12.6.2008 | 02:26
Á morgun segir sá lati.
Þrátt fyrir miklar væntingar um eigin dugnað varð mér lítið úr verki í kvöld. Og á morgun hef ég lítinn tíma. Fer á kvöldvakt og morgunvakt daginn eftir og svo strax til Akureyrar. Tilefnið er 30 ára stúdentsafmæli. Æfði mig þó í að ganga á bandaskóm með hælum. Þvoði ferðatöskur. Skrifaði kort.
Dagskráin er eftirfarandi: Á föstudag verður ekið í loftköstum til Akureyrar og þá væntanlega slappað af um kvöldið. Á laugardaginn stefni ég á að komast í gullbrúðkaup á Húsavík. Sunnudagurinn fer í óvissuferð. Síðasta óvissuferð okkar var stórskemmtileg þá komum við við í Laxárvirkjum, fórum í Seljahjallagil þar sem óvænt fundust allmargir lítrar af bjór. Enduðum svo daginn á kvöldmáltíð í Vogafjósi í Mývatnssveit. Við fengum frábært veður. Á mánudagskvöld verður svo stórhátíð í Höllinni..Á þriðjudaginn er það svo Vogur...nei fyrirgefið Húsavík.
En hvert skyldi óvissan leiða okkur? Grímsey? hvalaskoðun á Húsavík? Dubrovnik?
Skriðin undir sæng
Athugasemdir
Góða ferð og góða skemmtun, kannski lendið þið í Flatey á Skjálfanda, eða í Hrísey
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 12.6.2008 kl. 02:32
Aldrei að vita.....hef komið í báðar eyjarnar
Hólmdís Hjartardóttir, 12.6.2008 kl. 02:34
Draumalandið..? Góða nótt.
Haraldur Davíðsson, 12.6.2008 kl. 02:57
Þess óska ég að þú skemmtir þér vel kona. Hlakka síðan mikið til að fá að heyra ferðasöguna.
Knús í daginn Hólmdís
Tína, 12.6.2008 kl. 07:32
hver veit hvar tid lendid mín kæra?Góda skemmtun
Knús inn í daginn.
Gudrún Hauksdótttir, 12.6.2008 kl. 09:57
Takk fyrir góðar kveðjur. Norðurland er yndislegt
Hólmdís Hjartardóttir, 12.6.2008 kl. 13:33
Góðar stundir
Sporðdrekinn, 12.6.2008 kl. 19:25
Það verður pottþétt líf og fjör í tuskunum. Gott að hlaða batteríin. Njóttu vel, hvergi fallegra en í Þingeyjasýslunum
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 12.6.2008 kl. 20:20
Skemmtu þér rosalega vel Hólmdís mín. Óvissuferðin verður kannski farin í gamla matsalinn, þar sem boðið verður upp á eitt og annað af matseðli ykkar tíma við skólann
Sigrún Jónsdóttir, 12.6.2008 kl. 23:45
Takk öll. Sigrún
Hólmdís Hjartardóttir, 12.6.2008 kl. 23:50
Hlakka til að hitta þig á sunnudagsmorgun
Og skilaðu kveðjum í gullbrúðkaupið góða, reikna með að það sé á nr. 20
Þórhalla (IP-tala skráð) 13.6.2008 kl. 16:12
Góða ferð og góða skemmtun. -
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 14.6.2008 kl. 01:37
Þarna er ástæðan fyrir fréttunum frá Akureyri núna. Þú á staðnum. Fyrirsagnirnar segja sitt: "Fangageymslur fullar" - "Mikil ölvun á Akureyri"....o.s. frv...ekki er ég á staðnum núna!!!......Skemmtu þér vel og það verður örugglega gaman í óvissuferðinni, ég hef lúmskan grun um að Sigrún hafi rétt fyrir sér með hana.
Haraldur Bjarnason, 14.6.2008 kl. 12:23
Góða skemmtun fyrir norðan!!! Ég er allnokkru sunnar, sem sagt á Spáni akkúrat núna.... en veit sem er, að staðurinn skiptir ekki máli, heldur félagsskapurinn. Enjoy.....
Lilja G. Bolladóttir, 15.6.2008 kl. 01:50
Góða skemmtun mín kæra! Heyrðu annars, hvert verður farið í óvissuferðina????
Himmalingur, 15.6.2008 kl. 02:41
Síðbúið svar: frúin að koma frá Álaborg ( ekki komist í tölvu í marga daga.) Fyrstu fréttir á Akureyrar flugvelli voru hressilegar-allt brjálað um helgina,var þetta tilviljun ein?? Alltaf verið ánægð með þig........ EN ekki kinnar!! Kryddið og flodeskum hljómar vel. Kannski hægt að breyta um fisktegund? Kemur þú ekki á mærudaga? Væri alveg til að taka eitt glas af hvítu víni með þér.Ég veit að okkar vinna er bara skemmtileg Hólmdís en 17 tíma vaktir??? Kveðja frá Fögru Vík.
maggatolla (IP-tala skráð) 18.6.2008 kl. 00:01
takk fyrir innlit, Magga þú ert matvönd.....ég er stödd á Húsavík NÚNA
Hólmdís Hjartardóttir, 18.6.2008 kl. 11:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.