9.12.2008 | 04:29
Hættulegasta fólkið er ekki farið á stjá.
.....sennilega er það enn að fá greidd laun. Í febrúar og mars kemur það út úr skápnum. Atvinnulaust ungt fólk með börn á framfæri. Fólk sem átti framtíðina fyrir sér fyrir nokkrum mánuðum. Fólk sem búið var að skapa sér og börnum sínum falleg heimili og taldi sig búa við öryggi. Hefur tekið há húsnæðislán sem það hefur enga möguleika á að ráða við. Fjölskyldur munu splundrast. Reiðin og heiftin sem þá mun blossa upp er eitthvað sem við þekkjum ekki hér. Þá verður fólk dregið til ábyrgðar. Atburðirnir á Alþingi í dag eru saklausir. Eða liggja margir sárir ? Eru skemmdir miklar? En Siv var brugðið. Þjóðinni er reyndar mjög brugðið en það er ekki vegna háreistis nokkurra skólakrakka.
Ég hef ekki séð neitt frá yfirvöldum sem getur spornað við miklum flótta frá landinu.
Siv: Vildi helst hlaupa í felur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 05:19 | Facebook
Athugasemdir
Meðalaldurinn var um 32.........
Bara Steini, 9.12.2008 kl. 04:39
Þetta er svo rétt hjá þér!
Fólk með brostnar vonir er til alls líklegt
Kveðja
Bara ég (IP-tala skráð) 9.12.2008 kl. 04:44
Bara Steini......var einn eldgamall í hópnum til að hækka meðalaldurinn
Bara ég..........ég held það....við erum ekkert farin að sjá enn.
Hólmdís Hjartardóttir, 9.12.2008 kl. 04:47
Hehehe það var einn fimmtugur jú.
En þetta var ekki eins og margir vilja segja.
Enginn fór þarna inn með illt i huga enda sést það að flestallir fóru a fund með löggunni svo svona atburður kæmi ekki upp aftur.
Bara Steini, 9.12.2008 kl. 04:49
Af hverju hylja þau andlit sín. Ef ég færi þarna, sem gæti alveg gerst á næsta ári því það er jú hægt að ofbjóða mér eins og öðrum, þá mundi ég mæta þannig að allir sæju hver væri á ferðinni.
Ásdís Sigurðardóttir, 9.12.2008 kl. 06:49
Flestir viljanu bara ekki vera að lenda í blöðum og umræðunni sem einhversskonar bitbein fólks 'Asdís.
Bara Steini, 9.12.2008 kl. 06:58
Ég efast ekki um að þú hefur mjög rétt fyrir þér Hólmdís. Takk fyrir gærkvöldið.....nóttin var frekar erfið.
Sigrún Jónsdóttir, 9.12.2008 kl. 08:08
Ég myndi ekki hylja andlit mitt sumir segja að það sé táknrænt fyrir að vera "sauðsvarti andlitlausi múgur"
Sigrún sömuleiðis....ég er ekki frá því að eg hafi fundið aukinn hita í fólki í gærkvöldi. Sofðu velí dag.
Hólmdís Hjartardóttir, 9.12.2008 kl. 11:45
Hvar eru hrósin fyrir þeim sem ekki huldu andlit sín?
Kolbeinn (IP-tala skráð) 10.12.2008 kl. 14:00
Æ fyrirgefðu Kolbeinn.............ég skal hrósa þeim. Er búin að vera sjálf dugleg að mæta á fundi út um allt.
Hólmdís Hjartardóttir, 10.12.2008 kl. 14:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.