Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Laun greidd eftir menntun

.....horfði á Menntamálaráðherra fjalla um aukna menntun kennarastéttarinnar í kvöld. Á Stöð 2.  Og sagði hún  aðspurð að aukinni menntun fylgdu að sjálfsögðu hærri laun.  Þá var hún spurð um ljósmæður.....og þeirra kjaradeilu. Og framgöngu Fjármálaráðherra.  Og hvort það væri þá ekki svipað með ljósmæður og kennara að þær þyrfti laun í samræmi við menntun.  Hún virtist hafa ákveðinn skilning á kröfum ljósmæðra.  En Fjármálaráðherra væri í erfiðri stöðu og að það þyrfti að styðja hann!!!!   Og allt í einu var ekki alveg víst að það þyrfti að hækka kennaralaun svo mikið þótt gerðar yrðu auknar menntunarkröfur.

æææ


mbl.is Samningar náðust ekki í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ástæða til bjartsýni?

..... Langflestar fréttir í morgun tengjast falli á krónunni og  hruni á hlutabréfamarkaði.  Afkoma ríkissjóðs versnandi.           5 milljón króna myntkörfulán einstaklings  hefur hækkað um 175 þúsund  í morgun.  Já bara í morgun. Gjaldþrot hér og gjaldþrot þar gjaldþrot yfirvofandi allstaðar?  Ég er sannarlega enginn hagfræðingur  en þarf að reka heimilið FP (Fuckingham Palace)  á lágum launum og það er bara æ erfiðara.    En Geir segir að það sé ekki kreppa.....og þá er engin kreppa eða hvað?  Ein í mánudagsbölsýniskasti.
mbl.is Eimskip lækkar um 25%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Launastefna ríkissins.

enn eitt snilldarmyndbandið frá Láru Hönnu.


Strútur.

Veistu ekki Geir hvernig háir vextir eru  að sliga heimilin í landinu?   Að minnsta kosti  hjá þeim sem hafa lægri tekjur en þú.   Veistu ekki að matarkarfan hefur hækkað um 20%?   Hefurðu ekkert frétt af öllum uppsögnunum?  Þeir sem misstu af góðærinu....upplifa kreppuna af fullum þunga. Talaðu við þær hjálparstofnanir sem styðja fátæka fólkið í landinu........kannski þær geti upplýst þig eitthvað um fjöldann sem hefur það skítt Íslandi. Talaðu við einstæða foreldra, öryrkja aldraða...og sjáðu það er ekki allt í himnalagi.

Veistu um allt fólkið sem fer ekki í læknisaðgerðir vegna kostnaðar?  Eða til tannlæknis?  Eða bara í klippingu.

Og mig langar að benda þér á að kreppa láglaunafólksins er ekki vegna offjárfestinga. Eða hlutabréfakaupa.

Hækkaðu skattleysismörkin strax...svo fólk geti sparað sér fyrir flugi burtu.

Lyftu nú hausnum upp úr sandbingnum þó ekki væri nema örstutta stund. Og sjá augu þín munu opnast.


mbl.is Ekki rétt að tala um kreppu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við höfum aldeilis dæmi um þetta hér.

Nema hér var þetta ríkisstyrkt....svo konurnar þurftu ekki að borga fyrir hið heilaga sæði.  Og án eftirlits. Ýmislegt er gert í nafni trúarinnar.

Hvað vitum við hvað fram fer innan sértrúarhópa á Íslandi?   Við fáum endalausar fréttir af körlum sem hafa misnotað börn.....sem er ljótasti glæpur sem hægt er að hugsa sér.  En fullorðar konur eiga nú ekki að vera svona bláeygar eins og sú Ástralska. Hlýtur að vera greindarskert.
mbl.is Kynmök til að aflétta bölvun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áfram konur.

set hér inn myndband frá Láru Hönnu.

Þetta skil ég ekki

Hvað hefur kirkjan með þetta mál að gera? En það er sjálfsagt að skoða þetta mál sem er síður en svo einfalt.   En að kirkjan komi að því er út úr Q.
mbl.is Á að leyfa staðgöngumæðrun?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

LJÓSMÆÐUR FELLA RÍKISSTJÓRNA.

Ég einfaldlega trúi því ekki að ríkisstjórnin lifi af síðasta afleik Fjármálaráðherra. Persónulega finnst mér að konur eigi að rísa upp og mótmæla snautlegri meðferð á kvennastétt.  Samfylkingin verður að vakna.  Ég hef sjaldan orðið eins reið og þegar ég hlustaði á fréttir í kvöld.   Það hlýtur að koma vantraustsyfirlýsing á ráðherrann.


Ellefti september.

við hugsum öll það sama.            Hinn afdrifaríka 11. setember um árið.....2001 var ég á Egilsstöðum.  Fór snemma á fætur..........og hlustaði á útvarp.  Þannig bárust fyrstu fréttir.  Ég kveikti á sjónvarpinu...............og límdist við skjáinn.   Þurfti að mæta á kvöldvakt..................við vorum allar óvinnufærar.................límdar við skjáinn.   Og ég hugsaði........engin hryllingsmynd getur toppað  þetta.  Að horfa á fókið stökkva út í stað þess að stikna er öllum ógleymanlegt sen sáum.  Ekki mun Palin minnka áhuga fólks á að herja á BNA

 

 

 


Fjármálaráðherra er með óráði.

......Hvað er eiginlega í gangi?  Það er einfaldlega réttlætismál að leiðrétta laun ljósmæðra.  Ég held að engum hópi öðrum sé boðið upp á að að lækka í launum við það að bæta við sig tveggja ára námi. Þetta sjá allir sem vilja.  Þetta er til skammar fyrir ríkisstjórnina alla.  Nú er lag að leiðrétta kjör velmenntaðrar kvennastéttar með MIKLA ábyrgð.
mbl.is Samningar tókust ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband