Enginn hvati

 Það er ekki hvetjandi fyrir konur eða karla að fara í gegnum 6 ára strangt háskólanám þegar launin eru jafnlág og hjá ljósmæðrum.  Enn eitt dæmið um kvennastétt sem ekki er metin af verðleikum. Í ljósi athugasemda nefndar SÞ ættu stjórnvöld að virkilega að koma til móts við þessa mikilvægu vel menntuðu stétt.  Áfram ljósmæður!!!!!!!!!

  








mbl.is Aðgerðir hefjist í september
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sporðdrekinn

Áfram, áfram

Sporðdrekinn, 7.8.2008 kl. 00:21

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Já Sporðdreki áfram áfram..........tek fram að ég er ekki ljósmóðir

Hólmdís Hjartardóttir, 7.8.2008 kl. 00:25

3 Smámynd: Sporðdrekinn

Ekki ég heldur. Ég ætlaði að feta í fótspor langömmu minnar, en hætti við, við fyrstu blæðingar

Sporðdrekinn, 7.8.2008 kl. 00:29

4 Smámynd: Eiríkur Harðarson

Eru ljósmæður nokkuð einar um að njóta ekki sannmælis í launum? Skömm er að þessu launasvelti sem hrjáir ALLT of margar stéttir.

Eiríkur Harðarson, 7.8.2008 kl. 00:38

5 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Það er alveg rétt hjá þér Eiríkur. Það ætti engum að bjóða að lifa á minna en 200- 250 þús.   En það verður að launa fólki sem leggur á sig strangt nám á lánum. Launabilið hefur aldrei verið meira en það er nú...

Hólmdís Hjartardóttir, 7.8.2008 kl. 00:43

6 identicon

"En það verður að launa fólki sem leggur á sig strangt nám á lánum" - geturðu útskýrt þetta nánar? Eiga menn rétt á háum launum fyrir það eitt að fara í gegnum háskólanám? Það hlýtur nú að frekar fara eftir því hvað menn lærðu og hvernig það nýtist í atvinnulífinu en að mæla laun út fra lengd háskólanáms? Hægt er að fara í nám t.d. safnafræði, tómstundafræði, þjóðfræði, næringarfræði, matvælafræði, íslensku, norsku, dönsku, nú eða verkfræði, tölvunarfræði og svo lengi mætti telja. 3 ára háskólanám jú, sambærilegt? nei, ertu að segja að menn eiga að fá sömu eða svipuð laun þá bara vegna þess að þeir eiga það sameiginlegt að hafa farið í 3 ára háskólanám?

Hvað með þá sem voru lengur í námi, gátu ekki klárað á 3 árum en tóku námið á 5 árum? Eiga þeir að fá hærri laun fyrir það?

Nei, námslengd hefur í raun lítið að segja.

Plato (IP-tala skráð) 7.8.2008 kl. 10:49

7 identicon

Þess má einnig geta að ljósmæðranám er 2 ára sérnám, ekki þriggja. Þess má einnig geta að fræðilegt ljósmæðranám er aðeins 76 einingar á meðan t.d. fræðilegt framhaldsnám í hjúkrunarfræðum er 120 einingar. Því fæ ég ekki séð afhverju ljósmæður ættu að vera á mun hærri launum en hjúkrunarfræðingar.

Plato (IP-tala skráð) 7.8.2008 kl. 10:58

8 Smámynd: Sigrún Óskars

Til að verða ljósmóðir þarftu fyrst að verða hjúkrunarfræðingur. Til að starfa sem ljósmóðir þarftu þetta 2 ára sérnám í háskóla. Þetta á að koma fram í launum. Þegar ríkið gerir kröfur á sérnám í hjúkrun eins og í ljósmæðrafræðum, svæfingum og fl. þá á að borga almennilegt kaup - alveg eins og í öðrum starfsstéttum.

Sigrún Óskars, 7.8.2008 kl. 11:48

9 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Plato Sigrún er búin að svara þér. Flestar ljósmæður vinna hjá ríkinu og þessar menntunarkröfur eru gerðar til þeirra. Ábyrgð þeirra er mikil. 6 ára háskólanám er dýrt og fólk lifir á námslánum....Ljósmóðurnám er framhaldsnám við hjúkrun og því eðlilegt að launin hækki við það að bæta við sig tveimur árum í námi

Hólmdís Hjartardóttir, 7.8.2008 kl. 18:17

10 Smámynd: Sporðdrekinn

Fyrir utan hvað þetta er langt og erfitt nám þá er mikilábyrgð falin í þessu starfi. Slíkt á að koma fram á launaseðlinum. Öll viljum við hafa vel menntaðar og ánægðar ljósmæður að taka á móti börnum okkar og barnabörnum.

Sporðdrekinn, 7.8.2008 kl. 22:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband