Meira aarrgghhhhhhh

Já nú ætla ég að skrifa um einkavæðingu í heilbrigðisþjónustu.

Á síðasta ári réði ég mig í vinnu hjá einkafyrirtæki í heilbrigðisþjónustu.  Tómt rugl og fyrirtækið ECI skuldar mér ennþá peninga.   Sem ég gæti fengið með aðstoð FÍH hugsanlega.

Svo í vetur réði ég mig hjá öðru einkafyrirtæki.  Og líkar vel í vinnunni.  Og allir glaðir þangað til að við áttuðum okkur á því að fyrirtækið er ekki að greiða í lífeyrissjóð, sjúkrasjóð eða inn á orlofsreikninga. Launin mín fyrir síðasta mánuð hafa enn ekki verið reiknuð út.   Launin orðin þau lægstu í landinu. Þolinmæði mín er þrotin og ég skrifaði uppsagnarbréf í kvöld. Þess má geta að það er dregið af laununum okkar í þessa sjóði.

Ef heldur áfram sem horfir munu einkafyrirtækin sjálf drepa hugmyndina um einkavæðingu.

Ef einkavæðing er framtíðin .........þá hálpi okkur allir heilagir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

En ömurlegt að lenda í svona vinnuveitendum, ég hef verið heppin í minni vinnu frá upphafi.  Ég hef alltaf fengið launin mín, lífeyrissjóð og orlof með skilum. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 12.8.2008 kl. 02:15

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Þetta er fullkomlega óþolandi.............og lögbrot

Hólmdís Hjartardóttir, 12.8.2008 kl. 02:25

3 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Þetta er ljótt að heyra, að þeir geti farið svona með launafólkið, og skila ekki inn þeim launatengdugjöldum sem þeir hafa dregið að launum ykkar, það er svindl. - Það er ólöglegt. - Verður ríkið ekki að taka af þeim atvinnurekstrarleyfið?

En hinsvegar ef þetta bjargar okkur frá því að heilbrigðiskerfið verði einkavætt, þá getur maður sagt að,  fátt er svo með öllu illt að ei boði gott.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 12.8.2008 kl. 02:30

4 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Lilja............þetta er svo sorglegt.  Þeir missa auðvitað leyfið ef ekkert gerist núna.

Sennilega bjargar þetta okkur frá frekari einkavæðingu.

Hólmdís Hjartardóttir, 12.8.2008 kl. 02:34

5 Smámynd: Jónas Jónasson

Leiðinlegt að heyra þetta Hólmdís mín. Hvað heitir svo Fyrirtækið?

Jónas Jónasson, 12.8.2008 kl. 03:04

6 Smámynd: Jónas Jónasson

Eða hvað stendur e.c.i fyrir? Ekkert cash inni kanski?

Jónas Jónasson, 12.8.2008 kl. 03:07

7 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Heilsuverndarstöðin

Hólmdís Hjartardóttir, 12.8.2008 kl. 03:07

8 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Ethnic care ísland

Hólmdís Hjartardóttir, 12.8.2008 kl. 03:09

9 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Jónas einkavæðingarmenn drepa hugmyndina sjálfir

Hólmdís Hjartardóttir, 12.8.2008 kl. 03:18

10 Smámynd: Sporðdrekinn

Sporðdrekinn, 12.8.2008 kl. 03:29

11 Smámynd: Jónas Jónasson

Ég hélt að Samfylkingin væri á móti einkavæðingu

Jónas Jónasson, 12.8.2008 kl. 11:50

12 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Ég er ekki í Samfylkingunni.  Kýs hverju sinni það sem mér líst best á. Gæti hugsað mér að kjósa einstaklinga í stað flokka.

Hólmdís Hjartardóttir, 12.8.2008 kl. 12:04

13 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Þess vegna er ég heldur ekki blind á neinn flokk.

Hólmdís Hjartardóttir, 12.8.2008 kl. 12:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband