. :( Eigur þessara manna eru á grænum greinum í einhverjum löndum þar sem ríkir bankaleynd, sannaðu til.
Hafdís Bjarnadóttir (IP-tala skráð) 19.1.2009 kl. 10:59
maður skilur bara ekki hvernig þetta var hægt, er hægt að bjóða manni endalausa spillingu - djö er nú þráðurinn orðinn stuttur hjá manni
Jón Snæbjörnsson, 19.1.2009 kl. 11:00
Hafdís mér líst bara vel á hugmyndina!
Heidi endar með byltingu!
Sigurbjörg það þarf að sækja þetta fé
Offfari Bretar vilja ekki fá þá.
Hólmdís Hjartardóttir, 19.1.2009 kl. 11:03
Offfari Bretar vilja ekki fá þá.
But it now seems that the UK Government only did what you are now wanting to do. Freeze the assets ???? I don't quite understand ???
Fair Play (IP-tala skráð) 19.1.2009 kl. 11:35
Bankaræningjar voru bara fangelsaðir í villta vestrinu ekki hér.
Rut Sumarliðadóttir, 19.1.2009 kl. 11:42
Litla saklausa Ísland minnir æ meira á afríkanskt einræðisríki...
Já Hólmdís það er orðinn ansi stuttur kveikiþráðurinn hjá manni sérstaklega þegar kemur að réttlætiskenndinni hjá mér allavega..... Svo leyfir þetta lið sér að kalla okkur hinn almenna borgara skríl en það var nú einu sinni þessi "skríll" sem kaus þá ... en fínt...við hinn almenni borgari erum sem sé skríll og allir stjórnmálamenn og allt bankaliðið eru "siðblindingjar"
Sem sé hið nýja Ísland samanstendur af siðblindingjum og skríl...Nice
En held að væri réttara að segja að á Alþingi situr siðblindur skríll við stjórn...
Agný, 19.1.2009 kl. 11:52
Ég held að einungis einn hafi verið yfirheyrður af lögreglu vegna peningamála frá hruninu. Friðjón Þórðarson vegna gruns um hunruðmilljóna peningaþvætti, en að sjálfsögðu var ekkert gert, allt löglegt er sagt, enda maðurinn sonur Þórðar í Kauphöllinni. Man ekki eftir einusinni annarri yfirheyrslu. Ótrúlegt að ekkert sé að gert.
Sigurbjörg, 19.1.2009 kl. 11:54
stafapúkinn kom upp, þarna átti að vera hundruð milljóna að sjálfsögðu :)
Sigurbjörg, 19.1.2009 kl. 11:55
Já það er liðin tíð að það sé notalegt að setjast niður með kaffi og lesa fréttirnar. Það verður ekki aftur notalegt fyrr en það er búið að þrífa ósómann og henda honum í ruslafötuna.
Ævar Rafn Kjartansson, 19.1.2009 kl. 12:05
Bara að fylgjast með fréttum, væri nóg til að gera mann veikan
Sigrún Jónsdóttir, 19.1.2009 kl. 12:11
Arrrgghhh, maður verðu brjálaður á öllu þessu braski. Það er með ólíkindum að ríkissaksóknari skuli ekki vera kominn í málið, hvar er efnahagsbrotadeildin hans BB ?
Ég er hræddur við næstu mánuði ef engu miðar í því að sækja þetta hyski til saka, ef enginn sýnir okkur einhvern snefil af virðingu......þá getur þetta orðið enn ljótara, fólk yfirgefur landið, ofbeldi mótmælenda og lögreglu eykst, og umheimurinn afskrifar okkur endanlega. Mér dettur ekki í hug að kjósa í vor, eigi ég að kjósa við ríkjandi kerfi, kjósa aftur um sömu vitleysuna. Það er grundvallaratriði að fá þetta fólk frá, og svo að henda flokkakerfinu þangað sem það á heima.....
Haraldur Davíðsson, 19.1.2009 kl. 14:32
Það svelgist greinilega fleirum á kaffinu en mér.
Það verður að fara í aðgerðir strax og ná þessu liði
Hólmdís Hjartardóttir, 19.1.2009 kl. 14:38
Er nokkuð tími núna til að leita sökudólga? Hafa ekki bæði Ingibjörg og Geir sagt það? Nær að skríllinn borgaði framlengingasnúruna hans Jóns Ásgeirs sem sviðnaði á Gamlársdag en velta sér upp úr svona. Alltaf þarf "ekki þjóðin" að finna eitthvað svona til að röfla út af. Er ekki Geir búin að segja að sér þyki þetta leitt? Er Ingibjörg ekki búin að segja að hún finni ekki til ábyrgðar? Þau hafa svo sannarlega gert hreint fyrir sínum dyrum.
Víðir Benediktsson, 19.1.2009 kl. 16:26
Þetta hefur verið vitað frá því að Interpool lét Seðlabankann og Ríkislögreglustjóra vita af því að verið væri að millifæra óvenju háar upphæðir í skjóli nætur, á erlenda banka. Þetta vissi Davíð þegar hann kom í Kastljósþáttinn fræga.
Í fyrstu var sagt að fyrrum Stjórnendur bankanna segðu þetta gróusögur, og þessvegna þyrfti ekkert að gera.
Og það var ekkert gert.
Nú hafa þessir menn viðurkennt að hafa fært a.m.k. 104 milljarða til hina ýmsu félaga sinna í skattfrjálsum Paradísum, í skjóli nætur. - Og er eitthvað gert?
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 19.1.2009 kl. 16:35
Mikið rétt Hafdís, það þarf að sækja féð meðan það er hægt. En til þess að ná í féð þarf að setja lög og ég sé ekki að það sé nægjanlegur kjarkur í þessari ríkisstjórn til þess.
Sigurbjörg, 19.1.2009 kl. 17:43
Hvar á að byrja á handtökum,, og hvar á að enda ??Sennilega þyrfti að taka Bændahöllina á leigu til afplánunar , og dygði skammt,, Sennilega yrði bara betra að semja við Litháa um að taka að sér vistun ,, Of mikill lúxus að vista þessi óféti á fínu hóteli,, Hins vegar er ekkert óeðlilegt við þessi viðskipti , sem fram hafa farið , sem og haldið hefur verið fram,, Það hefði hins vegar verið óeðlilegt ef menn þessir hefðu starfað heiðarlega,,
Bimbó (IP-tala skráð) 19.1.2009 kl. 18:40
Bjóða út fangelsisrekstur en ekki hvað. þá fengju þessir krimmar að kynnast frjálshyggjunni í alvöru. Einkarekið fangelsi í höndum frjálshyggjupostula sem vill fá arð og ekkert vera að eyða of miklu í umönnun. Hefur Guðlaugur Þór ekki látið sér detta þetta í hug eða á þetta bara við heilbrigðisþjónustuna.
Víðir Benediktsson, 19.1.2009 kl. 18:55
Breyta stórum togara í vinnubúðir, skipið yrði fiskverksmiðja, tæki við afla annara skipa, skipaði upp í flutningaskip, tæki olíu og kost úti á sjó, og kæmi helst ekki í land nema nauðsyn bæri til.
Haraldur Davíðsson, 19.1.2009 kl. 20:15
Það eru mjög góð fangelsi að sögn fróðra í Tansaníu. Þau er sjálfbær og skila 100% betrunbótum að sögn þeira sem reynt hafa. Þeim veitir nú ekki af smá stuðning.
Júlíus Björnsson, 20.1.2009 kl. 00:22
Lilja allt rétt hjá þér. Þetta var vitað. Og ekkert aðhafst.
Strákar mínir er ekki hægt að láta þá bora göng í gegnum eitthvert fjallið.. ..samfélagsþjónusta og láta þá búa í vöktuðum vinnuskúrum?
Hólmdís Hjartardóttir, 20.1.2009 kl. 00:23
Kannski ratast þeir á Selfossi á einn eða tvo útrásarbaróna þegar þeir byrja að handtaka þessa tæpa 400 glæpona sem skulda.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 20.1.2009 kl. 00:58
Varla.....en það á greinilega að persónugera vandann fyrir austan fjall
Hólmdís Hjartardóttir, 20.1.2009 kl. 02:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.