Við nánari athugun..

,,,,,,,,,,,,,,,,þurfti eitthvað að velta þessu fyrir sér?
mbl.is Hefur verið sagt upp störfum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

GLEÐUR MIG AÐ TILKYNNA

.......að fyrstu eintök voru send á Alþingi  og á skrifstofur allra flokka.........
mbl.is Leiðbeiningar um sálræna skyndihjálp gefnar út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kvenmannslaus í kulda og trekki

........Menn vilja greinilega ekki breytingar á þessum bænum........
mbl.is Illugi sigraði í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öfugmæli dagsins

.........og ekki orð um það meir
mbl.is Þingmenn njóta mikils trausts
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Æ það eru að koma kosningar

....einu sinni enn.

Traust á stjórnmálamönnum hefur sennilega aldrei verið minna en núna.  Og ótrúlega fáir þeirra hafa í raun staðið sig vel.    Þess vegna er það alveg stórmerkilegt hve margir þeirra bjóða sig fram á ný.

Afneitunin er mikil.  Mat á eigið hæfi brenglað.

Skoðanakannanir gera mig ekki bjartsýna. 

Þjóðin vill breytingar. Nýtt fólk. Ný andlit.  Nýjar raddir.

Allt of margir sitjandi þingmenn þekkja ekki raunheima....heldur hafa gert stjórnmál að ævistarfi og hafa aldrei deilt kjörum með fólkinu i landinu.

Við þurfum venjulegar Gunnur og venjulega Jóna inn á Alþingi. Við þurfum fulltrúa fyrir venjulega launþega.   Sem gleyma ekki um leið og þeir setjast í stól á Alþingi fyrir hverja þeir eru að vinna og hverjir borga launin þeirra.

Mér finnst erfitt að finna út hvernig ég geti haft mest áhrif á framhaldið. 


Noregur kallar....á hjúkrunarfræðinga.

.....Ég hef tekið ákvörðun um að fara til Noregs.   Það hefur hreint ekki verið á mínum óskalista að flytja úr landi..en ég ætla að sætta mig við það.  Og lít á það sem tímabundið.  Byrja á einu ári....

Ég fór á fund norskra hjúkkuveiðara í morgun.

Lægstu laun eru yfir 100 þús kr hærri en ég hef með 27 ára  starfsaldur hér. Skattar 28%. Fríar ferðir á milli landa. Frítt húsnæði ef ég sætti mig við lítið pláss.

Vinnuvikan er 35,5 klukkutímar!!  Og ég ræð hvenær og hvernig ég vinn.....

12 hjúkrunarfræðingar tóku ákvörðun í gær að fara....sennilega 6-7 í dag.

Áhugasamir hafi samband við www.adecco.no.

 


Atvinnulaus aftur!

.........þetta líf er svo skrýtið þessa dagana.   Ég varð atvinnulaus í nóvember en var svo heppin að fá vinnu fljótlega.  Íslenskur veruleiki er sá að maður má þakka fyrir að hafa vinnu.  Ég fékk vinnu á Landakoti og var strax gert ljóst að mikil óvissa væri framundan.   Óvissunni hefur verið eytt, mikill niðurskurður framundan og fólki fækkað á vöktum. Ég hef vinnu til 1. maí.

Fólk sem hefur staðið vaktina á lágum launum og viðvarandi manneklu er verðlaunað með því að að auka álagið á það og því er gert að hlaupa hraðar.

Blessuð sé minning Íslands.


Besta frétt ársins

.....................að þessi kona hafi samþykkt að aðstoða okkur.   Það er von.  Það kemur vor á eftir vetri. Við megum þakka Agli Helgasyni og Jóni Þórissyni (heitir hann það ekki) fyrir þennan dýrmæta innrásarvíking.

Lífið er aldrei alvont....og sjaldan algott.


mbl.is Joly: Viss um að menn misnotuðu aðstöðu sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vetrargosarnir láta hvorki kulda né kreppu halda aftur að sér.

,,,,,,,,Gaman að sjá vetrargosana gægjast upp úr snjónum brosandi. Láta sér fátt um finnast þótt frost sé á Fróni og kreppuvæl í fólki.  Kannski við ættum að taka vetrargosann til fyrirmyndar?  Þetta eru ótrúlegar plöntur.   Gljámispillinn fyrir utan stofugluggann minn er farinn að laufgast. Og kirsjuberjatréð sýnir líf.  Á eftir vetri kemur vor.

Tek undir með Töru bloggvinkonu minni....reynum að líta á björtu hliðarnar....þótt ég hvetji alla til að halda vöku sinni. 



















Skora á Valgerði Bjarnadóttur...

....held að hún yrði öflugur leiðtogi.

Vona að Ingibjörg nái heilsu sem fyrst. Held að hún hafi gert ómannlegar kröfur til sjálfrar sín síðan hún vektist.  Auðvitað á hún að draga sig í hlé og safna kröftum.


mbl.is Ingibjörg Sólrún hættir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband