Fjárlög 2009

Öllum sendiráðum lokað og eigur seldar.

Varnarmálastofnun lögð niður.

Alþingismönnum fækkað í 20.  Ráðuneytum fækkað.

Utanlandsferðir á vegum ríkisins skornar niður um 80%.  Við lifum á tímum góðra fjarskipta.

Forsetaembættið lagt niður.

Aðskilnaður ríkis og kirkju.

Með öllum ráðum verður reynt að halda í heilbrigðiskerfið og menntakerfið. En stjórnendum fækkað og gæluverkefni lögð af.

Engin laun hjá ríkinu verða yfir 500 þúsund á mánuði. Og engum gert að lifa á lægri upphæð en 200 þús á mánuði.  Því við eigum að taka á þessu saman....ekki satt?

Eignaskattur á eignir umfram 50 milljónir.

Hátekjuskattur á laun yfir 600 þúsund.

Höfnum Icesafe.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Lagt fram á þing þann 2 okt 2009.

Anna Ragna Alexandersdóttir, 2.10.2009 kl. 11:19

2 identicon

Sammála þessu. Þó vil ég bæta við að einkabíllinn verði bannaður. Það mun fækka gjaldþrotum einstaklinga um 80% og minnka kostnað heilbrigðiskerfisins um 60% (fólk getur ekki lengur lifað við hreyfingaleysi). Það mun líka fækka glæpum stórlega (menn flytja ekki þýfi með almenningssamgöngum) Það mun spara tugi, ef ekki yfir hundrað milljarða í gjaldeyri á ári. Kostnaður við vegakerfið mun minnka um milljarða á ári. Það mun draga stórlega úr mengun. Það mun verða miklu fljótlegra og þægilegra að komast leiða sinna innanbæjar (það þarf ekki sífellt að vera að bíða langtímum saman eftir því að komast yfir götur). Þetta er kannski töfralausnin, sem getur komið okkur út úr kreppunni fljótt og auðveldlega. BANNA NOTKUN EINKABÍLA.

Húnbogi Valsson (IP-tala skráð) 2.10.2009 kl. 20:42

3 Smámynd: Júlíus Björnsson

Það má skera niður fræðinga í menntakerfinu og efla iðnmenntun og hefja hér framleiðslu heim aftur  Stytta námstíma. Loka landinu fyrir flæði hvers sem er.

Sameina alla banka undir eina yfirstjórn [Seðlabankahúsið] 100 útibúa þar sem allir útbússtjórar eru í samkeppni um að halda þjónustu upp og kostnaði lámarki.

Eitt útibú getur sérhæft sig í vandræða lánum.  

Júlíus Björnsson, 4.10.2009 kl. 04:00

4 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Július sammála því að við þurfum bara einn banka.  Það er víða hægt að taka til og sameina...ríkisbáknið hefur þanist út

Hólmdís Hjartardóttir, 4.10.2009 kl. 08:39

5 Smámynd: Offari

Ertu búinn að senda Steingrími og Jóhönnu þessi fjárlög?  Ég er nokkuð viss um að með þessu náist mun meiri sparnaður en að skera niður sjúklinga.  Ég er ekki sammála Húnboga um að banna heimilisbílana mína sjö.  En ég get samt komið til móts við hans tilögur og tekið einn þeirra af skrá.

Offari, 4.10.2009 kl. 10:35

6 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Offari það er óraunhæft að banna einkabíla. En það má sannarlega draga úr notkun þeirra en til þess þarf að stórbæta samgöngur og koma upp hjólastígum. Svo er fjandans nóg fyrir þig að vera með einn bíl:)

Hólmdís Hjartardóttir, 4.10.2009 kl. 10:40

7 identicon

Að segja að það sé óraunhæft að banna einkabíla er alveg eins og að heira múslima segja að það sé óraunhæft að hætta að vera múslimi. Ég hef oft kapprætt við bílista um þetta og þeir eiga það sameiginlegt að vera ofstækisfullir án þess að geta rökstutt sitt mál með neinu öðru en sögu af einhverjum frænda sem býr í sveitinni og vinnur í bænum. Það afsakar ekki að 60% af bílum í Reykjavíkurumferðinni ekur innan við 2 km, milli heimilis og vinnu. Samkvæmt því ætti hlutfallið á landsbyggðinni að vera yfir 90%. Sem sýnir að bíllinn er óþarfur og aðeins óhóflega dýr ávani. Þeir sem geta eytt peningum í þessa vitleysu, geta aðeins sjálfum sér um kennt þegar þeir lenda í fjárhagskröggum og þegar mengun og hlýnun jarðar er orðið alvarlegasta vandamál mannkyns, er einkabíllinn algjör tímaskekkja.

Húnbogi Valsson (IP-tala skráð) 5.10.2009 kl. 04:21

8 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Til hamingju með afmælið

Anna Ragna Alexandersdóttir, 6.10.2009 kl. 00:22

9 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Takk elskuleg

Hólmdís Hjartardóttir, 6.10.2009 kl. 01:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband