Hvenær hefjast handtökur?

.............Fólkið í landinu er orðið óþolinmótt.   Hvenær verða stjórmálamenn yfirheyrðir um tengsl sín við bankana? Og útrásavíkinga.  Afhverju eru bara 13 manns að rannsaka þessi mál?  Fáum við allt upp á borðið hvað varðar greiðslur stórfyrirtækja til flokkanna og einstakra stjórnmálamanna?

Það er hrikalegt í þessu gjörningaveðri að hafa engan fjölmiðil sem maður getur treyst.

Í öllu gróðærinu bjuggum við við hæsta matvælaverð í heimi, hæstu vexti á byggðu bóli.  Venjulegt launafólk lifði engu lúxuslífi.   Nú erum við mörg við hungurmörk.  Þegar sér til botns í grautarskálinni hjá okkur mörgum viljum við sjá þá seku á bak við lás og slá.

Að lokum legg ég til að allir núverandi stjórmálaflokkar verði lagðir niður.

 


mbl.is Grunur um fjölda brota
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Heyr heyr, en helst vildi ég sjá þá í þrælavinnu þar sem allir geta augum þá litið

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 1.10.2009 kl. 17:14

2 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

Verst að Brimhólar skuli ekki vera við lýði enn til að hýsa hyskið og láta mylja grjót.

Georg P Sveinbjörnsson, 1.10.2009 kl. 18:37

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Búr á Austurvelli þar sem fólk gæti horft á þá.....og jafvel hrækt hugnast mér afar vel:)

Hólmdís Hjartardóttir, 1.10.2009 kl. 18:50

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég handtók kallinn minn áðan og kyssti hann rembingskossi, einu handtökurnar sem ég get treyst á að verði framdar

Ásdís Sigurðardóttir, 1.10.2009 kl. 19:30

5 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Ásdís mín var hann ekki sakleysið uppmálað?

Hólmdís Hjartardóttir, 1.10.2009 kl. 20:23

6 Smámynd: Þráinn Jökull Elísson

Georg, er ekki tilvalið að "endurvekja" Brimhóla?

Þráinn Jökull Elísson, 1.10.2009 kl. 21:36

7 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

Jú, svei mér þá!

Georg P Sveinbjörnsson, 1.10.2009 kl. 22:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband