Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Ekkert má nú í útlöndum

.................hann óheppinn að búa ekki á Íslandi.

................


mbl.is Sjö ár fyrir innherjasvik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt gert til að halda öllu undir borðum?

..............Hver togaði í spottann núna?

.............Nær væri að borga manninum fyrir þessa vinnu og segja takk.....Krafa þjóðarinnar er algert gagnsæi.   Undarlegt að reyna að gera manninn tortryggilegan fyrir þessa vinnu sína. 

.............Nei þetta eykur ekki bjartsýni að mál komist upp á yfirborðið. Stjórnkerfið virðist  gegnsýrt af spillingu.


mbl.is Grunaður um upplýsingastuld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hyldjúp gjá á milli þjóðar og forseta.

................Forsetinn skrifaði undir flóttamannastraum frá Íslandi.  Það er hyldýpisgjá á milli þjóðar og þings líka.  Þetta verður ekki brúað.  Ég viðurkenni að ég hafði smávon um að forsetinn hæfi sig upp fyrir pólitíkina.

Man einhver hvað forsetinn fékk margar undirskriftir þegar hann ákvað að skrifa ekki undir fjölmiðlalögin?

Sannar enn og aftur að  gamlir pólítukusar eiga ekki erindi á Bessastaði.....frekar en í önnur stór embætti á vegum hins opinbera.   Legg til að þetta embætti verði lagt niður.

Ekkert getur bjargað okkur nema alvöru bylting.  Ég er sannfærð um það.

Skrifað með sorg í hjarta af flóttakonu á Amager.


mbl.is Forsetinn staðfestir Icesave-lög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

www.kjosa.is

www.kjosa.is

Hægt að skora á forsetann að skrfa ekki undir Icesave til klukkan 13 í dag...................


Á morgun verður framtíð mín ráðin.

...............Og ekki bara mín.  Okkar allra. En ég mun aldrei taka að mér að greiða Icesave skuldir sem sannarlega eru ekki mínar.   Verði það niðurstaðan að þessar byrðar lendi á þjóðinni lít ég svo á að ég eigi ekki afturkvæmt til Íslands.  Ég er sannarlega á nálum....með hjartað í buxunum... og lífið í lúkunum..Mér finnst nefnilega ekkert gott að vera rekin að heiman.  kannski ég geti fengið flóttamannastatus hér í Danmörku?

En eftir að hafa legið undir feldi hér á Amager hef ég komist að þeirri niðurstöðu að banna eigi stjórnmálaflokka á Íslandi næstu 10 árin að minnsta kosti.............þeir eru greinilega til trafala. Þeir eru hluti af vandanum...........því miður.









mbl.is Icesave-umræðu að ljúka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lengi getur vont versnað...............

..................Ég fékk bara ískaldan hroll að lesa þetta.    Ég geri mér grein fyrir að botninum er ekki náð.  Ég óttast mest að það verði ekki búandi á Íslandi næstu árin........og það er bara sárt.

Annars fer  það í taugarnar á mér  að verið sé að búa þjóðina undir enn verri fréttir eftir 2 og hálfan mánuð................ég vil fá þetta fram strax.....................svo fólk geti forðað sér.

Afhverju er beðið með að birta ótíðindin til 1. nóvember? Það er kannski rétt að fara að setja þjóðina á kvíðastillandi. 

 


mbl.is Verri fréttir en nokkur nefnd hefur þurft að færa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki sýslumaður vanhæfur vegna ættartengsla?

.............................spyr ég fávís konan.  Þessi lögbannsúrskurður er sem olía á eld. Reiðin sem kraumar í þjóðfélaginu hlýtur að verða enn sýnilegri.  Það er ekki ólíklegt að það verði gert áhlaup á Kaupþing á þriðjudaginn.  Það er bara verst að geta engum banka treyst.

Fólkið í landinu bíður eftir handtökum og frystingu eigna auðmanna. Og er orðið langeygt.  Þetta getur ekki endað með öðru en byltingu.

 


mbl.is Netverjar æfir yfir lögbanni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn eitt kjaftshöggið.

............Hvenær sýður upp úr?   Almenningur á rétt  á að allt komi upp á borðið. Ef okkur verður ætlað að borga fyrir sukkið er lágmarkskrafa að fá að vita hvað við borgum fyrir....og fyrir hverja.

Lögin virðast vernda glæpamennina. En þjóna ekki almenningi.

Ef ég ætti eitthvað inni í Kaupþingi myndi ég taka það allt út.

Afhverju hefur enginn verið handtekinn?

Ég finn lykt af byltingu.


mbl.is Kaupþing fékk lögbann á RÚV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tveir sólarhringar eftir á landinu bláa.

................Ef mér hefði verið sagt fyrir ári síðan að ég ætti eftir að verða flóttamaður frá Íslandi hefði ég hlegið að því.  Ekki það að ég var þá þegar búin að skrifa færslu um mögulegt gjaldþrot Íslands.....fannst allt hníga í þá átt.

En þetta er mikið tilfinningarót hjá miðaldra húsmóður!!!!! í Austurbænum að flýja land.  Með mér bærast allar mögulegar tilfinningar.............gleði og sorg, reiði og eftirsjá, samviskubit

Mér finnst erfitt að kveðja börn, foreldra og kæra vini. Heimilið mitt og minn góða garð.

En ætla að líta á þetta sem ævintýri.

En kæru bloggvinir....það verður huggun harmi gegn að geta kíkt á ykkur. Vegni ykkur öllum sem best.

Er ákveðin í að koma í "eftirlitsferð" í okt eða nóv.


Tóm sýndarmennska frá upphafi?

................Mér verður bara flökurt við þessa frétt.

Joly var vonarglæta þjóðarinnar.......en drullupytturinn teygir anga sína greinilega of víða og  allt gert til að ekkert komist upp á yfirborðið.   Þetta styrkir trú fólks á því að stjórnmálmenn séu á kafi í glæpnum sem og háttsettir menn í stjórnsýslunni.

Ef Joly gefst upp er ekki von á góðu frá fólkinu í landinu. Það er nóg komið. Undiraldan í þjóðfélaginu er gífurleg. Og ólgan heldur áfram að vaxa á meðan fólk sér engar raunverulegar aðgerðir.

Það er ekki víst að það verði bara egg og skyr sem verður þá hent á Alþingishúsið.

 


mbl.is Eva Joly íhugar að hætta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband