11 mínútna þögn

................á morgun er enn einn mótmælafundurinn á Austurvelli.  Einnig verður fundur á milli jóla og Nýárs.

Ég held ég sé búin að mæta þar í átta skipti af því að ég trúi að það skipti máli.  Ég held að þessi mótmæli hafi þegar breytt vinnubrögðum.  Hef einnig setið 3 Borgarafundi.  Þeir hafa verið mjög fræðandi.

En nú viljum við halda jól með fólkinu  okkar....mætum tvíefld eftir áramót. Við getum ekki hætt.  Það er allt of mikið í húfi............framtíðin!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Vonandi hitti ég þig og Sigrúnu á morgun, ég mun mæta eins og venjulega. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 20.12.2008 kl. 01:19

2 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Sjáumst

Sigrún Jónsdóttir, 20.12.2008 kl. 01:24

3 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Hvers vegna 11 mínútur? Kemst ekki á morgun en vona að mæting verði góð.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 20.12.2008 kl. 01:30

4 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Við verðum þá alla vega þrjár

Hólmdís Hjartardóttir, 20.12.2008 kl. 01:32

5 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Hitti ykkur fögru fljóðin í huganum, faðma ykkur og kyssi og efli með ykkur baráttuandan, að standa af ykkur í kulda og trekki, hættu á blöðrubólgu með meiru, í þágu framtíðarinnar!

Magnús Geir Guðmundsson, 20.12.2008 kl. 01:33

6 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Þetta er ellefti fundurinn

Hólmdís Hjartardóttir, 20.12.2008 kl. 01:33

7 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Magnús ég skal minnast þín í þögninni

Hólmdís Hjartardóttir, 20.12.2008 kl. 01:35

8 Smámynd: Víðir Benediktsson

Maður fer að mæta hvað af hverju.

Víðir Benediktsson, 20.12.2008 kl. 02:07

9 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Mætirðu ekki á fundi á Akureyri Víðir?

Hólmdís Hjartardóttir, 20.12.2008 kl. 02:20

10 Smámynd: Víðir Benediktsson

Það er nú eitthvað fátt um fína drætti hér. Hins vegar hef ég mestan áhuga á að standa framan við Alþingishúsið. Því miður er ekkert Alþingishús á Akureyri. Ef ég væri fyrir sunnan myndi ég sýna þessu liði skósólann og kalla þau hunda eins og gert er í Írak.

Víðir Benediktsson, 20.12.2008 kl. 02:33

11 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Ég mæti með þér Víðir

Hólmdís Hjartardóttir, 20.12.2008 kl. 02:49

12 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Neinei, ef þið pöruparið ætlið að stilla ykkur upp fyrir framan alþingishúsið þegar og ef Víðir nennir að klöngrast yfir bæði Öxnadals- og Holtavörðuheiði, þá þýðir ekkert að ætla að segja A en ekki B! (eins og B er nú einmitt víði kær bókstafur!) Það yrði já bara hrein og klár SÝNDARMENNSKA að sýna skóna og garga Huuuundar! Þið verðið auðvitað að GRÝTA skónum í einhvern svo þetta sé í ALVÖRUNNI!

En svo er það nú bull, að "fátt sé um fína DRÆTTI" hér nyrðra og það bara að neinu leiti, hjólREIÐAR til dæmis stóraukis hérna og tíðni barneigna líka!

En víðir hugsar sja´lfsagt ekkert um slíkt, dólar bara um á sinni druslu bensín og úr barneign komin fyrir löngu!?

Magnús Geir Guðmundsson, 20.12.2008 kl. 03:07

13 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Kemst ekki því miður,er enn veikur.

Magnús Paul Korntop, 20.12.2008 kl. 12:17

14 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Takk fyrir innlit Magnúsar tveir.

Það var skókast í Alþingishúsið í dag

Hólmdís Hjartardóttir, 20.12.2008 kl. 17:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband